Faxi

Volume

Faxi - 01.02.1967, Page 1

Faxi - 01.02.1967, Page 1
Lið í. B. K. er lék til úrslita í innanfélagsknattspyrnuinóti Vals. Sigurvegarar mótsins B-lið í. B.K. í fremri röð, talið frá vinstri: Magnús Iiaraldsson, Sveinn Pétursson, Þórhallur Stígsson, Grétar Magnússon,, Ríkliarður Jónsson þjálfari í. B. K., Kjartan Sigtryggsson, Einar Gunnarsson og Guðni Kjarlansson. Aftari riið A-lið í. B. K. er lék til úrslita við B-lið Í. B.K. talið frá vinstri: Jón Jóhannsson, Einar Magnússon, Ilögni Gunnlaugsson, Sigurður Albertsson, Jón Ól. Jónsson, Karl Hcnnannsson og Magnús Torfason. I.B.K. SIGRAR Fyrsta innanhús knattspyrnumót sem haldið er í nýju íþróttahöllinni í Laugar- dal í Reykjavík fór fram dagana 2. og 3. febrúar s.l. Aður hafa slík mót verið hald- inn í íþróttahúsinu að Hálogalandi en vegna þrengsla þar hafa mótin ekki þótt gefa góða raun. Með tilkomu nýju íþrótta- hallarinnar í Laugardal hefur breyzt mjög til hins betra og munu innanhúss knatt- spyrnumót þar vafalaust verið mjög vinsæl er tímar líða. Þetta fyrsta mót í Laugardalshöllinni var haldið í tilefni af 55 ára afmæli Vals og var þátttaka í mótinti mjög góð eða alls 16 lið. Keppt var með útsláttarfyrirkomulagi þ. e. það lið sem tapaði leik var úr leik. Keflvíkingar sendu tvö lið til leiks og er skemmst frá því að segja, að þau náðu ágætum árangri, unnu alla sína andstæð- inga og lentu að lokum í úrslitaleiknum sem endaði eftir framlengdan leik með jafntefli og var því hlutkesti látið ráða, hvor væri sigurvegari mótsins og kom upp hlutur 13-liðsins. Keppt var um fagran verðlaunagrip sem afhentur var í lok mótsins og veitti fyrirliði B-liðsins Kjartan Sigtryggsson honum viðtöku. Urslit í einstökum leikjum urðu scm hér segir: Þróttur a — Broiðablik 5;4 K.R. a — Þróttur b 7:1 Fram b — Haukar 5:1 Í.B.K. b — Valur b 4:3 Í.B.K. a — í. A. a 4:2 Valur a — K.R. b 3:2 Fram a — Víkngur 7:1 Síðara leikkvöld: Þróttur a — K.R. a 5:3 Í.B.K. a — Fram b 3:2 Í.B.K. b — Í.A. b 5:2 Valur a — Fram a 5:2 Undanúrslit: Í.B.K. a — Þróttur a 3:2 Í.B.K. b — Valur a 4:3 Úrslit: Í.B.K. a — Í.B.K. b 4:4 og 5:5. Hlutkesti: I.B.K. b vann mótið. H. G.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.