Íslendingur


Íslendingur - 09.08.1984, Síða 2

Íslendingur - 09.08.1984, Síða 2
2 Jsleudinaur FIMMTUDAGUR 9. ÁGUST 1984 Bundið slitlag ó aust- ur hluta Víkurskaiðs Endurnýjun lyflœkn ingadeildar FSA Vegakafla þeim, sem fyrirtækið Gunnar og Kjartan h.f. hefur unnið að í sumar. á, samkvæmt samningi, að vera lokiö fyrir fyrsta nóvember. Allt bendir til þess, að verkinu verði lokiö inn- an viku. Mestur hluti vegarins, sem nú hefur veriö lagður, er stofnbraut, sem tengir svokallað- an Leiruveg viö Kaupangssveit, en aðeins óverulegur hluti verks- ins telst til hins eiginlega L.eiru- vegar. Liggur sá kafli frá fyrir- huguðu ræsi viö austurströndina og nær um 200 m til vesturs. Þar fyrir vestan verður byggö ein brú yfir Eyjafjaröará, og veröur hún a.m.k. 120 m löng. Guö- mundur Svarfarson, umdæmis- verkfræðingur, sem lét þessar upplýsingar í té, bætti því við, að ekki væri enn ákveðið, hvort smíði brúarinnaryrði boðin út. Norövestur af noröurenda Akureyrarflugvallar veröur reist 10 m löng brú til þess að tiyggja aðstreymi saltvatns yfir þann hluta Leiranna, sem liggja aust- an Drottningarbrautarinnar. Rannsóknir hafa leitt í Ijós að þar er mest og fjölskrúgast dýra- líf, sem er háð áhrifum sjávarins. í áætlun Vegagerðar ríkisins er vegurinn frá Drottningar- braut um Leirurnar og Vaðla- skóg allt aö Halllandi nefndur einu nafni Leiruvegur. Sá kafli er 2.5 km aö lengd, og er kostn- aður við hann áætlaður 150 milljónir króna, þar með taldar bætur til landeigenda og Skóg- ræktarfélags Eyjafirðinga og brúargerð öll. Hluti þessa vegar, kaflinn um Vaðlaskóg og út að Halllandi, verður boðinn út í nóvember næstkomandi. Raunar verður að telja það rangnefni að kalla þennan veg í heild Leiruveg. Leirurnar voru áður eins konar þjóðbraut, og var þá riðið á svokölluðum „Vöðlum”. Margt bendir til þess, að Vaölarnir séu eitt af elstu örnefnum í firðinum, og hafí Vaðlaheiði verið kennd við þá, svo og Vaðlaþing hið forna. Það er því ekki úr vegi að sá kafli þjóðbrautarinnar, sem ligguryfír Leirurnar hljóti nafnið „Vaðlar”. Það er hvort eð er ónauðsynlegt með öllu að hnýta orðunum vegur, gata, stræti eða braut við veganöfn. Er þessari hugmynd hér með kurteislega komið á framfæri við Eyfirðinga og aðra hlutaðeigandi. Nýlega var lokið gagngerri endurnýjun á Iyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri. Á meóan á framkvæindum stóð, var starfsemi deildarinnar lögð niður að mestu, og fór sá tími saman við sumarleyfi starfs- fólksins. Sjúklingar voru ýmist fluttir á aðrar deildir eða sendir heim. Hér er þó ekki um það að ræða að starfsemi sjúkrahússins sé skert til þess að fá ráðrúm til endurnýjana. Sparnaðarráðstaf- anir ríkisstjórnarinnar og skortur á hjúkrunarfræðingum höfðu þegar orðið til þess að verulegt legupláss var ekki nýtt á sjúkra- húsinu. Það er vesturálma deildar- innar, sem nú hefur verið endur- nýjuð, og er sú álma fyrsti áfangi að endurnýjun sjúkradeildanna. Þessi hluti sjúkrahússins hefir litlum breytingum tekið frá því að það var tekið í notkun árið 1953, og því orðin þörf á úr- bótum. Endurnýjun er veruleg. Deild- in hefur breyst í bjartara og hlýlegra húsnæði. Gildir það jafnt um sjúkrastofur sem um vinnuherbergi starfsfólks. Gluggar hafa verið endur- nýjaðar og halda nú vatni og vindum, sem forverar þeirra ekki gerðu. Inn á allar sjúkra- stofur hafa verið lagðir símar og súrefnisleiðslur. Hurðir hafa verið breikkaðar og er sú ráð- stöfun aðallega gerð vegna sjúkrarúma, sem nú tíðkast breiðari en þegar húsið var byggt. Þó eru sjúkrarúm deildar- innar enn flest af eldri gerð, frá því á sjötta