Faxi - 01.07.1945, Síða 2
2
F A X I
Þórður Helgason
Fáir munu trúa því, sem sjá Þórð
Helgason og eiga tal við hann, að hann
sé orðinn hálfáttræður, svo unglegur er
hann bæði á sál og líkama. En samt er
þetta nú svona. Hann varð 75 ára 17.
júní s. 1., á sjálfum sigurhátíðisdegi
þjóðarinnar, er hún minntist afreka,
sem frelsishetjur hennar frá liðnum öld-
um fengu áorkað með fórnfýsi og þrot-
lausri baráttu fyrir frelsi hennar og
sjálfstæði. Þá, sem þekkja andlega hæfi-
leika Þórðar, skarpskyggni hans á þjóð-
leg vandamál og síungan, fróðleiks-
þyrstan og stálminnugan huga hans,
furðar ekkert á þeirri skemmtilegu til-
högun forsjónarinnar, að láta hann ein-
mitt fæðast þennan þjóðlega merkisdag.
Landsins huldu vættir og heilladísir
vorsins eru sjálfsagt ráðgefandi um nið-
urröðun slíkra atburða. Þórður ann
líka frelsi lands og þjóðar. Það hefi ég
eftir greinargóðum nábúa hans úr
heimasveitinni, að þegar ungmenna-
félagið þar í sveit var að festa rætur og
átti örðugast uppdráttar, sökum skiln-
ingsleysis og vanafestu gamla tímans,
þá hafi það átt góðatn og öruggan
talsmann þar sem Þórður var, enda
hlýtur svo að hafa verið, því enn hefur
hann mikinn og æsku þrunginn áhuga
fyrir hverri nýtilegri hugsun og hverju
drengilegu átaki sem miðar að því að
efla hag lands og lýðs.
Þórður Helgason er Rangvellingur að
annaðhvort fyrir geymslu eða smíða-
hús, eða eitthvað annað. Kostnaðarverð
á hverja íbúð er áætlað af húsameistara
ríkisins 85 þúsund krónur.
Lög um verkamannabústaði eru frá
1935. Með þeim lögum er ákveðin stofn-
un Byggingarsjóðs verkamanna. Sam-
kvæmt þeim geta íbúar kauptúna og
kaupstaða stofnað með sér byggingar-
félög, ef viðkomandi hreppsnefndir og
bæjarstjórnir telja þörf opinberrar að-
stoðar til að bæta úr húsnæðisþörf
manna. Byggingarsjóður lánar bygging-
arfélögunum allt að 75% byggingar-
kostnaðar. Skilyrði fyrir lánveitingum
Sjötíu og fimm óra:
ætt og uppruna. Árið 1900 giftist hann
konu sinni, Gróu Erlendsdóttur, og hóf
búskap í sömu sveit. Eignuðust þau
hjónin 13 mannvænleg börn.
Vorið 1904 fluttist Þórður búferlum
út í Flóa, en þar bjó hann síðan í 31 ár,
eða til þess tíma, er þau hjónin brugðu
búi og fluttust til Keflavíkur til dóttur
sinnar Guðbjargar, er þá var gift Ragn-
ari Guðleifssyni. Hafa þau hjónin ávallt
síðan dvalið í húsi þessa tengdasonar
síns.
Þórður Helgason er óskólagenginn
maður. Á uppvaxtarárum hans þótti
annað hentara við tímann að gera, en
að eyða honum á skólabekk, enda var
þá fátt um skóla í landinu og engir við
hæfi efna-lítils alþýðufólks. En samt
gekk Þórður í skóla. I skóla lífsins og
reynslunnar svalaði hann sinni næmu
menntaþrá. Athyglisgáfan og gott minni
héldust í hendur við að tileinka hon-
um það sem nýtilegt bar á góma í kring
um hann og tómstundirnar, sem oftast
voru af skornum skammti, voru að
sama skapi vel notaðar við lestur góðra
bóka, sem þá munu fyrst og fremst hafa
verið Islendingasögurnar, Fornaldar-
sögur Norðurlanda og Noregskonunga-
sögur, en í þeim fræðum kann Þórður
langa kafla utanbókar. Þá munu rím-
urnar, þjóðsögurnar og tímaritin hafa
átt hauk í horni, þar sem Þórður var.
Auk bústarfa sinna og annarar erfið-
úr sjóðnum eru meðal annars þau. að
bæjarfélag eða ríki sjái viðkomandi
byggingarfélagi fyrir lóðum undir
byggingarnar, að teikningar séu sam-
þykktar af stjórn Byggingarsjóðs, að
húsin séu reist úr varanlegu efni, og í
hvívetna vandað til þeirra. Þegar bygg-
ingarfélag hefur lokið byggingu íbúð-
anna, selur það þær félagsmönnnum,
sem óska að fá þær keyptar, í þeirri
röð, sem þeir gengu í félagið. Kaupandi
greiðir þá 25% af kostnaðarverði húss-
ins, en afganginn fær hann lánaðan til
42 ára, og eru afborganir og vextir af
láninu til samans 4%.
Þórður Helgason.
isvinnu fékkst Þórður ávallt nokkuð við
smíðar, einkum járnsmíðar, enda er
hann verkhagur maður. Enn þá má
heyra hamarinn syngja við steðjann í
smiðju hins hálf áttræða öldungs og í
þeim söng kennir engra ellimarka.
Nú um nokkurt skeið hefur Þórður
verið umsjónarmaðúr barnaskólans í
Keflavík og hefir hann gegnt því starfi
af mikilli skyldurækni og trúmennsku,
þrátt fyrir mjög erfið starfsskilyrði. I
Málfundafélaginu Faxi hefur hann ver-
ið um nokkur ár og er nú formaður
félagsins. Hann er góður ræðumaður og
rökfastur í skoðun. Félagslyndur er
Þórður svo að af ber, og má sem dæmi
upp á það nefna, að enn hefur hann
ekki vantað á einn einasta fund í félag-
inu síðan hann gekk í það fyrir nálega
5 árum og hefur þó félagið á þeim tíma
Byggingarmál kauptúna og kaup-
staða eru einhver mestu vandamál, sem
úrlausnar bíða í framtíð. Fólkinu fjölg-
ar stöðugt við sjóinn, en um leið aukast
húsnæðisvandræðin. Þegar dýrtíð er
mikil eins og nú, er ill-kleift fyrir al-
menning að ráðast í byggingarfram-
kvæmdir eftir venjulegum leiðum, fá
dýr lán í lánsstofnunum, og skuldbinda
sig til að greiða þau á fáum árum. Lágir
vextir og litlar afborganir, sem dreifast
á mörg ár, virðist vera eina tryggingin
fyrir því, að menn geti verið sæmilega
öruggir með að geta haldið húsum sín-
um, enda þótt tekjur rýrni, og fjárhags-
legir örðugleikar vaxi frá því sem nú er.