Íslendingur - 08.05.1975, Blaðsíða 8
Fræðslukvöld
um garðyrkju
Stjórn Garðyrkjufélags Akur-
eyrar hefur ákveðið að hafa
opið hús á skrifstofu Skóg-
ræktarfélagsins í Glerárgötu
eitt kvöld í viku þar sem fé-
lagsmönnum og öðru áhuga-
fólki um blóma- og trjárækt
gefst kostur á að fá upplýsing
ar um plöntur í íslenskum
gróðrarstöðvum og verð
þeirra. Þar munu einnig liggja
frammi bækur, tímarit og
verðlistar. Var skrifstofan op-
in fyrir þessa starfsemi í
fyrsta skipti milli kl. 8 og 10
í gærkveldi og mun hún verða
opin á sama tíma hvert mið-
vikudagskvöld fram í miðjan
júní.
Þessi nýjung er liður í því
að reyna að auka áhuga al-
mennings fyrir garðyrkju.
Ætlar félagið einnig að gang-
ast fyrir skoðunarferðum í
Lystigarðinn og víðar með
sama markmið fyrir augum.
í Garðyrkjufélagi Akureyr-
ar eru nú á annað hundrað fé-
lagsmenn.
Meyðarbíllinn
kemur í júní
Neyðarbíll norðlendinga er
væntanlegur til Akureyrar í
fyrstu viku júnímánaðar og
er heildarverð bílsins með
öllum tækjum nú reiknað um
5 milljónir króna. Gísli Lór-
enzson starfsmaður Slökkvi-
stöðvar Akureyrar er staddur
í Noregi um þessar mundir til
þess að læra að nota neyðar-
bíla af þeirri gerð sem kemur
til Akureyrar.
Árni Gunnarsson, fréttamað
ur Ríkisútvarpsins, hefur veitt
þær upplýsingar að langt sé
komið að safna fé til greiðslu
á bílnum, en enn vanti herslu
muninn. Upphaflega var gert
ráð fyrir að bíllinn kæmi til
landsins fyrr í vor, en vegna
tafa sem urðu í verksmiðjunni
í Noregi mun afhendingin
dragast fram í júní.
vvvvw
► *** *** ♦
| Vorpróf í fullum gangi
ISvart útlit með sumarvinnu unglinga
y
£ Munnlegum profum í lands-
•I' prófsdeild Gagnfræðaskól-
’f
•> ans a Akureyri er lokið og
•f fyrsta skriflega prófið var
*s* lagt fyrir nemendur á mánu
£ daginn. Að þessu sinni gang
£ ast alls 115 nemendur undir
£ landspróf. — Próf í öðrum
deildum skólans eru einnig
£ i fullum gangi. Um 120 nem
£ endur gangast undir gagn-
£ fræðapróf að þessu sinni og
£ er það svipaður fjöldi og
£ undanfarin ár. Prófum í 1.
£ bekk og gagnfræðadeild lýk-
£ ur fyrir hvítasunnu en lands
£ prófi og prófum í 2. bekk
£ lýkur síðustu dagana í maí.
*•• Skólaslit verða um mánaðar
mótin. Nemendur í Gagn-
fræðaskólanum eru um 630
ialsins.
Ef að líkum lætur er hóp-
ur unglinga sem vill komast
í sumarvinnu að prófum
loknum stór, en samkvæmt
upplýsingum Heiðreks Guð-
mundssonar hjá vinnumiðl-
unarskrifstofunni er útlit
óvenjulega slæmt með vinnu
fyrir unglingana.
— í fyrra var auglýst eft-
ir unglingum í vinnu og
þeim voru boðin sömu laun
og fullorðnum vegna skorts
á vinnukrafti, og bændur
áttu í vandræðum með að fá
unglinga til starfa hjá sér X
yfir sumartímann, sagði X
Heiðrekur. En nú er öldin !•!
önnur og ég held að ástand- *
ið hafi ekki verið jafn svart *
fyrir unglingana frá þvi árið !$!
1970. Ég er þegar búinn að !j!
skrifa niður all langan lista !•!
með nöfnum unglinga sem !•!
óska eftir vinnu, en slíkur !•!
listi varð aldrei til i fyrra. !•!
Og það sem verra er þá spyr !j!
enginn atvinunveitandi eft- !|!
ir vinnukrafti núna og bænd !|!
ur virðast ekki telja ástæðu •••
til að tryggja sér vinnukraft •:•
strax vegna hins mikla fram •:•
boðs. !••
Fyrir skömmu var sú ákvörð-
un tekin að breyta þjónustu-
venjum Handlæknisdeildar
F.S.A. þannig að Slysavarð-
stofa deildarinnar verði lok-
uð á nóttunni og yfir helgar
nema fyrir fólk með alvarleg
veikindi eða fólk sem hcfur
lent í nieiriháttar slysum. Hin
um er bent á Iæknavaktina
og til þess ætlast að hcimilis-
læknar eða vaktlæknar skrifi
út tilvísun ef þeir telji að við-
komandi sjúklingur þurfi á
þjónustu Slysavarðstofunnar
að halda, ep annars vejti þcir
sjúklingum nauðsynlcga þjón-
ustu. Hvaða skoðun hafa þeir
sem annast sjúkraflutninga í
bænum á þcssari ákvörðun?
