Faxi - 01.10.1966, Síða 10
Kostum búna Keflavík
köldum nærri víði:
Klæðizt nýrri furðuflík
farsælda og prýði.
Ág. Pctursson.
Hjólagammur hlaupa kann
hraður þrammar veginn.
Vatna damminn veður hann
vinda hrammi sleginn.
Ágúst L. Pctursson.
Frá Tónlistarfclagi Kcflavíkur .
Tónlistarskóli Keflavíkur var settur mánud.
3. október í Æskulýðsheimilinu. Um 170 nem-
endur eru innritaðir í skólann í hinar ýmsu
deildir hans og verða 11 kennarar auk skóla-
stjórans, Ragnars Björnssonar.
í skólanum verður kenndur píanó- og
fiðluleikur, svo og leikur á ýmiskonar blást-
urshljóðfæri. Þá verður einnig við skólann
starfandi undirbúningsdeild.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands voru
fluttir i Félagsbíói í Keflavík, miðvikud. 21.
september. Stjórnandi var Bohdan Wodic/.ko.
Efnisskráin var þessi:
Rossini: Forleikur að óperunni „Semera-
mide“. llaydin: Sinfónía í G. dúr.
Sibelius: Finnlandía. Dovrak: Slavneskir
dansar op. 46 nr. 8 og op. 72 nr. 2. Coates:
Lundúnasvíta.
Tónleikar þessir voru framúrskarandi vel
fluttir og vöktu almenna hrifningu áheyrenda.
í lokin var hljómsveitin klöppuð upp og
hljómsveitarstjóranum færður fagur blóm-
vöndur í þakkarskyni.
Hljómleikar þessir máttu teljast vel sóttir
og á Tónlistarfélag Keflavíkur þakkir skyldar
fyrir að hafa gefið bæjarbúum kost á þeim.
Klakksvíkingar í heimsókn í Kcflavík.
Knattspyrnuflokkur frá Klakksvík í Fær-
eyjum kom s.l. sumar í heimsókn til Kefla-
víkur í boði Í.B.K. Hafa Keflvíkingar tví-
vegis heimsótt Klakksvíkinga á ferðum sínum
I Færeyjum og notið þar frábærrar gestrisni.
Klakksvikingar eru nú Færeyjarmeistarar í
knattspyrnu og hafa á undanförnum árum
verið mjög framarlega í Færeyjakeppninni
Klakksvíkingar komu 10. ágúst og léku hér
þrjá leiki.
Fyrst léku þeir við lið Í.B.K. og sigruðu
Keflvíkingar í þeim leik með 4:2. Annar leikur
inn var við Knattspyrnufélag Keflavíkur og
sigruðu Færeyjingar þá með 3:1. Þriðji og
síðasti leikurinn var svo við Ungmennafélag
Keflavíkur og sigraði UMFK með 7:0.
Eftir siðasta leikinn var Færeyingunum
haldið kveðjuhóf í Aðalveri og voru þar
ræður fluttar og skifst á gjöfum.
Meðan Færeyingar dvöldu hér var farið
með þá kynnisferðir um Reykjanesskagann,
til Reykjavíkur og einnig til Þingvalla, Gull-
foss, Geysis og víðar.
(Á forsíðu er mynd af Klakksvíkingum og
liði Í.B.K., er lék við þá fyrsta leikinn).
<^<>^>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>i<<><>>>>^>>>0<>£<<>>>>>>>>>>>>>>>>>i’>>>>
GÓLFDÚKAR
LINOLEUM GOLFDUKAR C ÞYKKT - FILT GÓLFDÚKAR
KORK-GÓLFDÚI<AR - GÓLFFLÍSAR MARGAR GlíRtílR
GÓLFDÚKALÍM - FLÍSALÍM.
Kaupfélag Suðurnesja
Járn og Skipadeild
HREINLÆTISTÆKI
kxxx;<
GUSTAVSBERG IIREINLÆTlSTÆKi ÁVALLT FYRIR-
LIGGJANDI.
Kaupfélag Suðurnesja
Járn og Skipadeild
<■>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>$}
HJÓLBÖRUR,
'FVÆR STÆRÐIR - HJÓLBÖRUUJÓL - NÝKONIÐ
HAGSTÆTT VERÐ
Kaupfélag Suðurnesja
Járn og Skipadeild
BAÐHERBERGISSKÁPAR
ÞRJÁR GERÐIR FYRIRLIGGJANDI.
Kaupfélag Suðurnesja
Skemman, sími 1790.
>>>>>>>>>>>>>>>><>><>>>>>>>>>^<>><>>>>>^<><>>>>><>>>^^
KEFLAVÍK-SUÐURNES
Hreinsum gólfteppi og húsgögn í heimahúsum.
Vinsamlegast, pantið tímanlega fyrir jól.
Gólffeppa- og húsgagnahreinsun
Suðurnesja s.f.
KEFLAVÍK - SÍMAR: 1979 og 2375
'>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>z<>><><xxz><><>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>^
138 — FAXI