Íslendingur - 11.11.1976, Blaðsíða 2
Þessi mynd er tekin af Þórsliðinu í körfubolta á æfingu fyrir skömmu. Stefán Hallgrímsson.
þjálfari liðsins lengst til vinstri á myndinni.
Íslandsmólið í körfubolfta:
Þórsarar sigruðu
íslandsmótið í körfubolta, 2. deild karla, hófst um sl. helgi.
Þórsarar taka þátt í mótinu eins og undanfarin ár og hafa þeir
æft vel að undanförnu undir stjórn Stefáns Hallgrímssonar,
sem áður lék með KR, en hann er fluttur norður og kennir við
Gagnfræðaskólann. Þorsteinn mun einnig leika með Iiðinu og
kemur til með að styrkja það mikið. Þórsarar léku sína fyrstu
leiki um sl. helgi fyrir sunnan og unnu.þá báða. Fyrst Grind-
víkinga sl. laugardag og síðan UMF. Snæfell á sunnudaginn.
Næstu leikir þeirra verða við fsfirðinga 26. og 27. nóvember
hér í íþróttaskemmunni, en liðin leika þá báða Ieiki sína í mót-
inu í Skemmunni, þar sem ísfirðingar hafa ekki löglegan völl á
ísafirði. Næstu leikir Þórsliðsins í mótinu verða síðan ekki fyrr
en í febrúar. Er þetta furðuleg niðurröðun á leikjum lijá Móta-
nefnd KKÍ.
Á laugardaginn léku Þórs-
arar við Grindvíkinga og fór
leikurinn fram í íþróttahúsinu
í Njarðvík. Grindvíkingar
voru annað efsta liðið í 2.
deild íslandsmótsins í fyrra,
en þá léku þeir aukleik við
Breiðablik um sætið í 1. deild
og töpuðu þeim leik.
Þórsarar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og skoruðu 10
Kvennadeild
Styrktarfélags vangefinna á Norðurlandi
heldur sína árlegu skemmtun sunnudaginn 14.
nóvember kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Til skemmtunar:
Ávarp: Séra Bolli Gústafsson.
Söngur: Sigurður Demens Fransson.
Upplestur: Einar Kristjánsson.
Dans: Nemendur úr dansskóla Heiðars Ástvalds-
sonar.
stig ó fyrstu 5 mínútunum á
meðan Grindvíkingar skoruðu
2 stig. Það voru Þröstur, Axel
og Eiríkur, sem þar voru að
verki. Þórsarar héldu síðan 10
stiga forystu framan af leikn-
um, en er líða fór á hálfleik-
inn fóru Grindvíkingar að
saxa á forskotið og í hálfleik
var aðeins 3ja stiga munur
Þór í vil.
Þórsarar héldu þó forust-
unni í síðari hálfleik, komust
mest í 10 stig yfir, en minnst-
ur varð munurinn um miðjan
hálfleikinn, 4 stig. Eiríkur og
Axel tryggðu síðan Þór sigur-
inn með góðum körfum á síð-
ustu mínútunum og lokatöl-
urnar urðu 79-70 Þór í vil.
Stigin fyrir Þór skoruðu:
Eiríkur Sigurðsson 25, Axel
Harðarson 22, Þröstur Guð-
jónsson og Ólafur Gunnarsson
skoruðu 12 stig og Stefán Hall
grímsson og Hjörtur Einars-
son skoruðu 4 stig hvor.
Á sunnudaginn léku Þórsar
ar síðan við UMF. Snæfell frá
Stykkishólmi og fór leikurinn
fram á Akranesi, en þar er
heimavöllur Hólmaranna, þar
sem þeir hafa ekki löglegan
keppnisvöll í Stykkishólmi.
Snæfell féll úr fyrstu deild í
fyrra og má því telja þá lík-
lega í toppbaráttunni í 2. deild
í ár.
Leikurinn var jafn framan
af og um miðjan hálfleikinn
var jafnt, 14-14. Þá náði Snæ-
fell forystu, mest 4 stigum, en
Eiríkur og Hjörtur Einarsson
náðu að jafna og koma Þór
yfir og staðan í hálfleik var
30-28 Þór í vil.
í byrjun síðari hálfleiks
tóku Þórsararnir góðan sprett
og komust í 10 stig yfir er um
10 mín. voru af hálfleiknum.
Síðan fór að 'halla undan fæti
og höfðu Snæfellingar náð að
minnka muninn í 3 stig áður
en leiknum lauk með naum-
um sigri Þórs, 63-60.
Happdrætti.
Kynnir verður Ingimar Eydal.
Miðasala hefst kl. 19.
Axel Harðarson var lang
stigahæstur Þórsaranna. Hann
skoraði 22 stig, Stefán skor-
aði 17, Eiríkur 13, Hjörtur Ein
arsson 9 og Þröstur Guðjóns-
son 2.
Óvænt úrslit i islandsmótinu
2. deild i handbolta
Þórsarar sigrudu
KR-inga 27-21
Þórsarar sýndu stórgóðan
leilr á Iaugardaginn er þeir
sigruðu KR-inga í Laugar-
dalshhöllinni. Leikurinn
var spcnnandi og sýndu
Þórsarar allar sínar bestu
hliðar. Þeim tókst allt og
mörg gullfalleg upphlaup
sáust og stórsigur Þórsara
var staðreynd, 27-21, eftir
að þeir höfðu haft yfir, 15-
10, í hálfleik. fslendingur
sagði í umsögn um leik
Þórs og Leiknis á dögun-
um, að Þórsliðið gæti meira
en það sýndi þá. Þau orð
sönnuðust í þessum leik.
