Íslendingur - 08.05.1975, Page 1
16. TÖLUBLAÐ . 60. ÁRGANGUR . AKUREYRI . FIMMTUDAGINN 8. MAÍ 1975
(Cí'-—~---------------——
j VORUSAIAN SH • HAFNARSTRÆTI 104 • AKUREYRI
vefL/H«*yit wikA
h VER2LAR í / VÖRUSÖLUNNI
'Ý£------------------------
Bæjarstjóm spyr:
Hvað gela norðlenskir
verktakar gert við Kröflu?
Eftir liarðar umræður samþykkti mcirihluti bæjarstjórnar á
fundi sínum á þriðjudaginn yfirlýsingu þar sem kemur fram
að bæjarstjórn Akureyrar telji eðlilegt að verktökum á Norður
landi verði falið að annast fyrirhugaðar virkjunarframkvæmd-
ir við Kröflu. Beinir bæjarstjórn þeim tilmælum til Kröflu-
nefndar að hún láti kanna það án tafar að hve miklu leyli
norðlcnskir vcrktakar geti annast virkjunarframkvæmdirnar.
Um 22 milBj. lítra af mjólk
komu til ftljólkursamlagsins 74
Innlagt mjólkurmagn til
Mjólkursamlags KEA sl. ár
var 21.825.350 lítrar og var
það 2.48% aukning frá því
árið áður. Mjólkurframleið-
endur á svæðinu eru 370 og
er það 13 færri en árið 1973.
Meðalinnlegg á mjólkurfram
leiðanda var 58.987 lítrar.
Kom þetta fram á aðalfundi
Mjólkursanrlags KEA, sem
var haldinn í Samkomuhús-
inu á Akureyri fyrir
skömmu. í skýrslu samlags-
stjóra kom fram að á árinu
voru framleidd 628 tonn af
smjöri, 551 tonn af ostum af
ýmsum tegundum, 59 tonn
af mysuosti og mysing, 182
tonn af- skyri, 119 tonn af
þurrmjólk og undanrennu-
dufti og 207 tonn af kasein.
— Reikningsyfirlit ársins
sýndi að heildarverð til fram
leiðenda fyrir innlagða
mjólk varð kr. 34.66 hver ltr.
Á fundinum var Guðmund
ur Þórisson Hléskógum end-
urkjörinn í mjólkursamlags-
ráð, en varamenn til eins árs
voru kjörnir Haukur Hall-
dórsson, Sveinbjarnargerði,
og Haukur Steindórsson, Þrí
hyrningi.
^eca
Hótel Húsavík:
Gestastraumurinn eykst
um 51% fyrstu 4 mánuði ársins
sé miðað við sama tíma i fyrra
Nýting á gistirými á Hótel Húsavík hefur aukist um 51%
fjóra fyrstu mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra og
útlitið fyrir sumarið er gott. Kom þetta fram í viðtali við
Einar Olgcirsson hótcltjsóra á Húsavík.
Yfirlýsing þessi var borin
fram af fimm fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins, þeim Bjarna
Rafnar, Ernu Jakobsdóttur,
Arna Arnasyni, Inga Þór Jó-
hannssyni og Tómasi Inga
Olrich. Þeir sem studdu málið
úr öðrum flokkum voru Ingólf
ur Árnason og Freyr Ófeigs-
son. Mótatkvæði greiddu
Soffía Guðmundsdóttir, Stefán
Reykjalín, Sigurður Óli Bryn-
jólfsson og Valur Arnþórsson.
Þeir þrír síðastnefndu létu
eftirfarandi yfirlýsingu fylgja
mótatkvæðum sínum: Með til-
liti til þess að tillaga þessi
kemur í kjölfar illa rökstuddr-
ar gagnrýni á Kröflunefnd á
opinberum vettvangi og sam-
þykkt á þessari tillögu nú get-
ur skoðast stuðningur við þá
gagnrýni og þar sem bæjar-
stjórn Akureyrar styður af al-
hug atvinnuuppbyggingu á
Norðurlandi leggjum við til
að málið sé tekið út af dag-
skrá og fyrir tekinn næsti lið-
ur á dagskrá.
Það var Tómas Ingi Olrich
sem fylgdi yfirlýsingunni úr
hlaði á fundi bæjarstjói’nar og
sagði hann meðal annars að
Efnií
blaðinu
í dag:
Sagt frá sumarstarfi
KA í fótbolta
Kjartan Ólafsson
eftir 40 ár á J
sviðinu
Leiðari, auglýsingar
o. m. fl.
hann teldi að framkvæmdirn-
ar við Kröflu gætu orðið próf
steinn á það hvort byggða-
stefnan margumtalaða væri
orðin tóm eða ekki. Hann
sagði að allt benti til þess að
eðlileg grundvallaratriði í við
skiptum hefðu verið virt að
vettugi af Kröflunefnd. Nefnd
in hefði ekki einu sinni kann-
að möguleikana á því hvort
norðlensk verktakafyrirtæki
gætu tekið að sér verkefni við
Kröflu.
