Faxi

Árgangur

Faxi - 01.06.1950, Blaðsíða 10

Faxi - 01.06.1950, Blaðsíða 10
10 F A X I áhöldin rétt áður en keppni hefst. Stjórn íj)r(')ttadeildar U. M. F. K. segir, að engin Suðurnesjamet hafi verið staðfest ennþá, en vonar þó að tími H. G. nái staðfestingu. Ekki veit ég, hvernig þeir ætla sér að fá staðfestingu á þessum tíma H. G. Eg hélt þó, að þeim væri fullkunnugt um þau atriði, sem verður að fullnægja til! að hægt sé að staðfesta met. Þessum atriðum var ekiki ful'lnægt í fyrrnefndu hlaupi, svo að j)að er útilokað að þeir geti staðfest þann tíma nerna að ganga á rétt annarra manna uin leið. En það er kannski ekki nema j)að sem þessum labbakútum finnst rétt, því eftir greinum þeirra að dæma, getur maður ætlað að þeir telji það dyggð hjá sjálfum sér, sem aðrir myndu kalla illt innræti. Myndi ég v.ilja ráðleggja þeim, að fara ekki út í blaðaþrætur meðan þeir geta ekfci sagt eitt einasta orð öðruvísi en að allir megi sjá vankanta á persó.num þeirrra. Eg tel, að það megi dkki staðfesta árangur H. G., þar sem útilökað er, að staðfesting fáist á áröngrum þeirra beztu í öðrum íþróttagreinum. Einnig segir í sömu grein, að ekki hafi verið haldnar nema tvær keppnir sumarið 1948. Þetta er dkki rétt, því að haldnir voru fjórir eða fimm kappleikir þetta sumar, og mætti þar til nefna fimmtarþrautina, sem Karl Olsen vann með miklum yfir- burðum. Enga viðurkenningu hefir hann hlotið fyrir afrek sitt í þei-rr.i grein, en annar og þriðj.i maður fengu viðurkenn- ingu, sem var þó ekki nema pappaspjald, sem K. R. hefir látið gera fyrir sína starf- se-mi, og var vægast sagt það ómerkileg- asta, sem hægt var að bjóða sem viður- kenningu, jafnvel eftir að búið var að setja stri.k yfir nafn Knattspyr.nufélags Reykja- víkur og merkja það U. M. F.K. Mér finnst það vítavert, að sá, sem vann þietta afrek, skuli enga viðurkenningu hafa hlotið. Getur það verið að Jsað staf.i af því, að hann er efcki Keflvíkingur ? Mér þykir hart að þurfa að efast um andlega heilsu þessara manna sem eru þó þetta myíidar- legir á velli að sjá. En hvað er það þá, sem þjáir þá, lesendur góðir? Ég læt yk’kur um að skera úr því. Það er íyrir ofan minn skilning, hvað það er, sem v.eWur því, að Karl Olsen fékk dkki þá viðurkenningu, sem honum bar. Það var þó til bikar, sem gefinn var U. M. F. K. og átti hann að vera afhentur þeim, sem sigraði í fimmtarþraut. Ekki fannst H. G. ástæða til að afhenda K. O. bikarinn 1948, en er H. G. vann fimmtarþrautina 1949, stóð ekki á að taka fram bikarinn, þurrka af honum rykið, sem safnast hafði á hann og láta afhenda sér hann með sem mestri viðhöfn. Og þó leikur nokkur vafi á því, að hann hafi átt fyrsta sæti með réttu. Mér þykir einnig mjög undarleg-t að hey-ra það, að ekki hafi nei-tt Suðurnesjamet vcrið sett en-nþá, og ekki sízt efti-r að vera búinn að blaða í gömium blöðum, þar sem sagt er frá Suðu-r nesjametu.m í einstaka greinum. Þei-r hefðu þá átt að taka það fram um leið og þeir auglýst-u þessa árangra sem met, að þau væru s-ett við það ólöglteg skilyrði, að þau myndu ekki hljóta