Faxi - 01.07.1945, Side 8
8
F A X I
ÞORSTEINN ÞÓRÐARSON skipstjóri á m.b.
Faxa, var aflakóngur Sandgerðinga vetrar-
vertíðina 1944.
17. júní kepptu 1. fl. úr Fram og 1. fl.
úr Knattspyrnudeild U.M.F.K. Veður
var hið ákjósanlegasta, en völlurinn svo
háll, að varla var stætt á honum. Þetta
kom sérstaklega illa niður á Frammar-
ana, sem eru vanir að spila á malar-
velli, sem verður sjaldan eða aldrei
háll. Þrátt fyrir þetta, var leikurinn
nokkuð góður og sýndu báðir aðilar
mörg vel uppbyggð upphlaup, þó og sér-
staklega Keflvíkingarnir. Áttu Kelfvík-
ingarnir völ á marki og kusu að leika á
efra markið. Hófu Frammarar strax
sókn úr miðju, sem brátt var hrundið
af hinni ágætu vörn Keflvíkinganna,
sem er aðalkjarninn í liði þeirra. Gekk
nú á ýmsu þar til Rósi, eftir prýðilega
gott upphlaup, gaf bolltann inn fyrir
bakverði, þar sem Bóbó tók við honum
og skoraði mark með vinstrifótar skoti.
Endaði fyrri hálfleikur því með 1:0,
Keflvíkingum í hag. Þegar síðari hálf-
leikur hófst, kom strax í ljós, að Kefl-
víkingar höfðu mikla yfirburð. Lá bolt-
inn yfirleitt á vallarhelmingi Frammar-
anna. Þrátt fyrir það tókst Keflvíking-
um ekki að setja mark og munaði þó
oft mjóu, enda var spenningur áhorf-
enda mikill. Gerðu Keflvíkingarnir
GARÐAR GUÐMUNDSSON var aflakóngur
Sapdgerðinga síðastliðna vetrarvertíð. Hann
var skipstjóri á m.b. Víði, G. K. 510 og aflaði
1700 skpd. M.b. Víðir er 26 rúmlestir að stærð.
Garðar Guðmundsson er 27 ára gamall og
hefur verið formaður síðastliðin 3 ár. Hann
er sonur Guðmundar Jónssonar útgerðar-
manns frá Rafnkelsstöðum i Garði, eiganda
m.b. Viðis.
mörg góð og hættuleg upphlaup, en þau
báru ekki árangur og var það mikið
hálkunni að kenna. Þegar upp í mark
er komið, þurfa menn að vera afar-
snöggir og viðbragðsfljótir, ef þeir eiga
að ná skoti á markið. En ef einhver ætl-
aði að vera viðbragðsfljótur, endaði það
þannig, að hann lá flatur á jörðinni.
Þegar nokkuð var liðið á seinni hálf-
leik, hófu Frammarar upphlaup á
vinstri kanti. Hægri framvörður Kefl-
víkinganna gerði þá árás á malminn,
sem hljóp með bolltann upp, en hún
bar ekki árangur. Hægri bakvörður
varð þá að gera aðra árás á manninn,
svo að ekki yrði vaðið með bolltann
upp í mark. En við það opnaðist svæði
fyrir framan mark, og þegar bolltinn
var gefinn fyrir, skoraði einn úr fram-
línu Fram mark. Færðist nú mikill hiti
í leikinn. Hóf tríó Keflvíkinganna strax
upphlaup, sem leit út fyrir að verða
hættulegt, en var stöðvað á síðustu
stundu. Endaði leikurinn þannig. Lið
Keflvíkinganna er yfirleitt gott. Vörnin
er hörð og enginn hægðarleikur að kom-
ast í gegnum hana. Framverðir og bak-
verðir dekkuðu vel. Framlínan er einn-
ig sæmilega góð, þó vildi það brenna
við að kantmenn gáfu boltann ekki
nógu snemma fyrir markið, þar sem
aðalatriðið er, að bolltinn sé gefinn rétt
fyrir framan tríóið, þegar upphlaup
stendur sem hæst, af því að þá hafa
mótstöðumenn engan tíma til þess að
dekka.
Með Fram kepptu tveir meistara-
flokksmenn og er annar talinn vera
bezti maður í meistaraflokki Fram.
CB A
FRÁ HREPPSNEFND KEFLAVÍKUR
Hreppsnefnd Keflavíkur hefur nýlega
lokið við niðurjöfnun útsvara. Var að
þessu sinni jafnað niður kr. 869.495,00 á
538 gjaldendur. Árið 1944 var jafnað
niður kr. 774.800,00
Hér fara á eftir hæstu útsvörin 5 þús.
og yfir:
Albert Bjarnason, útg.m..... 6850,00
Bræðslufélag Keflavíkur .... 20000,00
Björninn h.f.................... 7000,00
Dráttarbraut Keflavíkur h.f. 28740,00
Eggert h.f...................... 7000,00
Eyjólfur Ó. Áöberg, kaupm. 6180,00
Geir goði h.f................... 5500,00
Guðfinnur s.f................... 7595,00
Guðm. Kr. Guðmundss. sk.stj. 9930,00
Hólsberg h.f.................... 5000,00
Hraðfrystihús Keflavíkur h.f. 20395,00
Hraðfrystihús Keflavíkur h.f. 15380,00
ísfélag Keflavíkur.............. 7160,00
Jóhann Guðnason, kaupm. . . 9500,00
Jökullh.f....................... 8000,00
KRON, Keflavík.................. 9500,00
Keflavík h.f................... 23035,00
Keflvíkingur h.f................ 7000,00
Nýja bíó s.f................... 11930,00
Ólafur S. Lárusson, útg.m. . . 6340,00
Ólafur Magnússon s.f............ 6955,00
Sigurbjörn Eyjólfsson, útg.m. 8835,00
Sverrir Júlíusson, forstjóri . . 7125,00
Þorsteinn Þorsteinsson, verzl. 7150,00
Ólafur E. Einarsson h.f........ 32700,00
Tekjur og gjöld Keflavíkurhrepps
árið 1945 eru áætluð þannig:
Tekjur:
Hreppsvegagjald ............... 2.000,00
Húsaleigur ................... 10.000,00
Skemmtanaskattur.............. 18.000,00
Fasteignaskattur.............. 25.000,00
Útsvör ...................... 869.495,00
Samtals kr. 924.495,00
Framh. á bls. 9.
From — U.M.F.K. 1:1