Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1950, Blaðsíða 4

Faxi - 01.06.1950, Blaðsíða 4
4 F A X I Skrúðgarður Keflavíkur Nú þegar aðalfjáröflunardagurinn fyrir Garðinn okkar fer í hönd er mér bæði Ijúft og skylt að gefa allar upplýsingar um, hvernig málum nú er farið og hvernig horfir með byggingu Garðsins. Allar útlínur Garðsins eru nú ákveðnar og nær h'ann yfir svæðið frá Suðurgötu að Sólvallagötu og að lóð sjúkrahússins til suðurs, sem nú markast af bráðabirgða- girðingu nokkurn spöl, til norðurs á Garð- urinn að ná jafnlangt frá fánastönginni eins og nú er til suðurs. Aðalinngangur á að vera beint á móti Ránargötu, svo að nú eru tvö hús inn á því svæði, sem Garðin- um er ætlað í framtíðinni, þess vegna kann margt í sambandi við skipulagninguna að líta einkennilega út, þangað til að allt svæðið er fengið. Girðing sú sem gerð hef- ur verið meðfram íþróttavellinum, er að- eins til bráðabirgða, til þess að íþrótta- mennirnir geti verið þar þangað til vænt- anlegt íþróttasvæði er nothæft. Það var horfið að því að ráði að reyna að friða brekkuna og laga hana til svo sem föng eru á, svo að hún gæti orðið dvalar- staður á góðviðrisdögum í sumar, og ef til vill orðið til þess að færa fólkinu heim sanninn um það hve bráð nauðsyn er að fá allt svæðið til nota. Hugmyndin er að reyna að ganga að fullu frá fánastönginni í sumar og haust, en eftir er að steypa hring í kringum hana og setja steinmynd- ir af landvættunum út frá hverju horni — þá er að fullu risið fyrsta minnismerkið í þessum Minjagarði Keflavíkur — það næsta verður svo lítil kapella eða annað fag- urt minnismerki um fallna sjómenn og þá munu í framtíðinni, eins og nú hefjast þar 'hinar tvær stórhátíðir almennings — sjó- mannadagurinn og 17. júní —. Margir eru vantrúaðir á að hægt sé að hefja þarna ræktun og gróðursetningu og illa er spáð fyrir þessum giröingum sem settar h'afa verið upp — en við sem trúum á þessa hugmynd erum þess fullvissir að gróðurinn kemur í margföldu hlutfalli við þá alúð sem lögð verður í að hlúa að hon- um — en við girðingarnar er ekkert ann- að að gera en að fela þær í umsjá fólks- ins, því að þær eiga að bægja frá skynlaus- um skepnum, til þess að vernda gróður, til augnagamans börnum og fullorðum og til þess að þarna megi vaxa friðland fólksins, sem geymir um leið minningar um það sem okkur er kærast. Margra hluta vegna, verða skrefin að vera smá, en allt miðar í áttina og hverjum einstökum ér í lófa lagið að lengja skrefin og stytta leiðina, með því að ljá lið sitt og hugmyndir, þeim sem að þessu vinna. Það var leiðinlegt að þurfa að skerða sjóðinn til þess að hefja þarna bráða- birgðafrantkvæmdir — en það er ekki venjulegt að fólkið fái trú á fallegar hug- myndir áður en það sér bóla á þeint — nú er starfið hafið og við trúum því að fljótt verði og margfalt fyllt- upp í skörðin, sent höggvin voru í sjóðinn, þegar sést að al- vara er í framkvæmdum. — Allar hugmyndir, leiðbeiningar og hvers Yfirlit yfir tekjur og gjöíd 17. júní hatíðarma 1946: Nettó tekjur ........................ 1947: Agóði af danspalli Agóði af merkjasölu Agóði af 6 og 9 sýningu og dansleik Agóði af skemmtun í húsi U. M. F. K. Agóði af veitingum .................. -4- samanlagður kostnaður ........ Nettó ágóði ...................... 1948: Inink. fyrir bíósýningu Innk. fyrir prógram kl. 6......... Innk. fyrir merkjasölu............ Innk. fyrir dansleik í Alþýðuhúsinu . Innk. fyrir dansleik í húsi U. M.F. K. -4- samanlagður kostnaður Nettó ágóði 1949: Hagnaður af merkjasölu Seldir 214 ntiðar 15,00 . Seldir ntiðar U. M. F. K. 135 Seldir miðar V. S. F. K. 104 Nettó ágóði af „Tívolí“ . Nettó ágóði af veitingum -4- samanlagður kostnaður Nettó ágóði Nettó sjóðseign .......... kr. 1.595,30 . kr. 27,00 — 1.941,50 . . . 3.057,12 — 4.320,00 . . . — 1.002,70 kr. 10.348,32 . . . — 6.916,52 kr. 3.431,80 .. . kr. 432,00 . . . 3.435,00 — 5.162,45 — 2.010,00 ... — 1.952,30 kr. 13.091,75 ... — 5.870,60 .. . kr. 7.221,15 . kr. 3.472,55 — 3.210,00 . . . 2.700,00 — 2.080,00 — 3.328,00 ... — 221,00 kr. 15.011,55 ... — 6.273,43 — . 3.431,80 7.221,15 kr. 8.738,12 — 8.738,12 kr. 20.986,37

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.