Strax á fyrstu mínútum
leiksins náðu Þórsarar góðu
forskoti og eftir 10 mín. var
staðan 9-3 Þór í vil. Mun-
aði þar mest um frábæran
leik Elíasar, sem skoraði
falleg mörk og átti frábær-
ar línusendingar, sem gáfu
mörk. KR-ingar tóku Elías
úr umferð, en þá komst
Þorbjörn í mikinn ham og
skoraði hann næstu 4 mörk.
KR-ingar skiptu aftur um
varnaraðferð og tóku bæði
Þorbjörn og Elías úr um-
ferð, en maður kemur í
manns stað og nú tók Sig-
tryggur við að skora og
staðan í hálfleik var 15-10
Þór í vil.
Fyrri hlula síðari hálf-
leiks héldu KR-ingar sama
hætti, að taka þá Elías og
Þorbjörn úr umferð, en það
dugði skammt. Óskar átti
góðan leik og skoraði 3
mörk og Sigtryggur var
einnig iðinn við að skora.
Gerðu KR-ingar þá loka-
tilraunina til að jafna met-
in og breyttu enn um varn-
araðferð og spiluðu flata
vörn. Við það juku Þórsar-
ar enn forskotið og voru
komnir 8 mörk yfir, en
KR-ingar skoruðu síðan 2
síðustu mörkin.
Þórsarar eiga allir hrós
skilið fyrir þennan leik.
Engan veikan blett var að
finna, markverðirnir áttu
báðir góðan leik, vörnin
vann vel og barðist af mikl
um krafti og sóknin var
leikin af miklum hraða.
Kom nú í ljós hvaða stefnu
Elías hefur tekið í þjálfun
liðsins og virðist hraðinn
nú vera eit't stefkasta vopn
Þórsliðsins, öfugt við fyrri
ár.
Þorbjörn hefur aldrei ver
ið betri en núna og er hann
að verða ein besta skyttan
í 2. deild. Einnig áttu Elías
og Sigtryggur stórgóðan
leik ásamt Óskari, sem
aldrei hefur verið betri en
í þessum leik.
Mörk Þórs: Sigtryggur 8
(2 v), Þorbjörn 6, Elías 5,
Óskar, Einar og Árni 3
mörk hver.
Mörk KR: Hilmar og Si-
mon skoruðu 6 mörk hvor,
en aðrir mun minna.
H. M. R.
KA tapaði
fyrir Ármanni
KA tapaði þýðingarmiklum
leik gegn Ármanni í Laug-
ardalshöllinni á laugardag-
inn. Leiknum lauk 24-22
Ármanni í vil eftir að þeir
höfðu haft yfir, 12-8, í hálf
leik.
KA-menn byrjuðu leik-
inn mjög vel og komust í
2-0, með góðum mörkum
Ármanns Sverrissonar úr
hornunurn. En Ármenning-
ar jöfnuðu og eftir 10 mín.
leik var staðan jöfn, 3-3.
Síðan skiptust liðin á um
að skora, en er staðan var
6-6 kom mjög slæmur leik
kafli hjá KA og Ármenn-
ingar sigu fram úr og höfðu
skorað 12 mörk gegn 8
mörkum KA í hálfleik.
Liðin skiptust á um að
s’kora í upphafi síðari hálf-
leiks, en um miðjan síðari
hálfleik kom mjög góður
leikkafli hjá KA og er um
10 mín. voru eftir af leikn-
um voru þeir búnir að
minnka muninn í 1 mark,
18-17. Áttu Hörður Hilm-
arsson og Sigurður Sigurðs
son þar mestan hlut að
máli, með mjög góðum leik.
Síðan skiptust liðin á um
að skora og er um 3 mín.
voru eftir af leiknum var
staðan 22-20. Skorar Hall-
dór þá gott mark fyrir KA
og spennan í hámarki. Þá
skorar Björn Jóhannesson
fyrir Ármann og er um 1
mín. var eftir skorar Þor-
leifur fyrir KA og staðan
23-22. Ármenningar eru
með boltann og leiktíminn
að renna út. KA-menn léku
maður á mann, í þeirri von
að ná boltanum og jafna, en
við það slapp laus og skor-
aði besti maður Ármenn-
inga, Pétur Ingólfsson, og
tryggði þar með Ármanni
sigurinn, 24-22.
Ekki er hægt að segja að
leikurinn hafi ‘verið vel leik
inn, sérstaklega af hálfu
KA. Áttu þeir sæmilega
leikkafla, en þess á milli
datt allt niður hjá þeim og
er vitað að þeir geta leikið
betur en þeir gerðu þarna.
Það er spurning hvort þeir
hefðu ekki mátt nota Jó-
hann Einarsson meira í síð
ari hálfleik, en hann er
mjög laginn við að skora
úr hornunum, en þar
reyndu KA-menn lítið sem
ekkert að skora í síðari hálf
leik. Bestu menn liðsins
voru Hörður Hilmarsson og
Sigurður Sigurðsson og Ár
mann Sverrisson átti góða
spretti.
Lið Ármanns er skipað
Framhald á bls. 6.
2 — ÍSLENDINGUR