Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1956, Síða 25

Faxi - 01.12.1956, Síða 25
F A X I 137 <*>«<><><x><><><><><í>«<><x><><><><><><><><><><><>< Húsgagnaverzlun G. Sigurf. tilkynnir Húsgögn í fjölbreyttu úrvali: Svefnherbergissett Sófasett Svefnsófar í borðstofu Borðstólar og skápar Dívanar Klæðaskápar Stofuskápar Innskotsborð Rúmfataskápar Kommóður Bókaskápar Barnarúm og dínur Sófaborð Skrifborð Vegghillur Útvarpsborð Dvíanteppi margar gerðir Standlampar í úrvali frá kr. 687,50 Lampar með borðum 721,50 til 2680,00 Plötuspilarar frá Gólfdreglar og mottur og margt fleira. 5 gerðir gítara Komið, sjáið og sann- færist. Húsgagnaverzlun G. Sigurfinnssonar Hafnargötu 39. <»<><<><><><><><><><><><><><><><><>« Glæsilegur sigur. Hið árlega sundmót framhaldsskólanna var háð í sundhöll Reykjavíkur 6. des. s. 1. Keppninni í kvennasundi lauk með glæsileg- um sigri gagnfræðaskóla Keflavíkur og unnu stúlkurnar nú bikarinn í þriðja sinni í röð og þar með til eignar. Vegna rúmleysis verð- ur þetta látið nægja um keppnina þar til í næsta blaði, en Faxi óskar skólanum til ham- ingju með sigurinn. Oánægður skrifar: „Vill ekki blaðið koma þeirri áskorun til forráðamanna póstmálanna á Keflavíkur- flugvelli, að póstur, sem þangað kemur frá útlöndum og á að fara til Keflavíkur, sé tafar- laust þangað sendur, en ekki látinn safnast þar fyrir eins og þrásinnis hefir átt sér stað að undanförnu". Faxi tekur undir með „Óánægðum", er svo lengi þarf að bíða bréfa sinna og fær svo kannske 2—3 í einu, þegar þeim loksins er skilað. Vill ekki póststjórinn vinsamlegast taka þetta til athugunar? Karlakór Kcflavíkur hélt hátíðlegt þriggja ára afmæli sitt 1. des. í húsi Ungmennafélagsins í Keflavík. Hóf þetta fór hið bezta fram og var mjög ánægju- legt. Formaður kórsins, Jón Tómasson, flutti ávarp, síðan komu skemmtiatriði, ferðasaga, revía og mörg söngatriði, bæði einsöngvarar og kór fengu ágætar undirtektir og urðu að syngja mikið af aukalögum. Rafurmagnslaust var og var því lýsingin að fornum hætti, kertaljós og tíulínu brennarar. Þetta gerði hugþekkan blæ á samkvæmið og vakti vafa- laust upp gamlar endurminningar hjá mörg- um, enda heyrðust margir segja, þegar upp var staðið, að þeir hefðu ekki skemmt sér svo vel í mörg ár. Ef skemmtanalíf bæjarins gæti mótast af sam- komum slíkum sem þessari, væri vel farið, en margir telja, og sennilega réttilega, að skemmtanalífið sé mjög sjúkt, fyrir margra hluta sakir. Þar er ekki æskunni einni um að kenna, heldur á eldra fólkið þar einnig hlut að, einkum fyrir þær sakir, að það tekur ekki þátt í að móta skemmtanalífið sem skyldi. Ný fiskbúð hefir nýlega verið opnuð hér í bæ, eigandi hennar er Jakob Sigurðsson verkstjóri, sem starfað hefir sem matsmaður við fiskiðnað í frystihúsum s. 1. 16 ár. Til starfrækslunnar keypti Jakob hús við Hringbraut sem Kaup- félag Suðurnesja rak áður mjólkurbúð í, hefir hann breytt þessum húsakynnum mjög hagan- lega og smekklega fyrir starfrækslu sína, og framleiðir hann þar nú ýmislegt úr fiski til sölu i bæinn. Þessi búð virðist vera til mjög mikilla þæginda fyrir húsmæður sem búa við Hringbraut og á Túnunum, enda var aðeins ein fiskbúð fyrir í bænum, sem er allt of lítið í slíku fjölmenni, sem hér er saman komið. Þessi nýja búð Jakobs er í alla staði hin snyrtilegasta og virðist koma hér í góðar þarfir. <xx><<><><><><><><><><><><><><><><><>^^ FAXI ós\ar öllum lesendum sín- um gleðilegra jóla, gcefu- rí\s komandi árs og þa\\ar samstarfið á árinu, sem er að liða. <><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><><> Tilkynning Pípugerð Keflavíkur er flutt á Vesturbraut 8. - Sími 553 - <>«><><><><><X><><><><><><><><><><><><><>«<><><><><>Ci KIDDABÚÐ Hafnargötu 27 Höfum ávallt nýjan fisk, saltaðan og frosinn. Einnig ýmsar niðursuðuvörur. - Sími 733 -

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.