Íslendingur - 07.05.1968, Side 4
tlSLENMNGUR
Vikublaft, gefið úf á Akureyri. — Otgefandi: KJORDÆMISRAÐ SJALFSTÆÐISFLOKKS-
‘NS í NORÐURLANDSKJORDÆMI EYSTRA. - Ritstjórh HERBERT GUÐMUNDSSON
(óbm.), sími 21354. — Aðketur: HAFNARSTRÆTl 107 (Útvegsbankahúsift), III. hæð, sími
11354 Opift kl. 10-12 og 13.30-17.30 virko daga, nema laugard. kl. 10-12. Prentun: Edda.
VELJUM ÍSLENZKT,
ÍSLENZKAN IÐNAÐ!
9 ISnkynning samtaka iðnaðarins er hafin. Sjólfstæðis-
menn í Reykjavík hafa haldið umfangsmestu róðstefnu, sem
haldin hefur verið um iðnaðinn. Almennur óhugi er að
skapast d eflingu iðnaðarins. „Iðnaðardr" íslenzks iðnaðar
er runnið upp.
íslenzkur iðnaður, þessi ungi atvinnuvegur, hefur fyrir
fóeinum órum slitið barnsskónum og verið ó gelgjuskeiði
síðustu misserin. Hann er nú sem óðasf að marka sér bós
d neytendamarkaðnum, þar sem hann getur keppt í gæð-
um og verði við erlendan iðnað.
„Iðnaðarór" íslenzks iðnaðar er því tímabært.
En nú vill einnig svo til, að atvinnulífið d í óvenjulegum
þrengingum og þar með efnahagslíf þjóðarinnar. Eina rétta
svarið felst í aukinni hagsýni í framleiðslu og viðskiptum.
Þar er það fyrst og fremst iðnaðurinn, sem kemur til skj.al-
anna, vaxandi hagkvæm framleiðsla og stórvaxandi neyzla
innlendrar framleiðslu.
Loks blasir það við, að ó næstu óratugum bætast ó
vinnumarkaðinn þúsundir manns umfram þd aukningu, sem
orðið hefur. Þessum starfskröftum þarf að sjó farborða ó
þann hdtt, að þeir verði lyftistöng í þjóðarbúskapnum. Það
verður ekki gert d annan hdtt en með geysilega aukinni
iðnaðaruppbyggingu.
Þannig ber allt að sama brunni. Iðnaðurinn er sd mdttar-
stólpi þjóðfélagsins, sem hvergi md bresta og verður að
styrkjast með stöðugum, örum og traustum vexti.
En öðrum undirstöðuatvinnuvegum skal þó ekki gleymt.
Því fer víðs fjarri. Landbúnaður og sjdvarútvegur eru og
verða eftir sem dður rótfesta þjóðarbúskaparins. Þessir at-
vinnuvegir bæði standa fyrir sínu, þótt vöxtur þeirra bjóði
ekki upp d vinnu fyrir verulega aukið vinnuafl, og leggja
iðnaðinum til mikilvæg hrdefni. Það er því síður en svo
hætta d, að þeir verði hornrekur, þótt viðurkennd sé sú
staðreynd, að iðnaðurinn er vaxtarsproti atvinnulífsins.
Veljum íslenzkt, íslenzkan iðnað. Þetta eru kjörorð „iðn-
aðardrsins". Okkur ber að sannreyna gildi þessarar hvatn-
ingar með því að haga innkaupum og neyzlu d þann veg,
að íslenzkur iðnaður fdi fullan og hlutlægan samanburð
við erlendan. Um leið þarf að efla sambandið milli fram-
leiðenda og neytenda, þannig að stefnt sé rakleitt að settu
marki með gagnkvæmum upplýsingum og samvinnu: Sí-
fellt öflugri íslenzkum iðnaði. i
ÞAR KOM AÐ ÞVÍ!
• Höfuðkröfur verkalýðssamtakanna hér d landi þann
1. maí sl. voru atvinnuöryggi og sómasamleg lífskjör fyrir
hóflega vinnu. I því sambandi þykir blaðinu tilhlýðilegt,
að minna d að það taldi einmitt þessi atriði skipta mestu
mdli, þegar verkfallið fræga stóð fyrir dyrum og, skall d
með því stórtjóni, sem fylgdi.
Þessi kröfugerð verkalýðssamtakanna bendir ótvírætt til
þess, að það sé rétt, sem ýmsir hafa haldið fram, að í raun-
inni hafi verið skilningur og vilji fyrir hendi til að semja dn
verkfalla, en það hafi ekki tekizt, vegna pólitísks sundur-
þykkis verkalýðsforingjanna og framapots.
Alla vega var það ekki þessi stefna, sem réði gerðum
þessara manna fyrir verkfallið og í því. Og naumast hafa
þeir í rauninni kúvent frd því verkfallinu lauk, þótt það hafi
vonandi orðið þéim og öðrum lærdómsríkt.
Hvað um það. N1' ^ru kröfurnar eðlilegar og sann-
gjarnar í fyllsta mdtr ; þd getur blaðið stutt þær heils-
hugar og gerir það.
Júltus Oddsson og Sigurveig Jónsdóttir sem
Arthur Birling o gfrú. (Ljósm.st. Páls.)
Guðmundur Gunnarsson, Sæmundur Guðvins-
son og Guðlaug Hermannsdóttir sem Goole,
Gerald Croft og Sheila Birling.
LEIKFÉLAG AKUREYRAR:
,Óvænt heimsókn'
Höfundur: John B. Priestley. Leikstjóri Gísli Halldórsson
Á MÖRKUM raunveruleikans og
ímyndunarinnar: Óvænt heim-
sókn. Samtöl. Forherðing.
Flenging. Afturhvarf. Forherð-
' ing. Meðaumkun. Afturhvarf.
