Faxi - 01.04.1960, Blaðsíða 9
F A X I
57
Nætur- og helgidagslæknar í Keflavíkur-
héraði í april og maí 19G0.
18.—22. apríl Kjartan Olafsson.
23.—24. apríl Björn Sigurðsson.
25.—29. apríl Guðjón Klemenzson.
30. apríl til 1. maí Kjartan Ólafsson.
2.—6. maí Björn Sigurðsson.
7.—8. maí Guðjón Klemenzson.
9.—13. maí Kjartan Ólafsson.
14.—15. maí Björn Sigurðsson.
16.—20. maí Guðjón Klemenzson.
21.—22. maí Kjartan Ólafsson.
23.—27. maí Björn Sigurðsson.
28.—29. maí Guðjón Klemenzson.
30. maí til 3. júní Kjartan Ólafsson.
Bruna- og slysasími
hefur verið settur upp við höfnina. Hann
er staðsettur í þar til gerðum kassa, sem
festur hefur verið upp utan á hafnarskrif-
stofuhúsið. Ef tjón ber að höndum, er farið
að þessum kassa, glerið brotið og kassinn
opnaður og þannig komizt að símanum. Síðan
er hringt í síma 2222, sem er símanúmer
brunavörzlunnar í Keflavík, og hún kemur
síðan brunakallinu á framfæri eða hringir á
sjúkrabíl eða aðra aðstoð, sem þurfa kann.
Þar með er margra ára fyrirgreiðslu starfs-
fólks Landssímans lokið, — sem kom til af
breyttri tilhögun á stöðinni. Ágæta fyrir-
greiðslu þeirra ber að þakka, og gerir Faxi
það hér með, fyrir hönd fjölmargra, sem
hennar hafa notið.
Keflavíkur Radio.
Um síðustu mánaðamót var opnuð tal-
stöðvarafgreiðsla á vegum Útvegsbændafélags
Keflavíkur í húsi Olíusamlags Keflavíkur.
Þessi nýlunda er til mikils hagræðis og ör-
yggis fyrir útgerðina og sjómennina, sem
nota þetta samband við landstöðina mikið.
Stöðin, sem reynzt hefur vel, er eins og fyrr
segir, starfrækt af Útvegsbændafélagi Kefla-
víkur, en stöðvarverðir eru Karl Guðjónsson,
radíóvirki, og Albert Bjarnason, fyrrverandi
formaður.
Leiðrétting.
I minningargrein um Alexander Klemenz-
son í 2. tbl. Faxa þetta ár, slæddist inn sú
prentvilla, að Alexander hafi látizt í bæjar-
sjúkrahúsi Keflavíkur, en átti að vera: ....
• • í bæjarsjúkrahúsi Reykjavíkur'1. Eru að-
standendur hins látna beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
Þá skal hér einnig leiðrétta úr síðasta tbl.
í grein frú Mörtu Valgerðar: „Minningar frá
Keflavík". Með mynd af hjónunum Vilborgu
Benidiktsdóttur og Bjarna Ólafssyni, stend-
ur: Bjarni Ólafsson og Vigdís Benidiktsdótt-
ir. Þetta eru aðstandendur og aðrir lesendur
blaðsins einnig beðnir að færa til betri vegar.
I síðustu grein Faxa um þau hjónin
hafði fallið niður hjá mér, að geta um fóstur-
son þeirra, Harald Jónsson frá Litlabæ
í Keflavík. Haraldur var smádrengur, er
hann kom til þeirra hjóna, naut hann þar
hinzt bezta uppeldis og báru þau hjón um-
hyggju fyrir honum eins og sonum sínum.
En er Halli óx upp, kenndi Bjarni honum
alla vinnu til sjós og lands, er að fiskveiðum
og útgerð laut. Haraldur er vélamaður og býr
í Keflavík.
Hjálp í viðlögum bjargar mannslífi.
Þann 25. marz s. 1. bjargaði Guðlaugur
Tómasson, símstöðvarstjóri í Gerðum, manni
frá drukknun í Gerðahöfn. Atvik voru þau,
að tveir ungir piltar, þeir Ólafur Torfason og
Árni Óskarsson, óku lítilli fólksbifreið út af
bryggjunni í Gerðum. Báðir komust piltarn-
ir út úr bifreiðinni, en Ólafur mun hafa feng-
ið slæmt högg í fallinu og entist honum því
ekki þróttur til þess að bjargast upp að bryggj-
unni, og vissi það síðast af sér, að hann sökk
til botns. En Árna, sem einnig er vel syndur,
tókst með snarræði að ná félaga sínum upp
og koma honum meðvitundarlausum að
bryggjunni og ná þar handfestu. Þegar þetta
skeði, var Guðlaugur að vinna þar skammt
frá, og var þriggja ára sonur hans, Tómas, að
leika sér þar rétt hjá. Tómas litli heyrði
kallað á hjálp og gerði föður sínum strax
viðvart, og brá Guðlaugur þá fljótt við og
fór á slysstaðinn og tókst að ná mönnunum
upp á bryggjuna og hóf þegar í stað lífgunar-
aðgerðir á hinum meðvitundarlausa manni, á
meðan hringt var eftir sjúkrabifreið frá
Keflavík.