staðfestingu hjá ISI. Nei, nú er nóg komið af framkvæmda- Leysi þessara manna, þei-r verða að gjöra svo vel að vinna betur að þessum málum, því að ég veit fyrir víst, að þeir piltar, sem verið ha-fa í íþróttunum s.l. tvö surnur, láta ekiki bjóða sér svona graut lenigur. Ég vi.1 skora á stjórn frjálsíþróttadeildar U. M. F. K. að hún gangist fyrir því að þeir ár- angrar, sem náðst hafa á veihnum í Reykjavík, verði staðfstir sem Suðurnesja- met, því það eru einu árangramir, sem hægt er að staðfesta. Því að það vita allir, sem eitthvað hafa með þessum máiuni fylgzt í K-eflavík, að þau hafa engan veginn farið löglega fram, og hvað því viðvíkur að tími H. G. hafi náðst í keppninni við Selfyssinga, sem ekki er rétt, þá fæst hann ekki staðfestur að heldur, því að eins og ég hefi sagt áður, var lieikreglum ek-ki fullV- nægt, og tel ég því Böðvar Pálsson eiga með réttu Suðurnesjamietið í 100 m hkup- inu, þar sem hann vann 100 m á 11,8 sek. á B-mótinu í Reykjavík 1949. Og hvað 60 m h'laupinu viðvíkur, hefði Þorbergur Friðr-iksson ekki átt að auglýsa þann tíma sem met, fyrst meðvindur var of mikill eins og hann hefur nú viðurfcennt. Kefl- víkingar áttu einnig keppiendur á meistara- móti íslands 1949, og varð Karl Ol'sen þar í þriðja sæti í langstökki með 6,55 m, og setti þar persónultegt met, og að mínum dómi þá um leið Suðurnesjamet, þar sem kcppni fór fram yið löglteg skilyrði. En kannski þ-essum herruim Kki ekki við manninn af því að ha-nn er Njarðvíki'ngur og neiti þvi að staðfesta árangur hans sem Suðurnesjamet. Ég vil svo ósba þess, að þeir sem stjórna íþróttamáilunum hér í Keflavík, afli sér upplýsinga um, hvernig eigi að undirbúa mót, þannig að þau gætu farið löglega fram. íþróttanefnd U. M. F. K. eða réttara sagt Þorbergur Friðr.iksson, minntist á það i grein sinni, að hann vildi gjarnan mega leita t.il mín með upplýsingar um, hvernig ætti að undirbúa mót og framkvæma þannig, a-ð lögleg væru. Ekki veit ég, hvo-rt ég er vel ti.l þess faffinn, því að ég tel að það m-uni þurfa allmikla sálfræðilega þekk.ingu og þolinmæði til að geta kennt honum eða leiðbeint. En reynandi væri fyrir hann sjálfan, að leita sér upplýsinga í leikreglum ISI. Og þess ættu þei-r að gæta, að augl'ýsa ekk.i sem met, þá á-rangra, sem þeir vita fyrirfram, að ekki fá staðfesti-ngu. Að endinigu vi.l ég taka það f.ram, að ég mun ekiki ræða þessi mál1 nv.-ira að sinni. Muin ég held'Ur bíða og sjá til, hvor-t þetta getur ekki lagazt og ekki sízt eftir að búið er að benda þeim á þá galja, sem verið hafa á stjórn íþróttamálanna í Keflaví-k. Iþróttaunnandi. Fyrsti fundur bæjarstjórnarinnar. Bæjarstjórnarmennirnir eru þessir, talið frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson, Ólafur Þorsteinsson, Ingimundur Jónsson, Valtýr Guðjónsson, forseti bæjar- stjórnar, Ragnar Guðleifsson, bæjarstjóri, Steindór Pétursson og Jón Tómas- son. — A miðju borði er fánastöng og fáni; gjöf, sem séra Eiríkur Brynjólfsson færði bæjarstjórninni er hún tók til starfa.

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.