Faxi - 01.04.1960, Page 11
F A X I
59
Sundmót
framhaldsskólanna
Síðara sundmót framhaldsskólanna á þess-
um vetri fór fram í Sundhöll Reykjavíkur
31. marz s. 1.
Gagnfræðaskóli Keflavíkur tók þátt í
kvennasundinu og stóð sig með prýði að
venju.
Helztu úrslit í kvennasundi urðu þessi:
Boðsund (ÍX33VÍ m. skriðsund.
1. Gagnfræðask. Keflavíkur, A-lið 2:26,4 mín
2. Flensborg, Hafnarfirði 2:27,0 mín.
3. Gagnfræðaskóli Laugarness 2:36,4 mín.
4. Gagnfræðask. Keflavíkur, B-lið 2:57,1 mín.
33% ni. skriðsund.
1. Inga Helen, G. Keflv. 23,3 sek.
2. Auður Sigurbjörnsd., Flensborg 23,6 sek.
3. Guðfinna Sigurþórsd., G. Keflv. 23,7 sek.
4. Hi-afnhildur Sigurbjörnsd., Flensb. 24,2 sek.
33% m. baksund.
1. Hrafnhildur Guðm., Verzlunarsk. 23,9 sek.
2. Hrafnhildur Sigurbjörnsd., Flensb. 29,0 sek.
3. Stefanía Guðjónsdóttir, G. Kefl. 29,3 sek.
4. Inga Helen, G. Keflav. 29,5 sek.
66% m. bringusund.
1. Hrafnhildur Guðm., Verzlunarsk. 54,5 sek.
2. Sigrún Sigurðardóttir, Flensborg 57,0 sek.
3. Ólöf Ólafsdóttir, G. Laugarness 62,6 sek.
4. Stefanía Guðjónsdóttir, G. Keflv. 63,9 sek.
33% m. björgunarsund.
1. Sigrún Sigurðardóttir, Flensborg 35,3 sek.
2. Sigríður Pétursdóttir, G. Laugarn. 36,5 sek.
3. Hulda Matthíasdóttir, G. Keflv. 37,6 sek.
4. Jóna Fjalldal, G. Keflv. 37,9 sek.
í þessari keppni, sem er stigakeppni, eru
stig gefin þannig: Fyrsta sveit eða einstakling-
ur fær 7 stig, annar 5 stig, þriðji 3 stig og
fjórði 1 stig. Hver skóli fær 10 stig fyrir þátt-
töku í boðsundi. Urslit urðu því þessi:
1. Flensborg 38 stig
2. Gagnfræðaskóli Keflavíkur 37 stig
3. Gagnfræðaskóli Laugarness 21 stig
4. Verzlunarskólinn 14 stig
H. G.
Bæjakcppni í sundi.
Bæjakeppni í sundi milli Keflvíkinga og
Akurnesinga fer fram í Sundhöll Keflavíkur
23. eða 24. apríl.
Bæjakeppni í sundi milli Keflvíkinga og
Hafnfirðinga fer fram í Sundhöll Keflavíkur
síðast í aprílmánuði.
Fró stúkunni Vík
Eins og kunnugt er, hefur veriS mikil
grózka í starfi stúkunnar Víkur í vetur.
Hafa um 60 nýir félagar gengið í stúkuna
síðan í haust. Haldnir hafa verið fundir
hálfsmánaðarlega.
Hallgrímur Th. Björnsson, sem verið
hefur æðsti templar í 3/2 ár, baðst nú ein-
dregið undan endurkosningu. A Hallgrím-
ur þakkir skildar fyrir það mikla og fórn-
fúsa starf, sem hann hefur innt af höndum
í þágu bindindismála hér i bæ. I hans stað
var kosinn Jón Tómasson, póst- og sím-
stöðvarstjóri. En hann hefur áður stýrt
stúkunni með glæsibrag. Aðrir í stjórn
eru:
Jensína Teitsdóttir, varatemplar.
Hilmar Jónsson, ritari.
Birgir Guðnason, gjaldkeri.
Kjartan Olafsson, fjármálaritari.
Petrea Jóhannsdóttir, kapilán.
Jónína Ölafsdóttir, dróttseti.
Páll Bjarnason, skrásetjari.
Guðni Magntisson er enn sem fyrr um-
boðsmaður stórtemplars.
H. J.
Kef Ivíkingar
Samkvæmt frumvarpi til laga um útsvör, er ríkisstjórnin hefur lagt
fyrir Alþingi, og vænta má að hljóti fullnaðarafgreiðslu þegar eftir
páska, er heimilt að draga frá tekjum við niðurjöfnun 1960, þau
vitsvör ársins 1959, sem greidd hafa verið að fullu fyrir 1. maí næst-
komandi.
Gerið því full skil á útsvarsskuldum yðar fyrir lok þessa mánaðar.
Bæjarstjóri.