Faxi - 01.01.1950, Blaðsíða 1
Vetrarvertíðin 1950
Höfnin í Keflavík eins og hún er í dag.
Göniul mynd frá liöfninni í Kcflavík.
LANDS8ÚKASAFN
Jft ■ 8 1.008
TsTXnTTs
Vetrarvertíðin er nú hafin á Suðurnesj-
um, nokkrir róðrar þegar farnir og afli
hefur verið allgóður.
Nokkur tvísýna var um útgerðina i ver-
tíðarbyrjun og kom það til út af samning-
um um verðtryggingu, þeim lyktaði með
því að ríkisstjórnin samþykkti að hækka
tryggingarverð þorskins úr 65 aurum í
75 aura pr. kg., miðað við slægðan, óhaus-
aðan þorsk og annað fiskverð hækkar hlut-
fallslega. Lifur er einnig verðtryggð að
þessu sinni með kr. 1,30 pr. lítir og er
það gert með tilliti til þess verðhruns,
sem varð á lýsi síðastliðið sumar. Hrogn
eru hinsvegar hagnýtt samkvæmt fyrri
reglum um frjálsa notkun gjaldeyris, sem
fyrir þau fæst.
Með þetta sem höfuðforsendur hefst
vertíðin í ár og vænta menn hins bezta um
góða afkomu. 'Hagnýting fiskjarins verð-
ur með líkum hætti og áður, mest hrað-
fryst og annað saltað. Pakkning hraðfrysta
fiskjarins er nú yfirleitt smærri en áður
og miðast það við Ameríkumarkað. Þá
hefur komið á daginn, að smærri pakkning
fiskjarins þykir einnig hentugri fyrir
Evrópumarkað. Þá hefur h.f. Fiskiðjan
í Keflavík undirbúið sig undir að hagnýta
keilu, með þeim hætti að herða hana, en
þessi fisktegund hefur áður að jafnaði
fylgt tirgangi og verið unnin í beinaverk-
smiðjum.
Margt aðkomufólk er nú í öllum ver-
stöðvum Suðurnesja og kemur það víðs-
vegar að af landinu. Fólk þetta vinnur við
hraðfrystihúsin, bátana og önnur störf, sem
fylgja útgerðinni. 1 því sambandi tel ég
rétt, að minnast á hinar mjög svo óvið-
unandi verbúðir og á það einkum við