Faxi - 01.01.1957, Blaðsíða 1
1. tbl. • XVII. ár
JANÚAR
1957
!| Útgefandi:
;' Málfundafélagið Faxi
!; Keflavík.
....................
TSýjar og glœsilegar verbúðir í Keflavík
Margeir Jónsson útgerðarmaður og
framkvæmdastjóri útgerðarfél. Rastar h.f.,
bauð nú á dögunum blaðamönnum að
skoða nýtt og vandað stórhýsi, er félag
hans hefir reist í samvinnu við útgerðar-
félagið Þveræing s.f. Er húsið allt 1200
m2 að flatarmáli, eiga félögin sinn hclm-
ing þess hvort, og höfðu samstarf um að
gera það fokhelt en að því loknu skiptu
þau eigninni og hafa síðan hvort í sínu
lagi annast innréttingu og útbúnað allan,
sem mun verða með sama fyrirkomulagi
hjá báðum aðilum.
Hefir nú Röst h.f. svo að segja lokið
við að fullgera sinn hluta af húsinu, enda
var það allt tekið í notkun í byrjun þcss-
arar vertíðar.
A neðsta gólfi hússins er fiskaðgerðar-
salur, geymsla fyrir salt, sem er fært úr
stað á rafknúnum færiböndum, kæliklefi
fyrir beitu og 2 beitningaklefar hitaðir
nteð lofti, sem blásið er um húsið frá
sjálfvirkri miðstöð, sem er á sömu hæð.
A miðhæð hússins eru nokkur íbúðar-
herbergi vermanna, ásamt herbergi mat-
raðskonu og tveggja aðstoðarstúlkna. Þar
er einnig stórt herbergi, sem eingöngu
er ætlað fyrir vosklæði vermanna, og er
fyrst komið inn í þetta herbergi frá ytri
forstofu. Inn af því er svo rúmgóður
hreinlætissalur með mörgum handlaug-
um, baðklefum og salernum. Þaðan er
svo komið inn á gang, sem liggur með-
fram íbúðarherbergjunum að borðstofu
°g eldhúsi. í borðstofunni, sem er mjög-
rumgóð, geta 40 manns matazt í einu.
Irm af borðstofunni er minna herbergi,
sem bæta mætti við, ef borðstofan undir
vissum kringumstæðum reyndist of lítil,
t- d. ef gesti ber að garði á miðjum mat-
málstíma.
Eldhúsið, ásamt búri, er rúmgott og búið
öllum nútíma þægindum eins og bezt
Margeir Jónsson.
verður á kosið, enda hefi ég heyrt það
haft eftir ráðskonunni, er hún kom fyrst
í húsið og skoðaði hið nýtízkulega eld-
hús og aðrar aðstæður, að héðan vildi
hún ekki aftur fara. Býst ég við að
margar konur, sem nokkuð þekkja til
slíkra starfa og kæmu inn í þessa verbúð,
mundu taka undir þessi orð og er þá
vissulega vel farið, ef hægt er að búa
fólki slík vinnuskilyrði.. Á efstu hæðinni
eru svo íbúðarherbergi vermanna, sem
alls munu vera 9 í húsinu, og er flatar-
mál íbúðarhúsnæðisins 250 m2. Auk
þessa er á efri hæðinni óinnréttað nokkuð
húsrými, sem sumpart er ætlað fyrir
veiðarfæri og einnig er hugmynd eigend-
anna, að innrétta þar í framtíðinni litla
íbúð fyrir húsvörð, sem yrði þá einnig
fastur starfsmaður í fiskvinnslunni.
Byrjað var á byggingu húss þessa í
ágúst 1955 og á vetrarvertíðinni í fyrra
var neðsta hæðin tekin í notkun, en efri
hæðirnar tvær — íbúðarhúsnæðið, nú
eftir áramótin. Talið er að húsnæði sé þar
LANIHRijhASAFN
213105
ísums