Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1956, Side 15

Faxi - 01.12.1956, Side 15
 F A X I 127 OOOOOOOOOOOOOOOOOOO^^ Á A I A / A I A 1 NYJA FISKBUÐIN Sími 826 Se/ur daglega: 1. fl. fisk af öllum teg- undum: nýjan, saltaðan, x reyktan og siginn. X Harðfisk, barinn og óbar- X. inn. X Niðursoðinn fisk. x Niðursoðna síld, sérstak- ý lega ódýr. Gulrófur frá Hornafirði. ý Úrvals kartöflur, gull- X auga o. fl. teg. x Framleiðir: í; Fiskhakk með lauk, úr A glænýrri ýsu. y Fiskflök. y Nætursaltaður fiskur. % Kryddsíld, í lauk og vín- x kryddi. £ Iiamsafeiti í fiskmótum X o. fl. | Athugið: % Odýrasti og bezti matur- inn er fiskur og hrossa- kjöt. Hreinlætis gætt í hví- vetna. Kæliklefi á staðnum. Þægileg og góð afgreiðsla. Óskiim öllum viösktptamönnum okkar gltöilegra jóla og jarsœls nýárs meö þökk fyrir við- skiptin á liöandi ári. NÝJA FISKBÚÐIN Hringbraut Sími 826. Heimasími 326. Athugið: Búðin hefir fengið síma 826. Sendum heim þegar pantað er minnst tíu kg í einu. NÝJA FISKBÚÐIN Sími 826 ><><><><><><><><><>0<><><><><><><><><><^^ Ritgerðarsamkeppni barna um bindindismál Eins og getið var í fréttum útvarps og blaða í byrjun yfirstandandi árs, efndi Bind- indisfélag ísl. kennara til ritgerðarsamkeppni meðal allra 12 ára barna í landinu, og var rit- gerðarefnið þetta: Er það hyggilegt að vera bindindismaður og hvers vegna? Fékk stjórn félagsins starfandi námsstjóra landsins til þess að sjá um þessa keppni að öllu leyti, sem þeir fúslega gerðu. Þrennum verðlaunum var heitið á hverju námsstjóra- svæði. I. verðlaun kr. 200,00, II. verðlaun kr. 125,00 og III. verðlaun 75,00 krónur. Þátt- taka var almenn og góð, þó bárust ritgerðir aðeins frá einum skóla í Reykjavík. Athyglis- vert þótti við lestur þessara ritgerða, hve börnin vita mikið um þessi mál og hafa um þau ákveðnar skoðanir, sem þau rökstyðja mjög vel. Nokkur börn í barnaskóla Keflavíkur tóku þátt í þessari samkeppni og hlaut Unnur Berglind Pétursdóttir I. verðlaun. Unnur er dóttir hjónanna Kristínar Danivalsdóttur og Péturs Lárussonar umsjónarmanns gagn- fræðaskólans í Keflavík. Faxi hefir fengið leyfi til þess að birta rit- gerð Unnar og óskar henni um leið til ham- ingju með þessa ágætu frammistöðu. Þao er auðvelt að svara þessari spurn- ingu. Eg hygg, að það sé bezt að halda sér algerlega frá allri áfengisnautn. Það er ekki til meira böl en að drekka frá sér vitið. Maðurinn verður sljór, af því að dómgreind og siðferðisþrek bilar. Utlit mannsins afskræmist og allt látbragð ein- kennist af taugaæsingi og tryllingi. Sem betur fer, eru ekki allir drykkjumenn svona, en allt of margir. Mörg heimili hafa eyðilagst af völdum áfengis. Börn, sem alast upp á slíkum heimilum, bíða þess aldrei bætur. Það sjá því eflaust allir, hví- líkt böl það er, þegar foreldrarnir taka peninga, sem ættu að fara fyrir mat handa börnunum sínum, og kaupa áfengi fyrir. Allar verstu meinsemdir þjóðfélagsins eiga rætur sínar að rekja til vínsins, svo óþarfi er að telja upp í einstökum atriðum. Það er áreiðanlega óheilbrigt, þegar unglingar venja sig á að sitja inni á krám eða smáveitingastöðum og þamba gos- drykki og reykja. Það er upplýst mál, að þar er byrjunin hjá mörgum, að venjast ýmsum áfengum drykkjum. Fíknin eykst eftir því sem eitrið í drykknum nær meira valdi á manninum. Enginn veit fyrirfram, hvort hann geti verið hófdrykkjumaður. Nýlega hefur verið stofnað drykkju- mannahæli, sem heitir Bláa bandið. Það hefur áreiðanlega hjálpað mörgum of- drykkjumönnum. Margir drykkjumenn eru vel gefnir og prýðilegir menn. Það hefur enginn þeirra ætlað sér að verða of- drykkjumaður, en fyrir flestum fer það svo, að þá langar í meira, er þeir hafa drukkið úr fyrsta staupinu. Það er því áhyggjuminnst að bragða aldrei dropa af áfengi. Það er voðalegt að sjá unglinga undir áhrifum víns. I fyrstu hefur hann ekki ætl- að sér að drekka vín, en oft er það svo, að félagarnir eru komnir út á drykkjubraut- ina og tæla hann til að vera með sem kallað er. Þeir sem ekki vilja fylgjast með verða að háði og athlægi. Ég óska þess að fleiri drykkjumanna- liæli verði reist hér á landi og geti hjálpað drykkjumönnum, sem hata orðið fyrir því óláni, að verða vínnautninni að bráð. Þeir eru sjúklingar og eiga heimtingu á, ekki síður en aðrir, að fá bót meina sinna. Ég álít, að enginn ætti að vera í vafa um það, hvort hann eigi að vera með eða móti bindindi. Unnur Berglind Pétursdóttir. „Rammar og gler“ er ungt fyrirtæki hér í bæ, er flestir nú orðið kannast þó við, þar sem það hefir mikið auglýst starfsemi sina i Faxa. Fyrirtækið var stofnað 1953 og er eigandi þess Guðmundur Guðjónsson. „Rammar og gler“ framkvæmir allskonar glerskurð og glerslípun og hefir til þess full- komin tæki. Er það til mikils hægðarauka, þar sem áður þurfti að sækja alla glerslipun til Reykjavíkur. Ennfremur framleiðir fyrir- tækið spegla, myndaramma o. fl. Nú í sumar var byggt við verkstæðið allverulega, og véla- kostur aukinn. Er ráðgert, að í þessu nýja húsnæði verði einnig lítil sölubúð, er verði opnuð nú fyrir jólin, þar sem verzlað verði með glervörur, myndir og málverk og margt fleira heppilegt til tækifærisgjafa, sbr. augl. hér í blaðinu.

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.