Komið var með hinn slasaða mann til
Keflavíkur 25—30 mínútum eftir að honum
var bjargað á land. Allan þann tíma og einnig
í sjúkrabílnum hélt Guðlaugur áfram lífgun-
artilraunum, og voru þær farnar að bera
árangur, þegar til sjúkrahússins kom. Hins
vegar komst Ólafur ekki til fullrar rænu fyrr
en eftir alllangan tima, og má fullvíst telja,
að kunnátta Guðlaugs í „Hjálp í viðlögum"
hafi hér bjargað mannslífi. Ætti þessi at-
burður að vera öllu hugsandi fólki hvatning
til þess að leggja alúð við að læra sjálft og
kenna öðrum undirstöðuatriði í hinni fyrstu
hjálp.
Nýtt fyrirtæki.
Laugardaginn 9. apríl var fréttamönnum
boðið að skoða nýtt fyrirtæki, er hafið hefur
starfsemi í Hraunsvík í Grindavík. Fyrirtæk-
ið heitir Ægisandur h.f., en framkvæmda-
stjórar eru þeir Kristján O. Kristjánsson,
Rvk, og Friðþjófur Karlsson.
Fyrirtækið byrjaði framkvæmdir í Hrauns-
vík í landi jarðarinnar Hrauns í fyrravor
með því að sprengja veg niður í fjöruna í
Hraunsvík, en þar er eitt bezta steypuefni,
sem fáanlegt er. Siðan hefur verið unnið
þarna að framkvæmdum, svo að nú er þarna
prýðileg aðstaða til að vinna steypuefni. Eru
þar þrír steyptir kassar, er bílar geta ekið
undir, er taka um 500 tunnur af möl og
sandi.
Efninu er náð úr fjörunni með svokölluð-
um „skreypi", sem dreginn er af ýtu, en
síðan fer það í sikti og þaðan á færibandi í
áðurnefnda birgðakassa, eftir því hvað efnið
er gróft. Var það álit allra viðstaddra, bæði
múrara og annarra, að betra steypuefni mundi
ekki finnast á Suðurnesjum.
Faxi óskar þessu nýja fyrirtæki gæfu og
gengis.
Söluumboð á Suðurnesjum fyrir Ægisánd
h.f. er hjá Kaupfélagi Suðurnesja, sími 1505.
Fjárhagsáæalun fyrir Keflavík.
Á bæjarstjórnarfundi þann 22. marz var
endanlega samþykkt fjárhagsáætlun Kefla-
víkur fyrir árið 1960. Niðurstöðutölur þessar-
ar fjárhagsáætlunar eru kr. 14.360.000,00.
Helztu tekjuliðir eru:
Fasteignaskattur kr. 700.000,00
Útsvör — 11.900.000,00
Hluti af söluskatti — 1.470.000,00
Aðrar tekjur — 290.000,00
Aðal gjaldaliðir eru sem hér segir:
Til verklegra framkvæmda kr. 4.785.000,00
Lýðtrygging og lýðhjálp —
Menntamál —
Heilbrigðismál o. fl. —
Skipul., eldvarnir, gatnalýsing —
Löggæzla —
Framfærsla —
Afb. lána, stjórn bæjarins,
vextir og önnur útgjöld
Talið er, að útsvör muni hækka um 200
þúsund krónur frá árinu áður og að orsök
þess sé fyrst og fremst vegna fjölgunar gjald-
enda í bænum.
2.243.000,00
1.427.000,00
1.120.000,00
1.255.000,00
700.000,00
910.000,00
— 1.230.000,00
Símahappdrættið.
Eins og sagt var frá í síðasta tbl. Faxa og
auglýsing í sama blaði bar með sér, er hið
svokallaða símahappdrætti nú tekið til starfa,
en það er, eins og mönnum er kunnugt, fjár-
öflunarleið Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra. Nú þegar hafa fjölmargir símaeigendur
hér í Keflavík óskað að vera með í þessu
happdrætti og tryggt sér miða með síma-
númeri sínu. Hefur símstöðvarstjórinn hér,
Jón Tómasson, góðfúslega tekið að sér að sjá
um sölu á þessum happdrættismiðum. Mun
ætlunin, að hver símnotandi hafi forkaups-
rétt að happdrættismiða með sínu símanúm-
eri fram til 15. maí 1960, en eftir þann tíma
verða miðarnir boðnir til sölu, hverjum sem
hafa vill.
Að morgni 21. júní verður svo dregið um
vinninga í happdrættinu í skrifstofu borgar-
fógeta í Reykjavík og á samri stundu verður
hringt í vinningsnúmerin og tilkynnt um
vinningana, sem eru Opel Caravan bifreið,
að verðmæti kr. 160.000,00 og Volkswagen
bifreið, stationgerð, að verðmæti kr. 150.000,00.
Þá verða fjórir aukavinningar, hver að Verð-
mæti kr. 10.000,00.
Látum ekki happ úr hendi sleppa og styðj-
um um leið gott og göfugt málefni, sem vissu-
loga snertir okkur öll.