Faxi - 01.07.1945, Page 7
F A X I
7
Bátar at Suðurncsjum,
er ætla að slunda síldveiðar fyrir norður-
landi í sumar eru flestir farnir, en þeir eru
þessir: Gyllir, Keflavík. Báran, Grindavík.
Keflvíkingur, Keflavík. Bjöminn, Keflavík.
Hólmsberg, Keflavík. Hilmir, Keflavík. Bjarni
Ólafsson, Keflavík. Guðný, Keflavík. Reykja-
röst, Keflavík. Geir Goði, Keflavík. Ingólfur,
Keflavík. Fróði, Njarðvík. Bragi, Njarðvík.
Jón Finnsson, Gerðum. Víðir, Gerðum. Garð-
ar, Gerðum. Guðmundur Þórðarson, Gerðum.
Trausti, Gerðum. Hrönn, Sandgerði.
Nokkrir bátanna eru með hringnætur. Veið-
arfæri þetta er ekki mikið reynt hér á landi,
en hefur hlotið góða dóma. Utgerð með slíkri
nót er ódýrari og ekki eins mannfrek og
gömlu næturnar. Þess má vænta að þær eigi
eftir að riðja sér mjög til rúms hér á landi,
einkum til notkunar á smærri bátum.
Tveir þessara báta eru alveg nýhlaupnir af
stokkunum — á leið í sína fyrstu veiðiför.
Fróði er smíðaður í Dráttarbraut Innri-
Njarðvikur, yfirsmiður Bjarni Einarsson. Fróði
kvað vera mjög svipaður og m.b. Bragi að
stærð og gerð enda gerður af sama manni.
Egill Jónasson o. fl. er eigandi þeirra beggja.
M.b. Reykjaröst er smíðaður i Skipasmíða-
stöð Marselíusar Bernharðssonar, ísafirði.
Báturinn mun vera 50—60 tonn að stærð og
allur hinn vandaðasti. Eigendur hans eru
Helgi S. Jónsson, Margeir Jónsson o. fl.
J.
Nú fyrir skönimu
hóf Þorbjörn Einarsson, Keflavík, nám í
flugi. Hann hefur nú lokið fyrsta námskeið-
inu, en það er í svifflugi. J.
Tveir Keflvíkingar
eru nú komnir heim frá Ameríku, en þar
hafa þeir dvalið eitt ár við framhaldsnám i
verzlunarfræðum. Það eru þeir Arnbjörn
Ólafsson, sem nú hefur tekið við sínu fyrra
starfi á skrifstofu lögreglustjórans og Bjarni
Albertsson, sem vinnur nú við byggingu hrað-
frystihúss er faðir hans og fleiri eiga, en hann
kynnti sér einnig nýjustu tækni í vinnslu
fiskjar með hraðfrystingu í Ameríku. J.
Sýslunefnd Gullbringusýslu
hélt aðalfund sinn 26. júní s. 1. Meðal styrkja
sem samþykkt var að veita úr sýslusjóði árið
1945, var samþykkt að veita til reksturs sund-
laugarinnar í Keflavík kr. 3000,00, til starf-
andi bókasafna í sýslunni kr. 500,00 til hvers,
til Unglingaskóla í sýslunni kr. 500,00 til hvers,
til sjúkrahúsbyggingarinnar í Keflavík kr.
50.000,00, enda taki læknishéraðið við bygg-
ingunni áður en upphæðin er greidd.
R.
Alferð Gíslason
lögreglustjóri í Keflavík, varð fertugur 7.
júlí s. 1.
Gjafir til sjúkrahússins.
Nýlega hefur Guðmundur Kr. Guðmunds-
son og kona hans gefið til sjúkrahúsbygging-
arinnar kr. 2000,00 til minningar um feður
sína.
Einnig hefur Karl G. Magnússon og kona
hans gefið til byggingarinnar kr. 500,00.
Rauðkrossdeild Keflavikur hefur veitt þess-
um gjöfum móttöku og beðið blaðið að færa
gefendum þakkir fyrir.
Hlutabréf Útgerðarfélags Keflavíkur h. f.
eru nú afhent daglega á skrifstofu Sjúkra-
samlags Keflavíkur. Þeir sem ennþá hafa
ekki vitjað þeirra, ættu að gera það fyrir
15. þ. m.
