Faxi

Årgang

Faxi - 01.03.1952, Side 13

Faxi - 01.03.1952, Side 13
F A X I 45 Skýrsla um rekstur bæjarsjóðs og bæjarstofnana Samin af nefnd kosinni af bœjarstjórn Keflavíkur 27. nóvem- ber 1951, að tilhlutan félagsmálaráðuneytisins. Framhald úr síðasta blaði. 7. Almannatryggingar: Sú hefur orðið raunin á undanfarin ár, vegna fjárhagsörðugleika bæjarfélaganna, að flest hafa þau látið tillög til Almannatrygg- inganna sitja á hakanum. Orsakir til þess skulu ekki raktar hér, þó benda megi á, að ein ástæðan geti m. a. verið sú, að Trygg- ingarstofnunin hafi ekki gengið nógu hart eftir greiðslum fyrstu árin meðan stofnunin var rekin með hagnaði og hafði þá nægilegt fé frá öðrum tekjustofnum. Þessi óskilvísi bæjarfélaganna við Trygg- ingarstofnunina eru því óeðlilegri, að hún hefur tvímælalaust stórlétt framfærsluþunga þeirra. Fer hér á eftir yfirlit yfir tekjur og gjöld tryggingarumboðsins í Keflavík árin 1949 og 1950: 1949: T e k j u r : 'Tilfallin persónuiðgjöld ...... kr. 215.160.00 — skírteinagjöld ......... — 750.00 — atvinnurekstrariðgjöld — 69.199.20 — vátrygging ökumanna — 42.887.35 — iðgjöld sjómanna .... — 95.057.50 Framlag Keflavíkurhrepps 1949 — 140.000.00 Kr. 563.054.05 Gjöld: Ellilífeyrir ................. kr. 220.755.80 Örorkulífeyrir ................. — 24.532.27 Örorkustyrkur .................. — 9.081.00 Barnalífeyrir, endurkræfur .... — 42.750.00 Barnalífeyrir, óendurkræfur .. — 39.342.10 Ejölskyldubætur ................ — 83.325.00 Paeðingarstyrkur ............... — 56.100.00 Ekkjubætur ......................— 12.410.20 Makabætur ...................... — 540.00 Slysa- og sjúkrabætur .......... — 26.153.27 Kr. 514.989.64' 1950: T e k j u r : Tilfallin persónuiðgjöld kr. 275.920.00 — skírteinagjöld — 800.00 — atvinnurekstrariðgj öld — 81.137.95 — vátrygging ökumanna — 29.738.10 — iðgjöld sjómanna .... — 95.150.90 Eramlag Keflavíkurkaupst. 1950 — 147.771.56 Kr. 630.518.51 G j ö 1 d : Ellilífeyrir ................. kr. 343.884.53 Örorkulífeyrir ................. — 49.950.60 Örorkustyrkur .................. — 16.462.56 Barnalífeyrir, endurkræfur .... — 64.330.00 Barnalífeyrir, óendurkræfur .. — 62.520.00 Fjölskyldubætur ................ — 125.930.00 Fæðingarstyrkur ................ — 61.455.00 Ekkjubætur ..................... — 7.764.21 Slysa- og sjúkrabætur .......... — 53.515.75 Kr. 785.812.65 Allt fram til ársins 1950, greiddu bæjarbúar meira til trygginganna en þeir fengu frá þeim. En á árinu 1950 snýst þetta við. Þá greiða tryggingarnar um 155 þúsund krónum meira til bæjarbúa en þeir til þeirra. Er sú upphæð meiri en allt framlag bæjarins það ár, sem var kr. 147.000.00. Að vísu má bæta við þá upphæð endurkræfum barnalífeyri, en hann verður bærinn að greiða og á hann síðan kröfu á barnsfeður. Ekki liggja enn fyrir niðurstöðutölur ársins 1951, en likur benda til að niðurstaðan verði á sömu leið og árið 1950. Ellilífeyrir mun á því ári verða um 420.000.00 og öll gjöld nálægt einni milljón. Keflavíkurbær hefur á undanförnum árum safnað skuldum hjá Tryggingarstofnuninni, en nú eru líkur til að þær verði greiddar að fullu, að nokkru með lántöku hjá stofnun- inni til vatnsveituframkvæmda, en þær fram- kvæmdir hafa verið mjög fjárfrekar undan- farin ár og farið fram úr áætlun, og m. a. tekið til sín fé, sem ætlað hefur verið til greiðslu á framlagi til Trygginganna. Tillögur: 1. Sjúkrasamlögin verði sameinuð Trygg- ingarstofnuninni hið fyrsta. 