Íslendingur


Íslendingur - 08.05.1975, Síða 6

Íslendingur - 08.05.1975, Síða 6
MESSUR Messað í Akureyrarkirkju sunnudaginn 11. maí kl. 2. Sálrnar: 480, 314, 330, 331, 365. Kiwanisfélagar ann- ast bílaþjónustu kirkjunnar, sími 21045 f. h. sunnudag. — P. S. Hcilræði: Gerðu rétt þó him- inninn hrynji, því að „Drott- inn er réttlátur og hefir mæt- ur á réttlætisverkum,“ segir orð hans. (Sálm. 11. 7.) Sæm. G. Jóh. FÉLAGSLÍF Akureyringar. Major Guð- finna Jóhannesdóttir kemur til Akureyrar í næstu viku og talar á samkomu Hjálpræðis- hersins n.k. þriðjudag og mið- vikudag, 13.—14. maí, kl. 20.30 báða dagana. Deildar- stjóri Brigader Óskar Jónsson stjórnar. Verið öll velkomin. Kristniboðshúsið Zíon: Sunnu daginn 11. maí. Samkoma kl. 8.30 e. h. Ræðumaður séra Birgir Snæbjörnsson. Tekið á móti gjöfum til kristniboðsins. Allir hjartanlega velkomnir. Samkoma votta Jehóva að Þingvallastræti 14, 2. hæð, sunnudaginn 11. maí kl. 16.00. Fyrirlestur: Lærum af krafta- verkum Jesú. Allir velkomnir. Nýja bíó sýnir í dag kl. 3 kvik myndina Skíðahótelið, en kl. 5 og 9 verður sýnd myndin Morðin í strætisvagninum með Walter Matthau í aðal- hlutverki. Mynd þessi er hörkuspennandi, ný amerísk sakamálamynd gerð eftir skáldsögu hinna vinsælu sænsku rithöf. Per Wahloo og Maj Sjovall. — Á sunnudag kl. 3 verður Skíðahótelið, en kl. 5 og 9 á sunnudag verður sýnd myndin Hefnd ekkjunn- ar með Raquel Wellch í aðal- hlutverki. Borgarbíó sýnir í dag kl. 5 og 9 myndina Rauð sól með Charles Bronsin, Alan Delon og Ursula Andress í aðalhlut- verkum. Klukkan 3 verður sýnd danska barnamyndin Fimm komast í hann krappan. — Verktakar Framhald af bls. 1. og við val verktaka vægi mest fjárhagsgeta, búnaður og reynsla verktakafyrirtækisins sem fengi verkið en ekki heim ilisfang þess. Þá lögðu þeir áherslu á að þeir treystu því að Kröflunefnd ynni eftir bestu samvisku að lausn Kröflumálsins og þeir yrðu í þeirri trú þar til annað sann- ara reyndist. Tómas Ingi taldi ekkert benda til þess að Kröflunefnd tæki tillit til frjálsrar sam- keppni. Hann mótmælti því einnig að þau tilmæli bæjar- stjórnar Akureyrar að Kröflu- nefnd léti rannsaka fram- kvæmdagetu norðlenskra verk taka, gætu talist ýta undir ein okun. — Veiðileyfi Framhald af bls. 8. rækjan á miðunum á Axar- firði mjög góð, en hins vegar setti hann spurningamerki við það hversu stöðug rækjugang- an á vsæðinu væri. Fyrir skömmu gengu í gildi lög um að sérstakt leyfi þyrfti að fást hjá Sjávarútvegsráðu- neytinu til þess að fá að byggja rækjuverksmiðjur og hafa ýmsir aðilar á norður- landi þegar sótt um slík leyfi. Verður beðið með afgreiðslu á umsóknunum þar til að búið er að veiða á miðunum um skeið. Þórður Ásgeirsson tjáði blaðinu að ráðuneytið vildi fyrst sjá hvernig veiðarnar gengu áður en afstaða yrði tek in til þess hverjir fái að byggja rækjuverksmiðjur. Að spurður sagði Þórður að einn aðili á Húsavík hefði sótt um leyfi, en hins vegar sagði hann að rækjuverksmiðja sú sem nú er í byggingu á Dalvík hefði verið komin það langt á veg þegar lögin um leyfisveiting- arnar gengu í gildi, að verk- smiðjan væri þeim óháð. Pils, nýja síddin. Stærðir 36 — 46. Terylene-kápur. Flauels-kápur. Hiarkaðurinn Sími 1-12-61 TIL 8ÖLIJ: Verslunarhæð og íbúðarhæð að Brekkugötu 9, ásamt eignarlóð. Húsnæðið nýlega uppgert. 