Faxi - 01.02.1969, Blaðsíða 13
Frá orlofsnefnd kvenna í Keflavík.
Svo sem kunnugt er var með lögum frá Al-
þingi nr. 45/1960 samþykkt að koma á orlofs-
nefndum húsmæðra einni eða fleiri, á starfs-
svæði hvers héraðssambands kvenfélaga. I
lögunum segir meðal annars að fé til orlofs-
nefndanna verði fengið með þessum hætti:
„1. Ríkissjóður greiðir árlega upphæð, sem
svarar til minnst 10 kr. fyrir hverja húsmóð-
ur á landinu.
2. Með framlögum frá bæjar- og hreppsfé-
lögum.
3. Með framlögum kvenfélaga og kvenfé-
lagasambands.
4. Með gjöfum, áheitum og öðrum hætti,
sem orlofsnefndum og kvenfélögum þykir
henta.“
í 4. grein laganna segir einnig: „Rétt til or-
lofsfjár eiga allar konur, sem veita heimili
forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf.“
Eins og að likum lætur skv. 1. gr. laganna
hefur það komið í hlut kvenfélaga á hverjum
stað að skipa orlofsnefndir, til þess að koma
orlofsstarfseminni á laggirnar og veita henni
stuðning.
Fyrstu árin eftir gildistöku laganna voru
farnar orlofsferðir til ýmissa staða og dvalið
í héraðsskólum, en nú á s. 1. ári, eða nánar
tiltekið þann 29. júlí, voru kaup fest á ríkis-
jörðinni Gufudal í Olfusi. Að kaupunum
stóðu þessir aðilar: Orlofsnefndir húsmæðra
í Gullbringu- og Kjósarsýslu, í Keflavíkur-
kaupstað og Kvenfélagasamband Gullbringu-
og Kjósarsýslu. Kaupverð eignarinnar var kr.
2.000.000,00. Þann 1. september n. k. á að vera
búið að greiða kr. 1.100.000,00, en eftirstöðv-
arnar, kr. 900.000,00, eiga að greiðast á næstu
10 árum.
Eins og að líkum lætur er þetta mikið átak
og verður ekki komið í framkvæmd, nema
með samstilltum vilja. Reynt hefur verið að
afla fjár með ýmsu móti, t. d. happdrætti,
bingó, bözurum o. fl.
Þann 1. marz n. k. ætla kvenfélagskonur í
Keflavík að efna til köku-bazars í Tjarnar-
lundi, og verður þar tekið á móti kökum til
bazarsins frá kl. 10—12 f. h. laugardaginn 1.
marz.
Við treystum á allar konur, sem áhuga
hafa fyrir málinu að bregðast vel við og gefa
kökur.
Formaður bazar-nefndar er frú María Her-
mannsdóttir, sími 1657, og veitir hún allar
nánari upplýsingar.
F. h. Orlofsnefndar kvenna í Keflavik.
Sessclja Magnúsdótlir.
Dýraverndarinn.
Nýlega hefir Faxa borizt 6. tbl. Dýravernd-
arans 1968 — jólablaðsins, en það er gefið út
af Dýraverndarfélagi íslands og er ritstjóri
þess Guðmundur G. Hagalin rithöfundur.
Blaðið er nú sem fyrr vandað að gerð og
prýtt mörgum fallegum myndum.
Meðal greina í blaðinu má nefna: Attræð-
ur frumherji eftir Guðm. G. Hagalín, Aðal-
fundur Dýraverndarfél. Reykjavíkur, Furðu-
legt gáleysi, Reynistaðagráni eftir Guðlaug
Guðmundsson, Hvítabjarnarhúnn í fangelsi í
Hafnarfirði, Risafugl frá liðnum öldum, Aðal-
fundur Sambands dýraverndunarfélags ís-
lands, Úthlutun úr verðlaunasjóði, Hörmu-
legt athæfi, furðuleg skrif o. fl. o. fl.
Odýr málaravinna.
Tveir ungir málarar, Sigurður Karlsson og
Atli Hraunfjörð, auglýsa hér á öðrum stað í
blaðinu mjög vandaða en ódýra málaravinnu.
A lager eiga þeir talsvert magn af máln-
ingu á gamla verðinu og með því að bjóða
vinnu sína á sérstöku vetrarverði, telja þeir
sig geta veitt húseigendum mjög hagstæða og
góða þjónustu.