2. Tryggingastofnunin greiði þá sjúkra- húsvist og ýmiskonar veikindaaðstoð, sem bæjar- og sveitarfélögum ber nú að greiða. 8. Sjúkrasamlagið: Síðan lögin um Almannatryggingar voru sett, hefur það staðið til að leggja niður sjúkrasamlögin og sameina starf þeirra Tryggingastofnuninni. Þessu hefur verið frestað ár eftir ár og nú síðast til ársins 1954, af einhverjum dularfullum ástæðum. En að því ber að stefna, að þessar stofnanir verði sameinaðar hið fyrsta. Mætti með því spara bæði í starfsmannahaldi og skrifstofuhús- næði og fleiru. Eins og nú háttar og með tilliti til afskifta Tryggingastofnunarinnar af starfsháttum sjúkrasamlaga, virðast stjórnir þeirra, sem eru launaðar, vera orðnar næsta þarflausar. Tillögur : 1. Felld verði niður laun stjórnar Sjúkra- samlagsins. 9. Byggingarsjóður verkamanna: Bæjarsjóður hefur síðan árið 1943, að Byggingarfélag verkamanna var stofnað, greitt tillag til Byggingarsjóðs verkamanna. Hafa verið byggðar á þessum árum 26 íbúðir og fjórar eru í smíðum. Framlag bæjarins hefur á undanförnum árum verið um kr. 30.000,00 og eykst eftir því sem bærinn stækkar, því það er miðað við íbúatölu. Ekki hafa bæjarfélögin neinn íhlutunarrétt um stjórn byggingarfélaga verkamanna. Þau þrjú mál, sem rakin hafa verið hér á undan, Almannatryggingarnar, Sjúkrasamlag- ið og Byggingarsjóður verkamanna, eiga það sameiginlegt að framlög til þeirra eru lög- bundin og eru framlögin miðuð við íbúafjölda. Bæjarstjórn hefur þar af leiðandi lítinn sem engan ákvörðunarrétt um upphæð þessara framlaga. Það er vert að vekja athygli á þessu um leið og bent er á, að löggjafinn hefur á undan- förnum árum lagt bæjar- og sveitafélögun- um á herðar að standa undir margskonar framkvæmdum, án þéss að sjá þeim jafn- framt fyrir nýjum tekjustofnum. 10. Framfærslukostnaður: Framfærslukostnaður bæjarins hefur verið mikill undanfarin ár. Hefur hann verið hærri en .meðalframfærslukostnaður á öllu landinu. Hefur bærinn þess vegna fengið tillag úr Jöfnunarsjóði síðustu árin. Framfærslukostnaðurinn greinist aðallega í þrennt: 1. Meðlag með börnum. 2. Sjúkrahús- vist. 3. Annar framfærslustyrkur. Fer hér á eftir yfirlit yfir framfærslukostnað árin 1949 og 1950. 1949: Til styrkþega bæjarins: Meðl. m. börn. 119.816,69 Sjúkrahúsvist 35.943,15 Annar framf.st. 107.769,87 ----------- 263.529,71 Til annarra sveita: Meðl. m. börn. 34.650,00 Annar framf.st. 14.370,52 ----------- 49.020,52 312.550,23 Endurgreitt: F. styrkþ. bæj. 26.342,00 F. öðrum sveit. 33.784,00 ----------- 60.126,00 252.424,23

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.