Faxi - 01.07.1945, Síða 5
F A X I
5
Fró siómannadeginum í Keflavík
1945
Eins og að undanförnu var sjómannadagur-
inn haldinn hátíðlegur í Keflavík 3. júní s.l.
Hátíðin hófst með guðsþjónustu í Keflavíkur
kirkju kl. 11 f. h. Prédikaði þar sér Eiríkur
Brynjólfsson.
Kl. 1,30 safnaðist fólk saman við Ungmenna-
félagshúsið og var þar flutt ávarp dagsins, en
Lúðrasveitin Svanur lék: „íslands Hrafnistu-
menn“.
Var nú gengið í skrúðgöngu inn að höfn.
Þar var sýnd björgun og kappróður.
Frá höfninni var svo gengið að fyrirhug-
uðu skemmtisvæði Keflvíkinga. Þar minntist
séra Eiríkur Brynjólfsson drukknaðra sjó-
manna.
Á íþróttavellinum fór fram knattspyrna
milli Keflvíkinga og Sandgerðinga, einnig
fór þar fram reiptog milli skipverja á m.b.
Kilmir og m.b. Geir.
Sundkeppni og sundsýning fór fram í sund-
lauginni.
Um kvöldið voru skemmtanir í báðum hús-
unum. I Ungmennafélagshúsinu flutti Karvel
Ogmundsson ræðu og voru þar sýndir leik-
þættir, en í Alþýðuhúsinu var kvikmynda-
sýning.
Að lokum var dansað fram eftir nóttu.
fíátíðin var hin ánægjulegasta og var þátt-
takan góð, þó hefði þátttaka sjómanna mátt
vera meiri og hefðu þeir mátt setja meiri
svip á hátíðahöld dagsins.
Skipbrotsmaðurinn kominn að landi í hinum
vatnshelda og þægilega björgunarbúningi.
Sigurður Jónsson, sigu.rvegarinn í stakka-
sundinu.