Faxi - 01.03.1952, Síða 2
34
F A X I
X> =3x3k>00<X>000<3>00<XJkX><3X> <><^<>^<>íX><><><><>>^<J><><><><>c’k><><S
Séra Eiríkur S. Brynjólfsson:
Kristur er upprisinn
Mark. 16, 1—7.
Með lofgjörð og fögrmði heilsa kristnir menn heilagri páskahátíð.
Kristur er upprisinn. Þessi fáu orð enduróma um allan kristinn heim og þait
eru vissulega hinir ómetanlega dýrmætu fjársjóðir trúarinnar. Með upp-
risu sinni staðfesti Jesús öll sín fyrirheit og þá hurfu efasemdir, sorg og
áhyggjur hans fyrstu lærisveina. Þeir vissu að hann var með þeim og það
veitti þeim ómetanlegan styrk, trúargleði og von. Þá vissu þeir að ekkert \rnr
að óttast og engu að kvíða, hvorki t lífi eða dauða.
Nú koma heilagir páskar til vor og flytja oss þennan boðskap: Kristur
lifir. Og þess vegna getum við flutt fram þessa játningu:
H ver á betri hjálp í nauðum
hver á slíkan vin á braut.
Hjartans vin sem hjartað þékkir
höllum oss í drottins skaut.
Væri það hægt, ef Kristur væri ekki upprisinn. Nei. En nú lifir hann og
er með söfmiði sínum alla daga. Og þegar þeim dögum lýkur sem oss eru
ætlaðir til dvalar hér í heimi, tekur eilífðin við. Og þá er dýrlegt að vita,
að Kristur lifir á landinu eilífa og bjarta og tekur á móti oss þegar við
komum þangað eins og við erum. Er þetta ekki dásamlegt? — Vort líf sem
svo stutt og stoptdt er — það stefnir á æðri leiðir — og upphiminn fegri
en augað sér — mót öllum oss faðminn breiðir". Þar heima hjá drottni
Jesúm Kristi, finnast ættingjar og ástvinir eftir aðskilnaðinn hér á jörð.
Hvílíkt undursamlegt fagnaðarefni? — Þetta eigum við allt páskunum að
þakka. — Kristur er upþrisinn. — Hann er sannarlega upprisinn. — Eögn-
um og verum glaðirl — Gleðilega páskal -— Amen.
Í><X><XX><><><><>C><><><><><><><><XX><><><><><X><><><><><><X><><><><><><><><X
hver áramót. Sumir eru heillandi: Leikur
að stráum, Lífið kallar, Ljós heimsins. Og
Fagurt mannlíf, Fagra veröld, Fegurð him-
insins. En aðrir eru hrollvekjandi: Morð
fyrir milljón, Myrtur í vagni. Við reyn-
um þó að fara mildum höndum um allar
bækur, líka Morð fyrir milljón.
— Metsölubækur fyrir jól, undanfarin
ár?
—• Líklega Utnesjamenn, Brim og boð-
ar, Oldin okkar.
— En hvaða bók hefur selzt bezt frá
því þú byrjaðir höndlunina?
— Trúi, það sé Sálmabók til kirkju- og
heimasöngs. Og má séra Eiríkur vel una
slíkri yfirlýsingu.
— Hvaða bók hefur þá selzt verst?
— Sólgull í skýjum.
— Og þú gafst hana sjálfur út?
— Jú, jú. Það ár fékk ég ekki bók að
selja mánuðum saman, svo að ég hóf að
bæta kommum, punktum, svigum, þanka-
strikum og öðru merkjamáli inn í nokk-
ur gömul eða miðaldra ljóð í uppyngingar-
skini. Að svo búnu réðst ég í útgáfuna með
fyrrnefndum árangri.
— Hvaða núlifandi rithöfundar íslenzk-
ir eru mest keyptir og þá væntanlega lesn-
ir hér í bæ?
— Þórbergur, Gunnar Gunnarsson,
Kristmann, Laxness, Elinborg Lárusdótt-
ir, Guðmundur Daníelsson. Og Móðir Is-
land eftir Hagalín seldist mjög vel, betur
heldur en Konungur á kálfskinni.
— En ljóðskáldin?
— Tómas, Davíð, Jóhannes úr Kötlum,
Steinn Steinarr og svo framvegis.
— Atómskáld?
— Þau selja 'bækur sínar milliliðalaust
eða beint til neytenda, og get ég því ekki
fullyrt, hvert þeirra er ástsælast með þjóð-
inni um þessar mundir. Vinur minn,
Hannes Sigfússon hefur ort og gefið út
tvö ljóðakver. Hið fyrra hefst á þessari
tileinkun:
„Með gullinni skyttu
og glitrandi þræði
óf sumarið nafn þitt
í söknuð minn“.
En síðara kverið endar svona:
„Kyrrstæður himinn
Andvökunnar auga
Októbersyfjað haust“.
Og Einar Bragi yrkir um Geirfuglinn
í annarri bók sinni, sem heitir Svanur á
báru.
— Hvaða mánaðarit eru mest keypt?
— Heimilisrit, Bergmál, Hjartaás
— og Laufásinn auðvitað. En hvað varð
um Adam?
— Ekki lengi í Paradís fremur en fyrri
daginn.
— Skrautritar þú enn á bækur?
— Því ekki það, ef óskað er? I þann
tíð, er fólki bauðst „5% í þöntun og tekju-
afgangur eftir árið“ fór Bókabúðin að
auglýsa „Okeypis skrautritun“ í anda
frjálsrar samkeppni.
En íþar kom loks samkeppninni eða rás
verðbólgunnar að prósentan og afgangur-
inn sofnuðu útaf en skrautritunin hélt
vöku sinni og sambandi við bækur, eink-
um bækur til tækifærisgjafa.
— Hefurðu verið maður einsamall í
búðinni þennan liðna áratug?
— Oðru nær, en þær giftast allar frá
mér. Þessi áratugur lifs míns hefur verið
ein samfelld brúðkaupsveizla. Að hugsa
sér! Falleg stúlka með fallega bók í fjólu-
blárri kápu. Báðar ganga, ef ekki renna
út og fyrir þeim liggur að fara í vandað
band.
— Og hverjar hafa starfað hjá þér?
— Þær frúrnar Elín Ólafsdóttir, Jórunn
Ragnarsdóttir, Júlíana Jónsdóttir, Sesselja
Kristinsdóttir. Ungfrú Erla Sigurbergs-
dóttir kom í haust.
— Voru bókamarkaðirnir sendir hingað
til höfuðs bókabúð þinni?
— Nei, sá fyrri bauð uppá fjö'lda bóka,
sem horfnar voru af sjónarsviðinu.
Sá síðari seldi bækur við hálfvirði og
gaf Bókabúðinni kost á að taka við mark-
aðinum. Og hélt hann áfram hér í búð-
inni í nokkra daga.
— Hve margir eru útgefendurnir?