6 herbergja íbúð við Gránufélagsgötu. — Hagstætt verð. 4ra herbergja raðhús með bílskúr við Lönguhlíð. 4ra herbergja íbúð viö Þórunnarstræti. 4ra herbergja íbúðir við Oddeyrargötu. 4ra herbergja íbúð við Ránargötu. 4ra herbergja íbúð við Lönguhlíð. 4ra herbergja íbúð við Hrafnagilsstræti. 3ja herbergja íbúð við Skarðshlíð. 3ja herbergja íbúð við Ásveg. 3ja herbergja íbúð við Víðilund. 3ja herbergja íbúð við Krabbastíg. 3ja herergja íbúð við Byggðaveg. 3ja herbergja íbúð við Oddagötu. 2ja herbergja íbúð við Eiðsvailagötu. 2ja herbergja íbúð við Hamarsstíg. Ragnar Steinbergsson, hrl. Geislagötu 5. — Sími 2-37-82. Viðtalstími kl. 5 — 7 e. h. HEIMASÍMAR: RAGNAR STEINBERGSSON, hrl., sími 1-14-59. IÍRISTINN STEINSSON, sölustj., sími 2-25-36. ATVINNA ám Ém Kökubasar. - Slysavarnadeild kvenna Akureyri verður með kökubasar á Hótel KEA n.k. sunnudag 11. maí kl. 3 e. h. Á laugardag, 10. maí, verður hin árlega merkjasala. Félags- konur! Vinsamlega gefið brauð og komið því til hverfis stjóra. Einnig verður tekið á móti brauði á Hótel KEA kl. 1—2 á sunnudaginn. — Nefndin. Takið eftir. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Akureyri, heldur kökubasar í húsi Karlakórs Akureyrar, Laxagötu 5, laug- ardaginn 17. maí kl. 3 eftir há degi. Óskað eftir að aðalfélag- ar, styrktarfélagar og aðrir vel unnarar Sjálfsbjargar gefi brauð og kökur og stuðli með því að haldinn verði stór bas- ar. Kökur og brauð þarf að berast í Laxagötu 5 sama dag frá kl. 9-12. — Basarnefndin. — Spurning Framhald af bls. 8. atriði og ég vona að þessi ákvörðun um þjónustuvenjur Handlæknisdeildarinnar hafi verið endurskoðuð áður en að til þess kemur að við þurf- um að lenda í því að vega og meta áverka slasaðrar mann- eskju og fara inn á heimili vaktlæknis með þann slasaða áður en samþykki fæst fyrir því að senda hann á Slysa- varðstofuna. Akureyringar Athugið oð KJÖRMARKAÐUR vor / Glerárgötu 28 býður vörur með IO°/o afslætti Notið tækifærið Sparið peninga IVIatvörudeild Frá Húsmæðra- skóla Akureyrar Hin árlcga sýning á vinnu nemenda og kal'fisala verður laugardaginn 17. maí kl. 2 —6 e. h. Nemendur skili munum sínum miðvikudaginn 14. maí kl. 7 —9 e. h. Orðsending til 30 ára nemcnda skólans: Verið velkomnar ld. 12 á hádegi þann 17. maí. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 1-11-99 fyrir 14. maí. SKÓLASTJÓRI. Framtíðaratvinna Viljuin ráða 2 laghcnta mcnn nú þegar. Hér er um góða framtíðaratvinnu að ræða. Upplýsingar í síma 2-19-00, deildarsími 51, eða á skrifstofu Heklu. Fataverksmiðjan Itekla AKUREYRI. Knattspyrnu æfingar ÍÞRÖTTAFÉLAGIÐ ÞÓR Meistarafl., mánud., miðvikud., föstud. kl. 7.30. 1. og 2. fl. mánud., miðvikud., föstud. kl. 9.00. 3. flokkur þriðjudaga go fimmtudaga kl. 8.30. 4. flokkur þriöjudaga og finnntudaga kl. 6.00. 5. flokkur mánudaga og miðvikudaga kl. 5.30. 6. f 1., 7 og 8 ára, þriðjud. og fimmtudaga kl. 4.00. 6. fl., 9 og 10 ára, þriðjud. og fimmtud. kl. 5.00. Stúlkur, 11 — 13 ára, þriðjudaga kl. 7.30. Stúlkur, 14 ára og eldri, fimmtudaga kl. 7.30. Þjálfari meistara-, 1., 2., 3. flokks og kvenna- knattspyrnu er Steingrímur Björnsson. 4. og 6. flokks Þröstur Guðjónsson. 5. flokks Páll Jónsson. AHar æfingar verða á Þórsvellinum. Knattspyrnudeild Þórs. 6 - ÍSLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.