Faxi - 01.10.1972, Blaðsíða 8
ÍÞRÓTTIR
HEEUA
0
ALL!
LSVARTIR
þjálfari hjá liðinu Haka, kom og bauð
Kjartan Sigtryggsson, sem eins og kunn-
ugt er, gegnir lögregluþjónsstarfi hjá Sam-
einuðu þjóðunum, hefur sent FAXA bréf
það sem birtist hcr á eftir, og kunnum við
honum hinar beztu þakkir fyrir.
„Loksins læt ég nú verða af því að skrifa,
eins og ég var búinn að lofa, en ég biðst
fyrirgefningar á, hvað það hefur dregizt.
Ymislegt hefur drifið á dagana, síðan ég
kom hingað til Júrvíkur. Eftir að hafa
dvalið hérna í tvo mánuði, áttaði ég mig
á því, að nógur tími var aflögu hjá mér,
svo ég ákvað, að draga fram fótboltaskóna
og skella mér útí íþróttina af fullum krafti.
Hið fyrsta var auðvitað, að reyna að
finna eitthvert lið, til að æfa með. Ég fór
því að svipast um hér á knattspyrnuvöllun-
um, hvort ekki væri til lið, sem ég gæti
komizt í. Sú athugun bar þann árangur, að
mér var boðið að leika með liði, sem
„Zenith“ heitir, og tók ég því boði með
þökkum, og var mér jafnframt sagt, að
mæta til æfinga hjá þeim næsta sunnudag.
Þegar hann loks rann upp, mætti ég í
fullum skrúða með pump og prakt, en
augun í mér urðu nokkuð stór, þegar ég
sá alla meðspilara mína, þeir voru allir
kolsvartir. Með þessu liði lék ég nokkra
leiki, sem miðivörður og hafði ánægju af.
En svo bar það til eftir einn leikinn, að
mér að leika stöðu markvarðar hjá þeim.
Eg sagði honum eins og var, að ég væri
ekki í nógu góðri æfingu, til að spila í
markinu hjá þeim, en svo sló ég þessu
bara upp í kæruleysi og lét tilleyðast. —
En erfitt var það. A einum mánuði léttist
ég um 15 pund (ég sé nú reyndar ekkert
eftir þeim), en að þeim tíma loknum lék
ég nokkurs konar úrtökuleik hjá þeim, um
það, hvort menn fengju samning.
Tóti Trymbill (það er Þórir Maronsson.
Innskot blaðsins)), var viðstaddur þennan
leik og hann sagði að ég hefði staðið mig
þokkalega. Sennilega var það rétt, því fé-
lagið bauð mér samning, en það er ekkert
offjár, 40 dollarar fyrir hvern leik, en auk
þess fáum við ýmiskonar fríðindi, sem erf-
itt er að meta til fjár.
Deildin, sem Hota leikur í, heitir „Ger-
man American League“, og eru liðin fjór-
tán í henni. Við höfum núna leikið fimm
leiki og erum í 2.—3. sæti með sex stig.
Við höfum unnið tvo leiki, tvö jafntefli
og eitt tap; búnir að skora sex mörk, en
fá á okkur tvö. Þykir árangurinn góður,
einkum ef tekið er tillit til þess, að við
erum fimm nýliða.
Hota er þekkt lið hérna, þeir urðu deild-
armeistarar 1970, en númer tvö í fyrra,
'Kjartan Siglryggsson í lögreglubúningi S.Þ.
töpuðu úrslitaleiknum í vítaspyrnukeppni.
Félagið var stofnað árið 1922, svo það
verður 50 ára á þessu ári. Með félaginu
leika nokkrir atvinnumenn, sem leika með
öðrum liðum í atvinnudeildinni. Leikir í
þeirri deild fara fram á laugardögum, svo
þessir félagar geta spilað með okkur á
sunnudögum.
Knattspyrna er ekki hátt skrifuð hérna
í Bandaríkjunum, en þó eru um 1000 lið
í New York og þar af eitt full-atvinnulið,
og urmull af hálfatvinnuliðum.
Jæja, þá er bezt að fara að slá botninn í
bréfið í þetta sinn. Eg hef í hyggju að
skrifa seinna og segja meira frá dvölinni
hérna. Að lokum bið ég að heilsa öllum
vinum og kunningjum heima.
Kjartan Sigtryggsson,
Andersson Room 3b-9, JJnited Nations,
New Yor/{ 10017, N. Y. U. S. A.
Munið
SP0RTVÍK
Hafnargötu 36 - Keflavík
Nýff símanúmer: 2006
v-------------------------------------------->
144 — FAXI