Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1967, Blaðsíða 2

Faxi - 01.02.1967, Blaðsíða 2
Marta Valgerður Jónsdóttir: Minningar frá Keflavík Það var rétt nýlega, sem ég var að blaða í Ættarskrá séra Bjarna Þorsteins- sonar á Siglufirði. Var ég svona til gam- ans að rifja upp fyrir mér nánustu frænd- ur Kristleifs rithöfundar á Stóra-Kroppi, vinar míns. Sá ég þá þar, sem ég reyndar mun hafa vitað áður, að Þorsteinn bóndi Halldór Þorsteinsson á Meiðastöðum í Garði og Kristleifur voru bræðrasynir að frændsemi, komnir í karl- legg frá séra Snorra, hinum sterka á Húsa- felli. Var séra Snorri langafi þeirra. Nú renndi ég augum yfir börn Þorsteins og tók þá eftir því að Halldór sonur Þorsteins og einn þeirra mannvænlegu Meiðastaða- systkina er fæddur 22. febrúar 1887 og því áttræður í þessum, máuði, var því sjálf- sagt að láta Faxa njóta þessa góða tæki- færis, ná í mynd og festa á blað nokkur orð um afmælisbarnið, sem allir er til þekkja vita að er öðlings- og heiðursmað- ur. Það má með sanni segja, að Halldór í Vörum hafi stundað sjóinn frá barnsaldri, fyrst með föður sínum sem hefur kennt honum sjó, en frá 17 ára aldri var hann formaður á vorvertíð og svo úr því á stærri skipum, áttæringum. Var til þess jafnað hve vel hann sigldi skipum, þótti það listasjón er hann sat við stýri og „upp í hleypti og undan sló, eftir gaf og strengdi kló“. Það var íþrótt, sögðu menn og færðust í aukana, er þeir minntust á þessa lista siglingu, já, lifnuðu allir við og jafnvel blikaði tár í auga, enda var það fögur sjón að sjá skip svífa seglum þöndum í blásandi byr og vera þess vit- andi að hugur og hönd eins manns réði þar ríkjum. Jafnvel telpukrakki, sem ekk- ert vit hafði á sjómennsku, gat lengi stað- ið á sjávarkambinum, bergnuminn og horft á svona siglingu og átt síðan þessa heillandi mynd í vitund sinni. En svo komu mótorbátarnir til sögunnar og þá var hafist handa um þá útgerð, bátarnir voru litlir fyrst, en stækkuðu jafnt og þétt. Allir bátar Halldórs i Vörum hafa heitið Gunnar Hámundarson, er hinn síð- asti sameign Halldórs og Þorvaldar sonar hans, sem er skipstjóri á bátnum, einnig Þorsteins á Borg. Halldór Þorsteinsson var ekki aðcins mikill skipstjóri heldur líka frábær afla- maður. Eftir að mótorbátar komu til sög- unnar var ógjörningur að landa heima í Garöi, því þar vantar góða höfn. Þeir út- gerðarbændur í Garði fluttu því um set á vetrarvertíð og höfðu aðsetur í Sandgerði, en allur afli af bátunum var fluttur heim til verkunar. Reyndi þá á dugnað húsfreyj- unnar, að taka vel við og hirða aflann, en samfara þeirri vinnu voru að sjálfsögðu heimilisstörf og barnagæzla. Kristjana kona Halldórs var vel þeim vanda vaxin, var hún hraust og harðdugleg, en er börn- in uxu upp, voru þau vanin við að hjálpa til við fiskverkunina, hvert eftir sinni getu. Var heimilið því ein starfandi heild. Eftir að Halldór lét af skipstjórn, hefur hann sjálfur séð um hirðingu og verkun aflans og alltaf mun hann hafa haft umsjón með þessum verkum. En það voru líka gleði- og tómstundir í Vörum. Þar var mikið sungið og var húsbóndinn þar fyrirliði í því sem öðru. Var þá oft, er stund gafst sungið af hjart- ans list. Nú eru börnin tólf öll flogin úr hreiðrinu, en þegar fjölskyldan kemur saman, og það er oft, er tekið lagið með sama gleiðibrag, er þá ættfaðirinn organ- isti og forsöngvari og allir verða eitt og börn á ný. Þegar Halldór var ungur að árum gekk hann í barnastúku, sem alltaf hefur starfað í Garðinum. Þorsteinn fað- ir hans hafði snemma gerst meðlimur Góðtemplarareglunnar og var það alla ævi síðan, hefur Halldór trúlega fetað í fótspor föður síns og er enn í dag starf- andi í Reglunni og það sem meira er, allur barnahópurinn hefur fylgt honum. Krist- jana kona hans hefur einnig frá unga aldri verið í stúkunni og hefur í því starfi sem öðrum verið manni sínum samhent, enda veitir hún hverju góðu málefni lið. Mér finnst þessi þáttur í lífi þeirra hjón- Kristjana Kristjánsdóttir anna í Vörum, vera í frásögur færandi og vissulega öðrum til eftirbreytni. Það væri færra af slysum og sorgum, sjúk- dómum og margskonar fjölskylduvanda- málum ef fleiri hefðu gengið þá götu, sem hjónin í Vörum hafa farið. Það mun vera meiri hluti Garðverja bindindisfólk enda fara dansleikir og skemmtanir allar þar fram með mestu prýði og menningar- brag. Þannig er búið í Garðinum og mættu ýmis bæjarfélög, sem í vanda eru stödd með skemmtanir, beina þangað sjón- um sínum. Kristjana í Vörum er fædd 2. nóvember 1886 í Hellukoti á Vatnsleysuströnd. Voru foreldrar hennar hjónin Vilborg Halldórs- dóttir og Kristján Jónsson bónda í Hellu- koti Pálssonar. Þau hjón fluttust nokkru síðar að Breiðagerði næsta bæ fyrir sunnan Auðna, þar bar fundum okkar Kristjönu saman á morgni lífsins, vorum, við þar samtíða í átta ár. Hún var kölluð Sjana, myndartelpa, hæglát og framar öllu góð. Hún var stóra systir, sem ævinlega var hægt að reiða sig á, hún var sterk og hraust, ég held hún hafi aldrei orðið veik og hún kvartaði heldur aldrei yfir neinu,

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.