Íslendingur - 03.06.1982, Síða 2
Hver er maðurinn?
Björn Sigurliðason. Fæddur
14. apríl 1956. Foreldrar:
Sigurliöi Jónsson frá Akur-
eyri og Jóna Aðalbjörns-
dóttir. Matreiöslumaður hjá
KEA og Glæsibæ í 5 ár.
I engingarmaður hjá Pósti
og síma Irá 1972 1981. Ernú
annar eigandi Ferðanestis
við Flugvöllinn. Áhugamál:
Að verslunin gangi sem best.
Ókvæntur.
Guðjón Guðjónsson. Fædd-
ur 13. febrúar 1955. Foreldr-
ar Ciuðjón Gíslason og
Viktoría Sigurðardóttir frá
Keflavík. Gagnfræðingur Irá
Keflavík 1971. Vann við
verslunarstörl á Keflavíkur-
llugvelli Irá 1971 1981. Af-
greiöslumaður í Sportlíf frá
1981. Spilar með I. deildar-
liði K.Á. M;iki: Ingibjörg
Oskarsdóttir. l-iga þau eitt
barn.
ENDURBÆTUR Á BÓKUNAR-
ÞJÓNUSTU FLUGLEIÐA
- Bætt þjónusta við landsbyggðina
Miklar breytingar standa nú
yfir á farskrárkerfi Flugleiða. Er
verið að taka í notkun nýtt kerfi,
svonefnt C'PARS, scm leysir af
hólmi Gabríel kcrfið, scm Flug-
leiðir hafa haft í notkun síðan
árið 1972. Petta nýja tölvukerfi,
sem hjá Flugleiðum hefur verið
nefnt Alex, bætir einkum far-
skrá í innanlandsflugi og bók-
unarþjónustu á landsbyggðinni.
Þct'ta kerl'i auðveldar einnig
íslenskum feröaskrifstofum að
bæta þjónustu við viðskipta-
vini sína.
Farskrárkerfið innanlands
hefur nú verið tölvuvætt. Frá I.
nóvember hafa allar farskrán-
ingar farþega til og frá Reykja-
vík verið framkvæmdar með
tölvu Flugleiða, scm staðsett cr í
aðalskrifstofu á Reykjavíkur-
flugvelli. Þann 3. nóvcmber var
svo skrifstofa Flugleiða á Akur-
eyrarflugvelli tengd að fullu við
tölvukerfið, og fyrirhugaö erað
tengja skrifstofu Flugleiða á
Egilsstijðum, Húsavík og Vest-
mannaeyjum við þetta nýja
kerl’i. Aðrar stöðvar munu svo
lylgja í kjölfarið. Hér er um
gagngerar breytingar að ræða í
vinnubrögðum og þegar fram
líða stundir munu þær koma
bæði lárþcgum, starlsfólki og
lélaginu sjállu til góða. Mcð
tölvuvæðingu farskrár innan-
landsllugs verður farskráning
mun hraðari og öruggari. Sömu
leiðis auðveldar tölvan betri
nýtingu flugvélanna.
Nýja lárskrárkerfið gerir
einnig ferðaskrifstofunum kleift
að tengjast farskrárkcrfi Flug-
leiða. Þegar liafa átta fercSa-
skrifstofur óskað eftir að fá.
Halldór Ásgeirsson
í Rauöa húsinu
Sem kunnugt er hefur opinber
starfsemi Rauða hússins legið
niðri um þriggja viknaskeið. En
næstkomandi laugardag þann
5. júní kI. 16 opnar Halldór
Ásgeirsson sýningu á verkum
sýnum þar.
Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 13. júní og er opin dag-
lega milli ki. 4 og 8.
tölvubúnað og tengjast þannig
Alex. Þetta mun auka bæði
öryggi og hraða í bókunarþjón-
ustu ferðaskrifstofa, hvort sem
er á flug Flugleiða, eða fram-
haldsflug erlendra flugfélaga.
Unnið er að viðbót við kerfið
sem gerir ferðaskrifstofum
kleift að bóka sínar eigin hóp-
ferðir inn á tölvukerfið Alex.
Með þessu nýja kerfi geta því
ferðaskrifstofurnar og afgreiðsl-
ur og skrifstofur Flugleiða um
allt land bókað og staðfest
llutningabeiðinir hvert sem er í
heiminum á örfáum sekúndum.