Jónína Guðjónsdóttir,
form. Kvennadeildar Slysavarnafél. Keflav.
varð fimmtug 11. júlí s. 1. Jóna, eins og flestir
kalla hana, er Keflvikingur að góðum kunn,
sakir margháttaðra menningar og mannúðar-
starfa, einkum þó á sviði félagsmálanna.
Um langt skeið fékkst hún hér við smá-
barnakennslu, auk þess sem hún þá um leið
var handavinnukennari við barnaskólana.
Fórust henni þau störf prýðisvel úr hendi,
enda muna þau hafa látið henni mjög vel.
Hún hefir verið gæzlumaður barnastúkunnar
hér um langt skeið, ásamt systir sinni Guð-
laugu kennara. Hefir stúkan blessast og
blómgast undir forsælli og kærleiksríkri
stjórn þeirra systra. Jóna á sæti í barna-
verndarnefnd Keflavíkur, sem hefir verið
vandasamt starf nú að undanförnu. Auk þess,
sem hér er drepið á, hefir Jóna hlúð að og
aukið ýmislegt það sem horfir til heilla hér í
Keflavík og þó alveg sérstaklega það, sem
varðar málefni æskunnar.
H.
Einn af þeim, sem lék í Skugga-Sveini í
vetur, og hlaut af mikla hylli — jafnvel vott
af frægð — og það ekki að ástæðulausu, var
að lesa lofsamleg ummæli A. G. um hátíða-
sýninguna „Mjallhvíta móðir“. Þar las hann:
„----Jón Þórarinsson náði svo góðum tökum
á sínu hlutverki, að óhætt er að fullyrða, að
betri leikur hefur ekki verið sýndur hér í
Keflavík af innanbæjarmanni — og þótt lengra
væri jafnað.----“ Þegar hér var komið lestr-
inum varð honum að orði: Skyldi hann ekki
telja mig innanbæjarmann ennþá, bannsettur,
og er ég þó búinn að borga útsvarið.
F AXI
Blaðstjóm skipa:
Hallgr. Th. Bjömsson,
Jón Tómasson,
Ragnar Guðleifsson.
Blaðstjóm ber ábyrgð á blaðinu og
annast ritstjóm þess.
Afgreiðslumaður:
Ragnar Guðleifsson.
Verð blaðsins i lausasölu kr. 2,00.
Faxi fæst í Bókabúð KRON, Reykja-
vik, og verzlun Valdimars Long,
Hafnarfirði.
Alþýðuprentsmiðjan hi.
Kaup verkamanna í Keflavík og Njarð-
víkum frá 1.—31. júlí 1945.
Almenn vinna. (Grunnkaup kr. 2,40.)
Dagvinna ......... kr. 6,60
Eftirvinna ........... — 9,90
Nætur- og helgidagavinna.. — 13,20
Skipavinna. Útskipun á nýjum fiski.
(Grunnkaup kr. 2,65.)
Dagvinna ......... kr. 7,29
Eftirvinna ........... — 10,92
Nætur- og helgidagavinna . . — 14,58
Skipavinna o. fl. Upp- og útskipun á
kolum, salti og sementi. Kolavinna og
sementsinna, hleðsla þess í pakkhúsi
og samfelld vinna við afhendingu
þess. (Grunnkaup kr. 2,80.)
Dagvinna .................. kr. 7,70
Eftirvinna ................. — 11,55
Nætur- og helgidagavinna .. — 15,40
Kauptrygging. Ef unnið er á vöktum í
hraðfrystihúsum og niðursuðuverk-
smiðjum. (Grunntrygging kr. 480,00.)
Á mánuði ................ kr. 1320,00
Hlutartrygging. (Grunntrygging á
mánuði kr. 325,00.)
Á mánuði (maí) ........... kr. 890,25
(Vísitala í júní 274.)
Frá 20. maí til 30. sept. skal dagvinnu
lokið kl. 12 á hád. á laugardögum. Á
þessu sama tímabili skal heimilt að
hefja vinnu kl. 7.20 árd., og greiðist
venjulegt dagvinnukaup fyrir þá
vinnu. Oll vinna, sem innt er af hendi
eftir hád. á laugardögum á fyrrgreindu
tímabili, skal greidd með helgid.kaupi.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur.