Faxi - 01.02.1967, Blaðsíða 3
líf hennar leið fram eins og tær lind.
Svona hef ég ævinlega munað hana.
Foreldrar Sjönu fluttust íit í Leiru og
þá skildu laiðir, síðan fluttujst þau í
Garðinn og leigðu hjá Eggerti í Kothús-
um, síðar bjuggu þau í Ivarshúsum. Bæði
voru þau góð og heiðarleg í bezta máta.
Eg hef áður minnst þess í Faxa að Vilborg
var alsystir Gísla í Ráðagerði í Leiru,
voru þau frá Framnesi á Skeiðum, börn
Halldórs bónda þar, svo í Hákoti, d. 1846,
50 ára, Magnússonar og konu hans Elísa-
betar, f. 1811, d. 5 apríl 1869, Gísladóttur
bónda í Útverkum á Skeiðum, f. 1769,
Jónsonar bónda í Unnarholti í Hrepp,
Jónssonar.
Þegar ég gekk til prestsins 1903 var
ég rúmar þrjár vikur í Kothúsum hjá
Vilborgu og Kristjáni og sótti daglega
skóla að Útskálum til séra Friðriks Hall-
grímssonar. Sjana var þá heima, falleg
stúlka og fönguleg, kynntist ég henni þá
á ný, leit upp til hennar, enda vissi ég
að hún var harðdugleg og myndarleg. Atti
ég mjög góða ævi hjá þeim hjónunum
og Sjana var á ný sú góða stóra systir.
Svo hefur hún ævinlega verið mér. Það er
mikið dagsverk, sem Kristjana í Vörum
hefur skilað um ævina. Þrátt fyrir barna-
fjöldann og störfin bæði úti og inni hefur
hún einnig getað sinnt félagsmálum. Eg
hef áður minnst á bindindismálin, en hún
hefur líka verið virkur jxítttakandi í Slysa-
varnarfélaginu og Kvenfélaginu sem bæði
eru þróttmikil félög í byggðalaginu. Nú
er hún komin í sessin, saumar út og prjón-
ar á barnabarnabörnin og fleirri niðja.
Þorsteinn á Meiðastöðum, faðir Hall-
dórs í Vörum var Borgfirzkur að upp-
runa, kominn af fólki, sem stóð föstum
fótum í ætt sinni og óðali, mikið fróðleiks-
fólk með lifandi sögu aldanna í sál sinni,
stolt og skapmikið, en undir sló gott og
göfugt hjarta. Þorsteinn var sonur Gísla
bónda á Augastöðum í Hálsasveit, Jakobs-
sonar smiðs og bónda á Húsafelli Snorra-
sonar prests á Húsafeili Björnssonar.
Kona Gísla á Augastöðum var Hall-
dóra, f. 1826, Hannesdóttir bónda á Stóra-
Asi, Sigurðssonar, Auðunnssonar bónda á
Hrísurn, Þorleifssonar bónda á Hofsstöð-
um, Asmundssonar. Segir Kristleifur
fræðimaður á Stóra-Kroppi að sú ætt sé
ein þróttmesta bændaætt í Borgarfirði.
Mátti hann vel vita það rétta, svo ætt-
fróður sem hann var.
Þorsteinn á Mciðastöðum var stór og vel
vaxin, teinréttur og svipmikill. Hann var
lista sjómaður og aflamaður hinn mesti,
afburða duglegur, ágætiega vel gefinn og
skemmtilegur. Hann var langa tíð odd-
viti Gerðahrepps, hann átti frumkvæði að
stofnun Bárufélagsdeildar ásamt Eggerti
í Kothúsum, var einn af stofnendum
Fiskifélagsins í Garðinum og var fulltrúi
þess á fyrsta þingi Fiskifélags íslands. Þá
hef ég áður getið um hlut hans í Góð-
templarareglunni, má af þessu sjá að hann
hefur verið félagslyndur maður af beztu
gerð. Kona Þorsteins var Kristín, f. 23.
nóv. 1863, Þorláksdóttir á Hofi á Kjalar-
nesi, f. 22. október 1843, Jónssonar bónda
á Hofi, f. 1799, d. 1865, Runólfssonar
bónda á Ketilsstöðum o. v. Magnússonar
bónda á Bakka á Kjalarnesi, Hallgríms-
sonar, f. 1694, bónda á Bakka, Þorleifsson-
ar, bónda á Þorláksstöðum, Jónssonar.
Kona Þorleifs, 1693, var Guðrún f. 1667,
Eyjólfsdóttir bónda á Ferstiklu á Hval-
fjarðarströnd, Hallgrímssonar prests og
sálmaskálds í Saurbæ, Péturssonar.