Forherðing. Skilningur. Kennslu
stund í að hugsa ráð sitt, að
komast til botns í sjálfum sér,
að temja sér sæmilcga heil-
steypt Iíf, að bæta sjálfan sig og
veröldina, — eða, eða hvað?
„Óvænt heimsókn“ 1912 eftir
John Boynton Priestley frá
Yorkshire í Englandi, þann
fræga rithöfund. Þetta er verk-
efnið, sem Leikfélag Akureyrar
hefur fengið 1 hendur Gísla
Halldórssyni og sjö leikurum
sínum. Það var frumsýnt á
fimmtudaginn var. Og þá var
stigið annað stóra skrefið í röð
á blótstalli Thalíu í leikhúsi Ak-
ureyringa. Þetta var sanokölluð
uppskeruhátíð.
Það er vafalaust, að Leikfél-
agið er á hraðri leið til nýsköp-
unar í starfi sínu. Það hefur svo
sem ekki verið rislágt, hreint
ekki, en endurbygging er sjálf-
sögð og nauðsynleg á nýjum
tlmum og við breyttar og batn-
andi aðstæjur. Þetta er verið að
gera.
Gísli Halldórsson leikstjóri
kemur beint að efninu, eins og
hans var von og vísa. Þama
streymir fram þetta ólgufljót
mannlffsins I verki Priestleys,^
með iðum, lygnum og boðaföll-
um, niður gljúfur eða milli
breiðra bakka, þeysist að hamra-
brúnum, en á sín endalok í ei-
lífu hafinu. Það eru engar
bumbur, engir lúðrar og ekkert
prjál. Aðeins lffið á einu augna-
bliki í æfi einnar fjölskyldu.
Tjáningin er aðalatriðið. Hún
kemst til skila. Og sagan verður
heilmikil saga. Það var viður-
kennt að verðleikum f leikslok.
— Ég rek hana ekki hér. Það
er gert í leikhúsinu.
Júlíus Oddsson leikur fram-
kvæmdamanninn, verksmiðju-
eigandann og fv. borgarstjórann
Arthur Birling, sem er að von-
ast eftir langþráðum titli. Konu
hans, frú Birling, leikur Sigur-
veig Jónsdóttir. Bæði leggja
þau mikið gott af mörkum, en
þó alveg sérstaklega Sigurveig,
sem er nákvæmlega sönn.
Ólafur Axelsson og Guðllug
Hermannsdóttir Ieika Eric og
Sheilu, börn Birling-hjónanna,
bæði framúrskarandi.
Sæmundur Guðvinsson leikur
Gerald Croft, son annars fram-
kvæmdamanns og unnusta
Sheilu, og gerir þvf hin beztu
skil.
Guðmundur Gunnarsson leik-
ur Goole, „leynivopnið“ I leikn-
um, af gamalkunnn öryggi, nema
hvað einstaka sinnum skortir
örlftið á annars afdrátt&rlausan
sannfæringarkraftinn. Það er
nánast spurning um úthald 1 svo
þungum straumi, sem hann
stendur f.
Loks leikur Laufey Einars-
dóttir Ednu þjónustustúlku, sem
a.m.k. hefúr þokkann. Hún fær
ekki tækifæri til að sýna annað.
Það er jafnvægi milli leikar-
anna og leikstjóranum hefur
tekizt að laða fram stígandi, svo
að unun er að sjá og heyra.
Sem sé — þetta er stórgóð
sýning á merku og mergjuðu
leikriti.
herb.
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
afhentar rausnarlegar gjafir
NÝLEGA bárust Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri rausn-
arlegaf gjafir, eins og oft endra
nær. í þetta sinn voru gjafirnar
sérstakt sjúkrarúm fyrir hjart-
vcikisjúkiinga og 20 þúsund kr.
f peningum.
Það var Lionsklúbburinn
Huginn á Akureyri, sem gaf
rúmið, en það keypti klúbbur-
inn fyrir ágóða af kerta- og
spilasölu f vetur. Rúmið er sér-
staklega útbúið vegna hjart-
veikissjúklinga og fylgir þvf til-
heyrandi borð. Það var keypt
frá Svfþjóð. Þegar rúmið var af-
hent, gat form. Hugins þess, að
það væri von klúbbfélaganna, að
hér væri um að ræða veruleg-
an stuðning við starf lækna og
hjúkrunarliðs sjúkrahússins og
að sjálfsögðu einnig til að bæta
aðbúð hjartvcikisjúklinga. —
Form. sagði, að þetta framlag
klúbbsins byggðist á undirtekt-
um bæjarbúa, sem hefðu verið
hinar beztu og sýndi það hug
almennings til sjúkrahússins.
Loks sagði form., að klúbbfélag-
ar vildu einnig með gjöf þessari
minnast iátiijs klúbbfélaga, Guð-
mundar Tómasspnar fram-
kvæmdastjóra. — Form. sjúkra-
hússtjórnar, Eyþór Tómasson,
og yfirlæknarnir Guðm. Karl
Pétursson og Ólafur Sigurðsson
þökkuðu Hugins-félögum fram-
tak þeirra og vinsemd.
Þá barst Fjórðungssjúkrahús-
inu peningagjöf á sumardaginn
fyrsta, 20 þús. kr., frá þeim
hjónunum frú Hrefnu Guð-
mundsdóttur og Bernharði Stef-
ánssyni fyrrv. alþm., Akureyri.
Fénu á að verja til rannsókna
eða á annan hátt til eflingar
lækningum. Af hálfu sjúkra-
hússins hefur Ólafur Sigurðs-
son yfirlæknir þakkað þessa
höfðinglegu gjöf og þann vinar-
hug, sem henni fylgir.
ÍSLENDiNGUR 4