Áður þurfti slík bókun að fara
símleiðis til farskrárdeildar
Flugleiða í Reykjavík. Þá er
sjálfvirk farmiðaútgáfa í undir-
búningi, en nú eru allir farseðl-
ar handskrifaðir. Hér yrði því
um mikið hagræði að ræða,
bæði fyrir söluskrifstofur Flug-
leiða og ferðaskrifstofurnar.
Aukið samstarf og samvinna ásamt góðum starfsanda einkennir Flug-
leiðir. Fundir forstjóra með starfsmönnum, J»ar sem vandamál eru rædd og
framtíðarverkefni kynnt hafa verið tíðir s.l. tvö ár. Starfsfólk hefir tekið
höndum saman um að bæta og kynna þjónustu félagsins. Hópur starfs-
manna dreifði upplýsingum um starfsemina á Lækjartorgi nýlega. Hér er
Stefán Jónsson flugvélstjóri að kynna sumaráætlun Flugleiða.
INNANLANDSÁÆTLUN FLUGLEIÐA
Laugardaginn I. maí hófst
sumaráætlun innanlandsflugs
Flugleiða. Til llestra staða er
áætlunin svipuð og í fyrrasumar
en til Norðljarðar, Patreksfjarð-
ar og Vestmannaeyja fjölgar
ferðum.
Fimm flugvélar verða notað-
ar til sumaráætlunar innan-
landsflugsins þ.e. fjórar F-27
Friendship og ein Twin Otter
skrúfuþota.
Samkvæmt sumaráætlun inn-
anlandsflugsins verður ferðum
hagað sem hér segir:
Frá Reykjavík til Akureyrar
verða 33 ferðir í viku. Þ.e. fimm
ferðir á dag nema þriöjudaga og
miðvikudaga þá eru fjórar
fcrðir.
l il Egilsstaða verða 16 ferðir í
viku, tvær fcrðir alla daga og
þrjár ferðir á föstudögum og
laugardögum.
Frá Reykjavík til Hal'nar í
Hornafirði, verða fimm ferðir,
llogið alla daga ncma mánu-
daga og laugardaga.
Frá Reykjavík til Húsavíkur
verða sjö ferðir í viku þ.e. Ilug
alla daga vikunnar.
Milli Reykjavíkur og ísa-
fjarðar verða 15 ferðir í viku,
tvær ferðir alla daga og þrjár
ferðir á sunnudögum.
Milli Reykjavíkur og Norð-
fjarðar verða þrjú flug í viku,
laugardaga, mánudaga og mið-
vikudaga.
Til Patreksfjarðar verða
fimm flug í viku. Flogið alla
daga nema laugardaga ogsunnu
daga.
Milli Reykjavíkur ogSauðár-
króks verða sex ferðir í viku.
Flogið alla daga nema laugar-
daga.
Milli Reykjavíkur og Vest-
mannaeyja verða 26 ferðir viku-
lega. Fjórar ferðir alla virka
daga en þrjár ferðir laugardaga
og sunnudaga.
Til Þingeyrar verða þrjár
ferðir í viku, flogið á mánudög-
um, miðvikudögum og föstu-
dögum.
Frá Reykjavík verður einnig
llogið til Færeyja tvisvar í viku á
þriðjudögum og laugardögum.
Þriðjudagsferðin er beint milli
Reykjavíkur og Voga en á
laugardögum er komið við á
Egilsstöðum í báðum leiðum.
Þá verða einnig 50 ferðir frá
Reykjavík til Kulusk í Græn-
landi.
Með Flugfélagi Norðurlands
frá Akureyri,
Flugfélag Norðurlands held-
ur uppi reglubundnu áætlunar-
flugi frá Akureyri til tíu staða
norðanlands og ennfremur til
ísafjarðar og Egilsstaða. Áætl-
anir Flugleiða og Flugfélags
Norðurlands eru samræmdar
þannig að farþegar eiga þess
kost að fá beint framhaldsflug
með Flugfélagi Norðurlands
sem flýgur frá Akureyri til Egils-
staða, Grímseyjar, Húsavíkur,
ísafjarðar, Kópaskers, Raufar-
hafnar, Siglufjarðar, Þórshafn-
ar, Vopnafjarðar, Ólafsfjarðar
og ennfremur milli Ólafsfjarðar
og Reykjavíkur.
