Faxi

Volume

Faxi - 01.06.1949, Page 1

Faxi - 01.06.1949, Page 1
5.—6. tbl. 9. ár Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík Júní 1949 # VefrarverfíSiri 1949 sælust voru. Fiskurinn gekk þó einnig á grunnið og veiddist vel 'á opna háta upp í landsteinum, einkum út af Garðinum. Netjabátar áttu erfitt með að athafna sig sökum illviðra, enda gekk þorskurinn ekki inn í flóann eða undir Stapann og var því rir vetrarvertíð innanbugtar. í Grindavík kom 'hinsvegar mjög snörp „hrota“ af netjafiski og færði hiut þeirra ágætlega fram. Vetrarvertíðin 1949 er nú liðin. Eins og ávallt áður, gerðu menn sér góðar vonir í vertíðar byrjun, um fengsælt „úthald“. Menn töldu jafnvel ýms náttúru fyrirbæri benda til að svo yrði — eða a. m. k. að þorskurinn mundi ekki láta sig vanta, að þessu sinni. Mikill þungi var því lagður í að fá sem flest fley á flot. Jafnvel menn sem aldrei höfðu fengist við útgerð leigðu sér báta og fóru að gera út, og gömlu út- gerðarmennirnir bættu gjarnan við sig. Og sannarlega var mikil fiskgengd þeg- ar bezt lét. Að vertíðarlokum verður þó séð að betra hefði verið að sum förin hefðu staðið í naustum, með tilliti til útgerð- armannsins — en þjóðarihagur er það að halda sem flestum skipurn úti, jafnvel þó að rekstrarreikningur þeirra sýni ekki tekjuafgang. Vertíðin getur sennilega ekki talist með- alvertíð almennt, þó að sumir bátar og e. t. v. surnar verstöðvar séu með meiri afla en nokkru sinni fyrr. En ekki verður útgerðarmönnunum kennt um það og líklega ekki heldur þorskinum — en veðurfar var sérlega stirt, næstum því hvern einasta dag vertíðarinn- ar og sjóveður því sjaldan notadrjúg þó að róið væri og margir landlegudagar. Það voru hrein frátök og því betra en „bræð- ings“ veðurfarið, sem oft lokkar menn á sjóinn þó hljótist sjaldan gott af. Það varð því lítið um sjóslys eða hrakninga á þess- ari vertíð og fáir bátar sem fengu slæm áföll. Linutap var nokkurt, einkurn í Sand- gerði, en það var mikið af völdum erlendra togara, sem fóru mjög illa með línur þeirra. Veiðarfæra tjón a'f þessum sökum ætti ek’ki að þekkjast og þyrfti ekki að vera til ef hæfilegar varnar ráðstafanir væru gerðar. Auk þess hröktu togararnir línubátana af þeim djúpmiðum, sem fisk- Óttast var í vertíðarbyrjun að beituskort- ur yrði, en svo varð þó ek'ki. Til úrbóta kom vetrarveidd síld frá Akureyri, sem er ótítt, og svo dálítið af síld frá Noregi, en einnig veiddist loðna dálítið. Loðnan gekk inn í Ósabotna, að þessu sinni, og varð það mikil búbót fyrir Hafna- menn, en útgerð þar liefur næstum alveg fallið niður. Bátarnir á Keflavíkurliöín.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.