Faxi - 01.07.1945, Síða 9
F A X I
9
Hefur hreppsnefndin leyft það?
Margt óánægðra manna hefur átt tal
við mig varðandi ágengni búpenings
hér í Keflavík. Fljótt álitið virðist það
nokkuð kátlegt, að hér, þar sem allir
eiga allt sitt undir þeim gula úr hafinu,
skuli kindur og hestar verða til að
angra almenning. En frá því snemma í
vor hefur maður séð lambær fara um
göturnar í hópum.
Það er gaman að horfa á leik lamb-
anna um græna og gróna velli og hl'íðar,
en þeirrar gleði nýtur maður ekki af
að horfa á lemstruð lömb eða lærbrotn-
ar rollur hökta hjálparvana á hrjúfum
götunum, leitandi að afdrepi og grastó.
Komizt þær inn í túnblett, matjurta-
garð eða blómabeð gera þær ómetan-
legt tjón. Þær hljóta svo fúkyrði og
grjótkast — ekki að verðleikum heldur
af skiljanlegum ástæðum. — Einn mað-
ur hafði t. d. þrjú kvöld í röð komið
fyrir blómaplöntum í garði sínum, en
ekkert séð eftir af þeim að morgni.
Efnilegar trjáplöntur voru nagaðar og
bitnar hjá öðrum.
Einn átti tvö gulrófubeð í fyrra sum-
ar. Rófurnar döfnuðu vel og þegar leið
á sumarið, gerðist eigandinn all ræðinn
út af þessum sæta ávexti, enda varð
hann oft til bragðbætis á borðum hans.
En svo skeði ólánið. Einn morguninn
þegar hann kom á fætur, sá hann aðeins
í gula strúbana — bara blá halarnir
eftir.
Þetta er alvarlegra mál en svo, að
að verði hlegið. Tjónið getur orðið ómet-
anlegt, auk brostinna vona um bústaða-
prýði af blómum og laufguðum grein-
um.
En sökina ber ekki sauðkindin, held-
ur sá er hana á — kann að vera léleg-
um girðingum um að kenna stundum —
en í öllu falli eiga ekki kindur að vera
á almannafæri inni í þorpunum.
Og sama er að segja með hestana.
Þeir eiga ekki skemmtilega æfi hér.
Meiri hluta æfinnar eru innveggir sorp-
tunnunnar þeirra sjóndeildarhringur.
Vitað er um hesta, sem gleipt hafa ó-
þverra í tunnunum og hlotið af bráðan
bana. Einnig er stór hætta á, að stóðið
grandi börnunum, er það 'þeisiir tryllt
um göturnar undan bílum.
í lögreglusamþykkt fyrir Gullbringu-
sýslu, sem gefin er út af dómsmálaráðu-
neytinu 14. júlí 1943, segir meðal ann-
ars svo í 25. gr. . . . Enginn má, án sam-
þykkis hreppsnefndanna, hafa sauðfé
heima í löndum hreppanna eða innan
kauptúnanna á tímabilinu frá 20. maí
til 20. september ár hvert, nema í fjár-
heldri girðingu, eða svo öruggri gæzlu,
að ágangur á land annarra geti ekki af
hlotizt.
Enginn má láta hross ganga laus í
landi hreppanna, nema í gripheldri girð-
ingu sé. Sama gildir um nautpening . . .
Og svo hljóðar 26. gr.:
Ef búpeningur skríður eða stekkur
fullgildar girðingar, skal sá er fyrir
tjóni verður aðvara eiganda eða um-
ráðamann slíks ágangspenings um að
gæta hans. Ef ágangspeningur gengur
þanng til skemmda á girt land oftar en
tvisvar, þrátt fyrir aðvaranir til um-
ráðamanns peningsins, má selja pening-
inn á opinberu uppboði, og greiðist
af uppboðsandvirðinu allur kostnaður
og bætur fyrir tjón, sem af ágangi hefur
hlotizt, samkvæmt reikningi landráð-
anda, en verði ágreiningur um hann,
skulu úttektarmenn meta tjónið.
Gildar skulu fégirðingar teljast, sem
eru styrkhæfar samkv. reglum Búnað-
arfélags Islands að öllum frágangi. Ef
ágreiningur rís um það, hvort girðing’
sé fullgild, skulu úttektarmenn hrepps-
ins meta, hvort hún sé það. Allan kostn-
að við handsömun og varðveizlu sauð-
fénaðar eða annars búpenings greiðir
eigandi þess.
Þessar tilvitnanir til reglugerðarinn-
ar set ég hér til að gera eigendum bú-
penings ljóst, að þeir eiga töluvert á
hættu með því að hafa fénað sinn hér
á götunum, ekki síður en þeir sem eiga
fallega garða.
En samkv. 25. gr. hlýtur hreppsnefnd-
in að hafa leyft að búpeningur gangi
umhirðulaus um götur Keflavíkur, eða
þá að lög þessi eru ekki nægjanlega
kunnug almenningi og þeirra ekki gætt
sem skyldi.
Eg veit að það muni vera erfitt fyrir
Keflvíska búpenings eigendur að gæta
fjár síns, þar sem þeir hafa ónógar
girðingar og ekki mun léttari varzlan
hjá utansveitarmönnum, er eiga hross
sín í öskutunnunum. Þess vegna þurfa
bændurnir að hafa samtök um að koma
fé sínu á fjöll. Sé ekki um það að ræða,
þá er tilveruréttur bústofnsins enginn
og lóun hjarðarinnar óumflýjanleg.
En þetta er mál sem marga skiptir á
einn eða annan hátt og verður að fást
sæmileg lausn svo fljótt sem unnt er.
J.
FRÁ HREPPSNEFND KEFLAVÍKUR
Framh. af bls. 8.
' Gjöld:
Fátækraframfæri ............ 60.000,00
Elli- og örorkubætur...... 34.000,00
Menntamál .................. 45.000,00
Sveitarstjórn .............. 40.000,00
Sýslusjóðsgjald ............ 11.000,00
Hreppsvegirnir ............. 50.000,00
Holræsi- og vatnsveita .... 85.000,00
Bréfaútburður.................. 600,00
Gatnalýsing . . . •.......... 1.000,00
Viðhald fasteigna........... 20.000,00
Löggæzla ................... 50.000,00
Sundlaugin .................. 8.400,00
Sorp- og salernahreinsun . . 45.000,00
Lestrarfélag Kelfavíkurhr. 1.000,00
Heilbrigðismál.............. 10.000,00
íþróttavöllur................ 5.000,00
Barnaskólinn .............. 100.000,00
Sjúkrahúsið ................ 30.000,00
Byggingarfélag verkamanna 10.000,00
Brunamál ................... 10.000,00
Vatnsbólin .................. 2.000,00
Afb. og vextir af skuldum .. 75.000,00
Hafnarbætur ............... 100.000,00
Sjúkrasamlag Keflavíkurhr. 32.000,00
Úthl. úr skemmtanaskattssj. 5.000,00
Ýms gjöld................... 94.495,00
Samtals kr. 924.495,00
Suðurnesjamenn!
Muniið að Faxi er balð ykkar allra.
Útbreiðið hann og sendið honum
greinar um him margháttuðu á-
hugamál ykkar.