Leiðrétting.
I síðasta tbl. Faxa, þar sem sagt var frá
gjöfum til Keflavíkurkirkju, slæddist inn
meinleg villa í sambandi við minningargjöf
um hjónin Þóru G. Sigurgeirsdóttur og Jó-
hannes Egilsson frá Syðraósi í Skagafirði, en
gjöfin var frá sonum þeirra Agli og Ingiberg
og fjölskyldum þeirra.
í blaðinu stóð að gjöfin væri kr. 1.000,00,
en átti að vera kr. 10.000,00. Eru hlutaðeig-
endur beðnir afsökunar á þessum mistökum.
Þakkir frá Elliheimilinu Hlévangi.
Um þessi jól, svo sem önnur liðin, urðu
margir til þess að senda vistfólkinu á Elli-
heimilinu Hlévangi gjafir og hlýjar kveðjur.
Viljum við sérstaklega færa Lions-klúbb
Keflavíkur, Sjálfstæðiskvennafélaginu Sókn,
Ólafi Lárussyni útgerðarmanni í Keflavík og
reyndar mörgum öðrum þakkir fyrir góðar
gjafir og hlýhug í okkar garð.
Heimsóknir mjög kærkomnar fengum við
einnig um jólin og nýárið, sem urðu okkur
til óblandinnar gleði og ánægju, og biðjum
blessunar og þakklætis því fólki, sem til
okkar kom. Viljum við þakka sérstaklega
sóknarprestinum, séra Birni Jónssyni, Kefla-
víkurkvartettinum, sem aðstoðaði við messu-
gjörð, skátastúlkum úr Njarðvíkum, Lions-
klúbb Njarðvíkur, Haraldi Guðjónssyni og
hans söngfólki og reyndar mörgum fleirum.
Af alhug óskum við öllum gæfu og Guðs-
blessunar um alla framtíð.
F. h. vistfólksins á Hlévangi,
Sesselja Magnúsdóttir.
Flóðahœtta við Hátún.
Við, undirritaðir húseigendur við Hátún,
viljum vekja athygli bæjarstjórnar Keflavík-
ur á hinu hættulega ástandi, sem skapast
hefur vegna flóða við Hátún ofanvert. Sök-
um skorts á niðurfalli safnast þarna saman
heiðavatn, sem áður rann yfir lóðir og inn í
kjallara. Flestir húseigendur gripu þá til þess
ráðs að víggirða lóðir sínar með háum stein-
görðum. Myndast þarna stórt og djúpt lón,
sem er lífshættulegt fyrir böm, enda mun
hér um meira en meters djúpt vatn að ræða.
Svo og er alltaf sú hætta yfirvofandi, að garð-
arnir bresti og flóðið skelli á húsunum. Marg-
ir hafa reynt að bendna bæjaryfirvöldunum
á þetta ástand en hingað til hafa þau aðvör-
unarorð verið töluð fyrir daufum eyrum. Ef
ekkert verður nú þegar aðhafzt, þrátt fyrir
þetta bréf, lýsum við hér með fullri ábyrgð
á hendur bæjarstjórn.
Virðingarfyllst.
Keflavík, 2. febrúar 1969.
Hilmar Jónsson, Hátúni 27,
Sveinbjörn Davíðsson, Hátúni 26,
Reynir Ölversson, Hátúni 28,
Eyjólfur Þór Jónsson, Hátúni 25,
Auðunn Guðmundsson, Hátúni 23,
Indriði Adolfsson, Hátúni 22,
Halldór Óskarsson, Hátúni 23,
Gunnar Guðjónsson, Hátúni 21,
Arni Hermannsson, Hátúni 26,
Ólafur Jónsson, Hátúni 30,
Ingiber M. Ólafsson, Hátúni 31,
Björn A. Bjarnason, Hátúni 33,
Ingvi Br. Jakobsson, Hátúni 35,
Þorleifur Gestsson, Hátúni 32,
Halldór Arason, Hátúni 39,
Friðrik R. Bjarnason, Hátúni 34,
Sigurður Kristinsson, Hátúni 34,
Stefán Ólafsson, Hátúni 29,
Eyjólfur Helgason, Hátúni 28,
Halldór Lárusson, Hátúni 21,
Guðfinnur Sigurvinsson, Hátúni 37.
Svipmynd af flóðunum.
F A XI — 29