áratugnum. Ragn- heiður Árnadóttir, sem lýsti þessum breytingum fyrir blaða- manni íslendings, gat þess að nauðsynlegt væri að festa kaup á nýjum rúmum. Sjúkrarúm nú- tímans eru að sjálfsögðu meiri háttar tæki, sem létta störf og auka vinnuhagræðingu starfs- fólks stofnunarinnar stórlega, auk þess sem þau eru mun þægilegri fyrir sjúklingana. Eitt slíkt rúm kostar um 70 þúsund krónur og viðeigandi náttborð um 15 þúsund krónur. Að sögn Ragnheiðar Árna- dóttur ríkir almenn ánægja með- al starfsfólks með endur- nýjunina. Þá ber og að geta þess að kostnaðaráætlunin hljóðaði upp á 3.1 milljón króna, en kostnaður verður í raun um 2.8 milljónir og tímaáætlun hefur staðist. Hönnuður verksins var Bjarni Hjaltalín, og hafði hann einnig með höndum eftirlit með framkvæmdinni sem að hluta til var boðin út og unnin af all- mörgum aðilum. Jafnframt því sem lyflækn- ingadeildin var opnuð, var handlækningadeild lokað, og sjúklingum deildarinnar dreift á aðrar deildir eða sendir heim. Fé er hins vegar ekki til, til áfram- haldandi endurnýjunar, og mun því ekki aðhafst þar né í öðrum hlutum eldri byggingarinnar það sem eftir er þessa árs. Eins og komið hefur fram í íslendingi verður byrjað á inn- réttingu geðdeildar á fyrstu hæö tengiálmu nú í haust og verður hún tekin í notkun á næsta ári samkvæmt upplýsingum Matt- híasar Bjarnasonar heilbrigðis- ráðherra. rio Ræstinga- fólk óskast Sjálfstæðisfólk Akureyri Fulltrúaróð Sjálfstœðis- félaganna á Akureyri heldur fund meö Þorsteini Páls- syni, formanni Sjálfstæöis- flokksins, fimmtudaginn 9. ágúst kl. 20.30 í fundarsal Sjálf- stæðisfélaganna í Kaupangi viö Mýrarveg. Fulltrúar eru hvattir til aö mæta vel og stundvíslega. TIO AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Skóladagheimilið Brekkukot Brekkugötu 8, tekur til starfa 1. sept. nk. Þar geta börn á skólaaldri dvalið frá kl. 7.30-17.30. Þau sækja þaðan skóla í heimahverfi sínu, einnig fá þau máltíðir á heimilinu. Auk umönnunar á heim- ilinu fer þar fram kennsla og aðstoð við heima- nám. Upplýsingar fást á Félagsmálastofnun Akureyrar, Strandgötu 19b, sími 25880. Umsóknir þurfa að berast til Félagsmálastofnunar fyrir 25. ágúst nk. Dagvistarfulltrúi. Sumavferð • # í Norðurlandskjördœmi eystra 11.-12. ágúst LAUGARDAGUR 11. ÁGUST Fariö frá Akureyri kl. 10,15 til Árskógssands. Frá Árskógs- sandi kl. 11,00 til Hríseyjar meó fenunni. Tjaldbúöir reistar. Ef veöur leyfir veröur farin hringferð um eyjuna með Hríseyjarferjunni. Kl. 19,00: Kvöidvaka viö varðeld. Sameíginleg griliveisla. Avarp, Þor- steinn Pálsson, form. Sjálfstæöisflokksins. Sögnur og gítar- leikur, Árni Johnsen alþingismaður. Forsöngvari Björn Jósef Amviðarsori. Söngur og leikir fram eftir kvöldi. SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST úr hádegi er fyrírhuguð skoðunarferð um eyna undir leiösögn Bjöms Ölasonar. Brottför stundvíslega kl. 17.30 á sunnudag. Þeir sem æskja fars frá Akureyri aö Árskógssandi láti vita þegar pantað er. Kostnaður fargjald meö ferjunni fram ogtil baka kr. 80, einnig einhver kostnaður vegna grillveislu. Upplýsingar og þátttökupantanir Akureyri: Ölína Jónsdóttir, s. 24211, Einar J. Hafberg, s. 22199, íslendingur, s. 21500. Ólafsfjörður Sigurður Björns- son, s. 62170. Dalvík: Svanhildur Björgvinsdóttir, s. 61162, Trausti Þorsteinsson, s. 61491. Húsavík: Þórhallur AðaF steinsson, s. 41362, Jón Gestsson, s. 41334. Fararsflórar Ólöf Jónsdóttir og Einar J. Hafberg. Helgistund í Hríseyjarkirkju kl. 11,00, séra Kári Valsson. Upp Vinsamlegast tilkynnið þátttöku strax.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.