Faxi - 01.05.1973, Side 4
FAXI
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík
Rifstjóri og afgreiðslumaður: Magnús Gíslason
Blaðstjórn: Gunnar Sveinsson, Jón Tómasson, Margeir Jónsson
Auglýsingastjóri: Þórir Maronsson
Verð blaðsins i lausasölu kr. 30.00
Setning og prentun: GRAGAS sf.
r - #v#^\#\#\#\#^#\#\#\#\#\#s#^
Suðurnesjamenn, minnumst
sameiginlega 1100 ára afmœlis
islandsbyggðar
Á undanförnum árum hefur sú þróun átt sér stað, að byggðarlög Reykja-
nesskagans hafa þjappað sér meira saman um sameiginleg áhuga- og hags-
munamál. Samstarfsnefndir hafa verið stofnaðar, byggðar hafa verið sam-
eiginlega ýmsar þjónustustofnanir, og sveitafélögin í kjördæminu hafa stofn-
að með sér samband.
Mikið hefur verið rætt um sameiningu Njarðvíkurhrepps og Keflavíkur-
kaupstaðar, og hér í blaðinu var stungið upp á því, að stofnaður væri einn
kaupstaður við Stakksfjörð, er bæri nafnið Reykjaneskaupstaður. Tillagan
fékk góðar undirtektir, og málið þokast áfram þó hægt fari.
Ökumerm,
bifreiðaeigendur
Látið okkur gera
við hjólbarðana
Vanir menn
Fljót afgreiðsla
TT
Hjólbarðaverkstœði
ísleifs Sigurðssonar
Aðalstöðinni
Stór atburðir hafa nú gerzt í þessum málum á Alþingi íslendinga, er nú
fyrir nokkru var samþykkt að sameina öll sveitafélög sunnan Hafnarfjarðar
í eitt lögsagnarumdæmi, og gera bæjarfógetann í Keflavík að sýslumanni
Gullbringusýslu. Er þar merkum áfanga náð í þróunarsögu Suðurnesja, og
jafnframt lokið því leiðinda ástandi, að íbúar byggðarlaga hér á Suðurnesj-
um þurfi að sækja til Hafnarfjarðar ýmsa eðlilega þjónustu.
Nú stendur fyrir dyrum að minnast 1100 ára afmæli (slandsbyggðar á
næsta ári. Er áformað að heima í héraði verði smærri hátíðir haldnar, en
síðan ein stór hátíð á Þingvöllum eða í Reykjavík.
Tillaga mín er sú, að Suðurnesjamenn haldi sameiginlega hátíð, á ein-
hverjum fögrum stað í héraðinu. Kostir við að halda sameiginlega hátíð, en
hokra ekki hver í sínu horni, er að með því undirstrikum við þá þróun, er átt
hefur sér stað, og jafnframt yrði þetta mjög skemmtilegt verkefni fyrir sveit-
arfélögin og félagssamtök héraðsins.
Sannleikurinn er sá, að Suðurnesjabúa skortir skemmtilegan útivistarstað
til að halda stórar samkomur, þar sem mikill hluti íbúanna gæti komið
saman á hátíðlegum stundum til leikja og skemmtunar. Og hér er mjög gott
tækifæri til að hefjast handa um að koma upp slíkum stað.
Ýmsirstaðir hafa verið nefndir, s.s. Höskuldarvellir, Svartsengi, Vigdísar-
vellir, og efalaust eru margir staðir sem koma til greina, og hafa sína kosti
og galla.
Vigdisarvellir hafa marga kosti að bjóða í þessu augnamiði, og þann stað
tel ég að ætti að taka sérstaklega til athugunar í þessu sambandi.
Verði af slíkum hátíðahöldmu, ættu þau ekki að greiðast af sveitafélög-
unum, nema að einhverju leyti; heldur borin uppi af félagasamtköum byggð-
arlaganna og undirbúin og unnin í sjálfboðavinnu, með heimafengnu
skemmtiefni.
Við verðum að íhuga málið, það er lítill tími til stefnu.
Gunnar Sveinsson
Ég er að velta því jyrir mér, hvort Suður-
nesjatíðindi haji kastað sauðargœrunni
upp á Jökul
80 — F A X I