Húsfrú Kristín á Meiðastöðum hefur
því verið áttundi liður frá séra Hallgrími
Péturssyni. Móðir Kristínar var Hólmfríð-
ur, f. 1. marz 1834 dóttir Jóns bónda í
Eyfakoti á Eyrarbakka f. 1802, Einarsson-
ar bónda í Eyfakoti, Bjarnasonar bónda á
Litlu-Háeyri Bergssonar b. og hreppstjóra
í Sölvakoti í Flóa, f. 1664, á lífi 1735,
Gíslasonar, (Dr. G. J. Bergsætt I., 198.)
Móðir Hólmfríðar var Ingveldur, f. 10.
maí 1796, Jónsdóttir bónda í Tungu í
Grafningi Asbjörnssonar. Þau Meiðastaða-
hjón voru bæði alin upp í Melbæ í Leiru
hjá Kristínu Magnúsdóttur búandi ekkju
þar, mikilli myndar- og rausnarkonu, hún
var hálfsystir Hólmfríðar móður Kristínar
á Meiðastöðum. Kristín í Melbæ átti ekki
börn sem lifðu, cn þau Þorsteinn og Krist-
ín voru börnin hennar enda reyndust þau
henni eins og beztu móður. Þau bjuggu
nærri 20 ár í Melbæ en þann 29. des. 1899
brann þar íbúðarhúsið, allt innbú, fjós og
2 kýr, bjargaðist fólkið nauðlega og á
síðustu stundu náði Þorsteinn fóstru
sinni út um loftglugga, sakaði hana lítið
sem ekki en Þorsteinn skaðbrendist á
andliti og höndum, svo einnig Vilhelmína
dóltir hjónanna, lá hún lengi í brunasár-
um hjá hjónunum í Bakkakoti í Leiru,
þcim Sigríði Stefánsdóttur ogEiríki Torfa-
syni. Þau hjónin í Melbæ stóðu nú uppi
allslaus á miðjum vetri með 9 börn sín,
Kristínu fóstru sína og Hólmfríði móður
Kristínar húsfreyju. En lítt munu þau
hafa brostið kjark. Þau fengu árið eftir
ábúð á Meiðastöðum í Garði, sem var
með betri jörðum þar. Hófst nú hagur
þeirra á ný, heimilið stækkaði, því enn
bættust 5 börn við, urðu því börnin 14
sem upp komust. Einn son Jón að nafni
andaðist ungur. Var þessi systkinahópur
framúrskarandi mannvænlegur.
Húsfrú Kristín var mikil myndarkona
í sjón og raun, fríð sýnum og hýrleg mitt
í hópnum sínum. Hún fór sjaldan út af
heimilinu, þar var hún öll, enda nóg að
vinna, allt var unnið og saumað heima
og mikil hagsýni í hvívetna, en börnin
ævinlega vel klædd þótt margt væri gert
upp úr gömlu, og heimilið allt bar vott
um þrifnað og góða siðu, þar ríkti glað-
værð og gamansemi, þó í liófi, margt
þurfti að vinna þótt aldurinn væri ekki
hár og uppeldið var mikið gott. Mér eru
þau hjón í fersku minni er þau komu
prúðbúin í Útskálakirkju til messu, með
börn sín, hún fríð og fyrirmannleg, hann
þróttmikill og höfðinglegur. Nú eru þau
Meiðastaðasystkinin, 6 bræður og 4 systur,
horfin af þessu sjónarsviði, eftir lifa Hall-
dór útgerðarmaður í Vörum, Helga hús-
freyja á Gauksstöðum í Garði, Una og
Hallbera búsettar í Reykjavík. Verða
þessurn systkinum öllum gerð belri skil
í næsta blaði Faxa.
Systkinin í Vörum, börn Halldórs og
Kristjönu eru þessi:
I. Þorsteinn Kristinn útgerðarmaður og
bifreiðarstjóri í Borg í Garði.
Kona lians er Anna Sumarliðadóttir.
2. Vilhjálmur Kristjáai bifrdð'arstjóri,
Brekku í Garði.
Kona hans er Steinunn Sigurðardóttir.
3. Halldóra býr í Keflavík.
4. Gísli Jóhann skipstjóri Suðurgötu 43
í Keflavík.
Kona hans er Lovísa Haraldsdóttir.
5. Steinunn, maður hennar er Benedikt
Guðmundsson sjómaður, Sóltúni 16
Keflavík.
6. Guðrún, maður hennar Sigurbjörn
Tómasson skipasmiður, Skólavegi 3
Keflavík.
7. Elísabet Vilborg, maður hennar er
Jónatan Agnarsson skipstjóri, Faxa-
braut 33D Keflavík.
8. Þorvaldur skipstjóri og útgerðarmaður
Vörum, Garði.
Kona hans er Ingibjörg Jóhannesdóttir.
9. Kristín býr í Reykjavík.
10. Marta Guðrún, maður hennar er
Kjartan Asgeirsson vélstjóri Bjarrna-
landi í Garði.
II. Þorsteinn Nikulás skipstjóri og útgerð-
armaður, Faxabraut 34, Keflavík.
12. Karítas Hallbera, maður hennar er
FAXI — 19