Tómas Búi Böðvarsson,
slökkviliðsstjóri, svarar:
Ég tel að þarna sé stigið
spor í öfuga átt og fljótt á lit-
ið þá sé ég ekki að hægt sé að
framkvæma þessi atriði. Þau
fela í sér að við sem komum á
slysstað metum hvort hinn
: slasaði sé alvarlega slasaður
eða ekki. Við erum ekki fær-
ir um að gera slíkt mat og
viljum ekki taka á okkur þá
ábyrgð sem því fylgir að segja
til um hvort viðkomandi
sjúklingur eigi að leita til vakt
læknis í heimahúsi eða fara
beint á sjúkrahús til meðfefð-
ar. Það er oft mjög erfitt að
sjá á slösuðu fólki hve alvar-
leg meiðslin eru og áverkar
sjást ekki alltaf utan á. Enn
sem komið er hefur ekki
reynt á þetta framkvæmda-
Framhald á bls. 6.
Tæplega 40 umsöknir um rækjuleyfi
Búið er að veila sjö bátum leyfi til rækjuveiða á Axarfirði og gildir leyfið til 1. júní nk. Af bát-
unum eru 2 frá Ólafsfirði, 1 frá Dalvík, 3 frá Árskógsströnd og 1 frá Kópaskeri. Hér er um
tilraunaveiöi að ræða og áskilur sjávarútvegsráðuneytið sér rétt til þess að afturkalla leyfin
fyrirvaralaust eftir mánaðamótin.
Rækjuveiði á Grímseyjar-
miðum er nú hafin á ný eftir
að svæðinu hafði verið lokað
um tíma vegna fiskigengdar.
Hefur 3 Siglufjarðarbátum
verið veitt leyfi til veiði á því
svæði og verið er að ganga frá
nokkrum leyfum til báta frá
stöðum við Húnaflóa, en ekki
er enn ákveðið hve mörg leyfi
verða veitt á Grímseyjarmið-
in, en þau leyfi eru veitt til
lengri tíma en leyfin á Axar-
firði.
Þórður Ásgeirsson í Sjávar-
útvegsráðuneytinu sagði í við
tali við íslending að alls hefðu
tæplega 40 umsóknir borist til
ráðuneytisins um leyfi til
rækjuveiða við Grímsey og á
Axarfirði. Hafrannsóknar-
stofnunin hefur mælt með því
að 10 leyfi verði veitt á Axar-
firði og verða þau 3 leyfi sem
enn er óráðstafað veitt innan
skamms. Þórður sagði að 6 um
sóknir hefðu borist frá Húsa-
vík, Raufarhöfn og Kópaskeri
og væri þess að vænta að ein-
hverjir af þeim aðilum fengju
leyfi, cn ástæðan fyrir því að
þeir voru ekki með í fyrstu út
hlutuninni var sú að þeir voru
ekki reiðubúnir til að hefja
veiðarnar strax og leyfin
gengu í gildi, þ. e. 6. maí.
Samkvæmt upplýsingum
Ingvars Hallgrímssonar hjá
Hafrannsóknarstofnuninni er
Framhald á bls. 6.
Geir Hallgrímsson kjörinn form.
Gcir Hallgrínisson, forsætis-
ráðherra, var kosinn formaður
Sjálfstæðisflokksins á 21.
landsfundi flokksins á mánu-
dagskvöldið. Hlaut hann 650
atkvæði af 749, sem greidd
voru. Gunnar Thoroddsen var
kjörinn varaformaður flokks-
ins, en hann hlaut 631 atkvæði
af 760 greiddum.
Einnig voru kjörnir 8 menn
í miðstjórn flokksins. Kosn-
ingu hlutu: Birgjr ísleifur
Gunnarsson, Jón Magnússon,
Jónas Haralz, Salome Þorkels-
dóttir, Kalmann Stefánsson,
Geirþrúður Bernhöft, Halldór
Blöndal og Tómas Tómasson.
Þessum 21. landsfundi Sjálf
stæðisflokksins, sem jafn-
framt er sá fjölmennasti til
þessa, lauk á þriðjudagskvöld.
Ferðaskrifstofa Akureyrar
AKUREYRINGAR -
NORÐLENDINGAR!
Söluumboð fyrir
Færeyjaferjuna Smyril.
IiÚSBYGGJENDUR!
Timbur í úrvali. — HAGSTÆTT VERÐ.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
TÓMASAR BJÖRNSSONAR H.F
Glerárgötu 34. — Sími 2-39-60.