Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.06.1949, Qupperneq 10

Faxi - 01.06.1949, Qupperneq 10
10 F A X I Skrúðgarðurinn Svæðið ofan Suðurgötu að Sólvallagötu annarsvegar og milli Skólavegar og Tjarn- argötu 'hinsvegar, er á skipulagsuppdrætti Keflavíkur ætlað undir skrúðgarð. Að vísu takast af því Jóðir, önnur fyrir sjúkrahúsið, hin fyrir væntanlega hygg- ingu við Tjarnargötu. Svæði þctta er að vísu nokkuð lítið, en :þó nógu stórt til þess að verða friðsæll og aðlaðandi garður, ef hann yrði smekklega skipulagður og vel hirtur. A síðastliðnu vori var sérstök nefnd skipuð til þess að sjá um að þessi hug- mynd kæmist í framkvæmd, og til fjáröfl- unar sér hún um skemmtanir 17. júní ár hvert, ásamt fulltrúum allra starfandi fé- laga í Keflavík. Agóðanum, sem kann að verða af há- tííðahöldunum þennan dag, á að verja til þess að rækta garðinn og prýða. Fé það, sem safnast hefur á þennan hátt og nefndin hefur yfir að ráða, er að sjálfsögðu ekki mikið, en hún hefur þó í hyggju að hefjast 'handa um framkvæmdir nú á þessu vori, og þó svo væri, að hún ■hefði þegar skipulagt allar framkvæmdir vildi ég mega leggja fram eina tillögU nefndinni til umhugsunar, og styðst hún við eftirfarandi: I 'byggð, þar sem land er jafn gróður- lítið og hér í Keflavík, er skrúðgarður eigi aðeins gróðurreitur til yndis þeim, er hann gista hverju sinni, 'hann þyrfti líka að verða til þess að vekja hjá okkur áhuga fyrir því að færa gróðurinn heim að hí- 'býlurn okkar, vekja hjá okkur á'huga fyrir meiri ræktun blómjurta og trjáa. En til þess að beztur árangur náist, þurfum við að fá börnin í lið með okkur, þau eru 'hin komandi kynslóð, og því er tillaga mín þessi: Leitað sé til skólastjóra barnaskólans og sé það athugað hvort eigi eru möguleikar á því, að börn barnaskólans, t. d. efsti eða 2 efstu bekkir skólans gróðursetji þær plöntur, er gróðursetja á hverju sinni, und- ir umsjón sérfróðs manns. Yrði þeim síðan falið að sjá um plöntur sínar og fylgjast með þroska þeirra. Þannig yrðu börnin virkir þátttakendur í íköpun skrúðgarðs- ins. Er það skoðun mín að slík tilhögun Vorið og æskan Nú er blessað vorið komið. Vorið, sem við þr'áum svo heitt, allan veturinn. Það er vissan um vorið ,sem hjálpar okkur til að þreyja af veturinn. Undir eins og sólin fer að hækka á lofti, hækkar hugur okk- ar. Við erum svo ótrúlega bundin veðr- áttunni og umhverfinu almennt. Þegar gengið er úti á heiðum vorkvöld- um, þegar dagur og nótt eru að fallast í faðma, þá fer ekki fram hjá neinum, að áhrif komandi sumars streyma inn í huga manna. Fyrst og fremst er það blessuð birtan, þá vor'boðarnir kæru, farfuglarnir, gróandinn og angan jarðar. Þá fer ekki fram hjá neinum, að fólkið klæðist léttari fötum og skreytir sig eftir því sem tízkan býður. Svo er það blessuð æskan, ímynd vorsins, sem heillar þá sem eldri eru. — Núhafa staðið yfir fermingar. Fjöldi æsku- manna gengur út í lífið með vor í augum og von lí hjarta. Vorið gefur unglingunum trú á lífið og allt sem fagurt er og gott. Þeim finnst að þeir þurfi nú síður en áður stuðnings pabba og mömmu, þau séu orð- in fullorðið fólk. En aldrei þurfa þau eins og nú, styrk og aðstoð þeirra eldri. Þegar barnið gengur fyrsta skrefið, rétt- ir það ifram hendurnar eftir aðstoð, og auð- vitað er því bjálpað. I raun og veru er nú dálítið líkt með fermingarbarninu og barn- inu, sem stígur fyrsta skrefið sitt. Ferm- ingarbarnið segir skilið við bernsku sína mundi mjög auka áhuga komandi kyn- slóða fyrir ræktun blóma og trjáa. Auk þess sem viðurkennt er, að fá störf eru betur til þess fallin að vekja hjá börnum lotningu fyrir lífinu og öllu því sem fag- urt er, — og hafa þroskandi og göfgandi áhrif á uppeldi þeirra. R. G. og stígur fyrstu skrefin sjálfstætt út í Ijf- ið. — En 'kæra 'barn! Treystu þér ekki um of! Réttu pabba og mömmu hendurnar, og vertu viss að þau munu ‘hjartans gjarn- an ganga við hlið þína og vísa þér á rétta leið til hamingjunnar. Ur því við minnumst á hamingjuna, skulum við hafa það hugfast um leið að 'hamingjan er fólgin lí heilbrigðu líferni. Meðan við erum á æskuskeiði erum við ör og væntum mikils af lífinu, hættir jafn- vel til að vera of kröfuhörð. En smám saman lærum við að sjá hlutina 1 réttu Ijósi og meta þá samkvæmt því. Kæru ungmenni! Þið, sem eruð að ganga ykkar 'fyrstu skref út í lífið. Mætti ætíð vera vor í hugum ykkar — eilíft vor, þrungið gróanda, birtu og yl. Inga S. Pálsd. Mæft um Keflavík I Keflavík er kátt á hjalla. Kærast væri mér að falla, þar að hinnsta banablund. Þangað 'kom ég örsnauð alveg, yndi bæði og hvíld þar fann ég, og marga góða gleðistund. Rannveig Guðnadóttir. Á ferð í myrkri fri! Keflavíkur KeflaiVÍkin kæra mín, ‘hvað þú ert nú fögur. Litskrúð mynda ljósin þín í lilju bundið kögur. Andrúmsloftið 'hreinsast hér. Hlýtt um vanga strýkur hafgolan, — ég hraða mér heim til Keflavíkur. Rannveig Guðnadóttir.

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.