Tómas Ingi sagði það hafa
komið fram hjá Kröflunefnd
að það væxú grundvallaratriði
þegar um svo viðamikla fram-
kvæmd sem Kröfluvirkjun
væri að ræða að verktaki nyti
fjái'hagslegs trausts. Ef líta
mætti á nýgerða samninga við
Nú hefur bæjarfógetinn á
Akui'eyri kvartað undan þess-
ari venju, sem hefur skapast
við xollafgreiðslu vörusend-
inga til bæjarins og krafist
þess að breyting yrði á þessu
framkvæmdaratriði og veitti
hann frest til þess til 1. maí.
Óttar Möller forstjóri Eim-
skipafélags íslands skýrði þá
frá því, að eftir þann dag yrði
ekki hægt við óbi'eyttar að-
stæður, að senda aðrar vörur
með skipum félagsins til Ak-
ureyrar, en þær sem áður
hefðu verið tollafgi'eiddar á
löglegan hátt í Reykjavík. Það
fyrirkomulag hefði í för með
sér mikil óþægindi fyrir inn-
flytjendur á Akureyri og tefði
afgreiðslu vörusendinga til
þeirra.
Veitti því bæjarfógetinn
Miðfell h.f. í Reykjavík um
byggingu vinnubúða sem vís-
bendingu um það til hvaða að-
ila verði leitað þegar í sjálf-
ar virkjunarframkv. yi'ði
ráðist, taldi Tómas Ingi vafa-
samt að þetta grundvallarat-
riði nefndarinnar hefði verið
virt: Nýlega bii't klausa í Lög-
birtingabl. um nauðungarupp-
boð á húseign Miðfells virtist
ekki benda til þess að það fyr-
irtæki stæði fjái'hagslega
traustari fótum en önnur verk
takafyrirtæki á íslandi. Tómas
Ingi benti einnig á afleiðingar
þess ef algerlega yrði gengið
fram hjá Akureyri sem þjón-
ustumiðstöð Norðurlands.
Andmælendur tillögunnar
mótmæltu þessu og sögðust
ekki telja það byggðastefnu að
fyrirtæki á Norðui’landi ættu
að sitja fyrir framkvæmdum
á svæðinu. Slíkt væri einokun
sem bæri að forðast. Þess í
stað ætti að leggja megin-
áherslu á fi'jálsa samkeppni
Framhald á bls. 6.
skipafélaginu mánaðar fi’est,
þ. e. til 1. júní, til þess að
finna aðra hagkvæmari lausn
málsins. Er skipafélagið nú á
höttum eftir bráðabirgðahús-
næði, til leigu, þar sem hægt
væri að geyma ótoilafgi'eiddar
vörur þar til byggingafram-
kvæmdum við Akureyrarhöfn
verður lokið og Eimskipafélag
inu sköpuð viðunandi aðstaða
þar.
Hafnarstjórn fjallaði um
tollafgi-eiðslumálið á fundi sín
um fyrir skömmu, og var það
samhljóða álit hennar, að mál
ið sé ljósasta dæmið um það,
hve afar áríðandi það sé að án
tafar verði fengin viðunandi
lausn á málefnum Akureyrar-
hafnar, þannig að löngu
ákveðnar byggingafram-
kvæmdir hefjist nú þegar.
Einar sagði að útlit væri
fyrir að sumargestirnir kærnu
með fyrra móti að þessu sinni
og er búið að panta mikið fyr-
ir maí. Þar á meðal eru 6—700
þjóðvei'jar, sem munu heim-
sækja Húsavík á vegurn Flug-
leiða. Þegar er búið að panta
gistii'ými fyrir nokkra ráð-
stefnuhópa og ef ekki kemur
snöggur afturkippur í bókanir
er full ástæða til að vera bjart
sýnn, sagði hótelstjórinn á
Húsavík.
Innflutningur á Akureyri:
Vörur afhentar
án tollafgreiðslu
Tollgæslan á Akureyri hcfur að undanförnu gert könnun á ó-
tollafgreiddum vörusendingum hjá afgreiðslu Eimskipafélags
ísiands á Akureyri og hcfur komið í ljós að verulegt magn
vörusendinga hefur verið afhent viðtakendum án þess að lög-
boðin toliafgreiðsla hafi farið fram. Þetta er afleiðing af þcirri
lélegu aðstöðu sem skipafélögin hafa á Akureyri til þess að
geyma ótoilafgreiddar vörur. Á undanförnuni árum hafa því
innflvtjendur fengið að taka vörur sínar til geymslu í eigin hús-
næði og varan verið tollafgreidd þar.