Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1972, Blaðsíða 4

Faxi - 01.10.1972, Blaðsíða 4
FAXl Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Kitstjóri og afgreiðsluir.aður: Magnús Gislason. Blaðstjórn: Gunnar Sveinsson, .Jón Tómasson, Margeir Jónsson. Auglýsingastjóri: I’órir Maronsson. \'erð hlaðsins í lausasölu kr. 30,00. Aljtýðuprentsmiðjan h.f. Myndlist og menning Sennilega er sköpunarþörf mannsins jafngömul lionum sjálfum. Kemur hún fram á margan máta, og meðal annars í myndgerð, svo sem teikningum, málverkum, höggmyndum, svo að nokkuð sé nefnt. Margar aldir eru liðnar síðan myndin fór að verða sjálfsagður og blátt áfram nauðsynlegur hlutur í hýbýli manna. Og í dag er varla til sú íbúð, að þar gefi ekki að líta eina eða fleiri myndir, til að lífga upp á umhverfið. Vissulega væri snauðara um að litast á veggjum, ef engin mynd væri til staðar. I heimi myndlistarinnar eru margir kallaðir, en fáir útvaldir, eins og á öllum sviðum þess sem nefnt er list. Baráttan til að öðlast viðurkenningu, sem lista- maður, er oftast afar hörð og sumir fá hana ekki fyrr en þeir hafa gengið fyrir ætternisstapann, þá loks verða menn þess áskynja, að mikill meistari hefur verið á ferðinni. Þótt menn finni köllun hjá sér til myndgerðar, stefna þeir mismunandi liátt á veg listarinnar. Allir stunda listir af innri þörf, en mönnum er ekki jafnt gefið að leggja verk sín undir mæliker samborgaranna. Sumir mála aðeins fyrir sjálfan sig og fá þannig útrás sköpunarþarfar sinnar, en öðrum finnst meira um vert að fá mat samborgaranna á verk sín, sem oftast felst í því hve eftirsótt þau reynast sem söluvara, og er hvort tveggja fyllilega heilbrigt. íslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga fyrir myndlist, en ekki þótti hlutur okkar Suðurnesjamanna ýkjamikill á þeim vettvangi fyrr á árum. Mátti oft heyra það á utanaðkomandi fólki, að því þætti Mtið koma til menningar- áhuga okkar og við værum í þeim efnum langt á eftir öðrum landshlutum. Meira að segja heyrðist þingmaður nokkur, úr öðrum landsfjórðungi, spyrja Suðurnesjamann að því, í fullri alvöru, hvort hér væru til nokkrar bækur. Þessi spurning sannar betur en margt annað, álitið, sem landsfólkið hafði á Suðurnesjum, og alltof margir virðast hafa enn. Hvað mótar slí'kar skoðanir væri út af fyrir sig rannsóknarefni, en í fljótu bragði má ætla að hógværð okkar og lítill áhugi fyrir að flíka Suðurnesjum, eigi sinn þátt í þessum skiln- ingi manna. Hitt ber Mka að athuga, að lífsbaráttan var hörð og glíman við Ægi, sem öll afkoma okkar byggðist á, veitti mönnum ekki margar aflögu- stundir. Til að reka af okkur slyðruorðið að fullu og öllu ættu Suðurnesja- menn að hugsa um það eitt að vinna saman að hinum ýmsu menningarmál- um og styðja allir sem einn hverja þá viðleitni sem fram kemur til menn- ingarauka. Aðeins fá ár eru liðin frá því að aðstaða skapaðist til sýninga fyrir myndlistarmenn. Nokkrir Suðurnesjamenn riðu á vaðið og sýndu þar verk sín. Síðan hafa margir komið á eftir og nú sækjast landskunnir listamenn eftir að syna her syðra, — og sanna undirtektir fólks að Suðurnesjamenn kunna vel að meta sM'kt framlag til aukningar menningunni.. emm. ••••••••••••• Ökumenn, bifreiðaeigendur. Láfið okkur gera við hjólbarðana Vanir menn. - Fijóf afgreiðsla. Hjólbarðaverkstæði ísleifs Sigurðssonar Aðalstöðinni. ••••••••••••• 140 — F A X I

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.