Eins og undanfarin ár munu
sérleyfisbifreiðar aka frá flug-
völlum til nærliggjandi byggða-
laga í framhaldi af komu flugs
Flugleiða til ýmissa staða.
ERIKA HOYER
Fædd 12. júní 1900 - Dáin 9. maí 1982
Einatt er erfitt að tala og skril'a
um það sem manni er of skylt,
og liætt er við að tilfinningarnar
ráði of miklu þegar ég skril'a úr
Ijarlægö um löndu mína og
lööiirland. I.andar hennar þar
eru mér þ\ í færari um að
minnast Eriku llöyer I. Ilart-
mann frá Kúrlandi. Þakklætier
mérelst í huga til þessarar konu
og landsins sem hún starlaöi og
bjó í síöustu áratugi ævi sinnar.
Ilún gleymdi aldrei tungumál-
um síns gamla lands. lettnesku,
þýskti og rússnesku. og föð-
urland hennar átti ætíð ríka
hlutdeild í henni. þaö skynjaði
ég auðveldlega og naut þess.
Hún talaði líka dönsku, mál
eiginmanns síns og sonar. auk
heldur íslensku. mál landsins
sem hún fluttist til. þannig að
manni varð Ijóst að málfræðin
er ekki allsráöandi. heldur sam-
kennd. þekking og skilningur á
þeim sem hún umgekkst á
Islandi. Við útför hennar sem
gerö var af l'ólki henni alls
óskyldu skynjaði ég glöggt að
hún var orðin hluti þessa lands
sem hún nú hvílir í, eyfirskri
mold. Fólki með hennar skap-
gerð, sem er heilt og sjállu sér
trútt hvar sem þaö er, finnst
þjöðerni léttvægt og vekur
aldrei andúð annara.
Sumarið I974 var ég svo lán-
samur að eiga þess kost að
heimsækja bróður Eriku til
Riga. Hann sat í fangelsi í 8 ár
að mig minnir og dag hvern
hékk lífhans á bláþræði. En um
þá reynslu talaði hann með
jafnaðargcði þcss manns sem
ekki lætur al trú sinni á frjálst
l.ettland þótt lítil von væri til
þess í nánustu Iramtíö. Þessi
bróðir Eriku cr einnig látinn.
Systkinahópurinn úr svcitum
Kúrlands var dreifður, hin syst-
kinin bjuggu í Leningrad, Hels-
inki og ísrael. Bróðir hennar í
Riga var vel kunnugur landinu
sem hún bjó síðast í.
Húmor Eriku var frjálslegur
og hrífandi og afstaða hennar.
stundum nokkuð hrjúf, til allrar
sýndarmennsku og tilgerðarsvo
sannfærandi því hún kom beint
Irá hjartanu hvort sem hún
mælti á lettnesku, rússnesku.
þýsku eða íslensku. Ævi hennar
var um margt erfið, einkum í
heimsstyrjöldunum eins og
fram kcmur í ágætri bók hcnnar
,,Anna lwanowna". En hún
taldi sig ekki skapaða til sjálfs-
aumkunnar og gat því orðið
landa allra sem kunna að meta
slíka manngerö. Þvíerég þakk-
látur Eriku fyrir að hafa átt þess
kost að kynnast kúrlenskri
konu sem lifði í sátt við bæði
löndin á íslenskri grund.
Úlfur Friðriksson.
KVEÐJA FRÁ VINKONUM
Á hljóðri stundu vort hjartans mál
er helgað minningu þinni,
sem færir vinunum frið í sál
því falslaus voru þín kynni.
Þú fyrirmynd varst þó færir hljóð,
svo fjölvirk til munns og handa.
Þó værirðu stundum vegamóð,
samt varstu jafnt glöð í anda.
Þér erfið var stundum ævitíð
með ör eftir sár í hjarta.
Þú lifðir hvern dag svo Ijúf og blíð.
í listgáf'u perlur skarta.
Á ævinnar morgni sólin seig
í söknuði ástar þinnar.
Er vinurinn eini helsár hneig
í hlýjan laðm brúðar sinnar.
En förunaut aftur Guö þér gaf,
og glöö vildi þakkir gjalda.
Þó leynt bærir sár, þín lund bar af
svo létt, gegnum jarðvist kalda.
Nú opnast þér vina himinn hlýr,
þú hugsun oft þangað renndir.
Ei furða það var, þótt vopnagnýr
oft vekti þér sárar kenndir. j <
2 - ÍSLENDINGUR