Faxi - 01.05.1973, Blaðsíða 10
Mikil söluaukning
Ferðamenn skoða íslenzku ullarvöruna, sem mjög er eftirsótt
Verzlun íslenzks markaðar hf. á Kefla-
víkurflugvelli hefur nú starfað í 31 mán-
uð og hefur heildarvörusala fyrirtækisins
á því tímabili numið kr. 201.9 milljón-
um. Þet.ta kom fram á aðalfundi félags-
ins, sem haldinn var nýlega.
Eins og kunnugt er af fyrri fréttum,
er íslenzkur markaður hf. stofnaður af
ýmsum stærstu framleiðendum útflutn-
ingsvara í þeim tilgangi að fá heimild til
að reka verzlun í flugstöðinni á Keflavík-
urflugvelli til að selja framleiðslu sína og
kynna og gera markaðsathuganir með
nýjar vörur, umbúðir o.fl., einnig til að
leita eftir hugmyndum um nýjar fram-
leiðsluvörur. Með tilkomu þessa fyrir-
tækis opnuðust nýir og stærri möguleikar
fyrir íslenzkar afurðir og iðnaðarfram-
leiðslu.
Þegar íslenzkur markáður hf. hóf
starfsemi sína, hafði Ferðaskrifstofa rík-
isins rekið verzlun á flugvellinum um
nokkurra ára bil og selt ýmsan varning,
bæði til íbúa á flugvellinum og til far-
þega í millilandaflugi, og nam t.d. vöru-
sala í þeirri verzlun árið 1969 kr. 27.2
millj., en fyrsta heila starfsár íslenzks
markaðar hf. nam vörusalan kr. 72.4
millj., en var þá einungis um vörusölu til
farþega í millilandaflugi að ræða.
í viðræðum um verzlunaraðstöðu fyrir
íslenzka iðnframleiðendur í flugstöðvar-
byggingunni kom í ljós, að ekki var hús-
næði fyrir hendi í byggingunni, þar sem
hún annaði vart þeirri miklu umferðar-
aukningu, sem 'hafði orðið á þeim tíma.
Fyrirtækið reisti því á eigin kostnað 615
fermetra viðbyggingu við flugstöðina fyrir
verzlunaráðstöðuna. Kostnaður við bygg-
inguna nam kr. 8.5 milljónum, og var
byggingin afhent ríkinu til eignar, en út-
lagður byggingarkostnaður reiknaður sem
fyrirfram greidd húsaleiga.
í samningi Utanríkisráðuneytisins við
íslenzkan markað hf. var svo kveðið á,
að íslenzkur markaður hf. skyldi greiða
Ferðaskrifstofu ríkisins gjald, kr. 21.00
af hverjum transitfarþega, en þessi
greiðsla skyldi skoðast sem þóknun til
Ferðaskrifstofunnar fyrir aðstöðumissinn
á flugvellinum. Þá keypti íslenzkur mark-
aður vörulager Ferðaskrifstofunnar og
innréttingu sölubúðarinnar.
Á sl. stafsári, 1. nóvember 1971 til
31. október 1972, nam heildarvörusala
fyrirtækisins kr. 86.7 milljónum, þar af
voru gjaldeyrisskil til Seðlabanka íslands
kr. 81.7 milljónir, og var fyrirtækið aftui
á sl. ári þriðji stærsti a.flandi gjaldeyris
vegna ferðamanna í landinu. Aðeins
flugfélögin tvö eru stærri.
Umferð transitfarþega árið 1972 var
346.326 um flugvöllinn, og halði hún
þá minnkað úr 374.374 árið 1971, en
farþegaumferð yfir Atlantsh.afið með
flugvélum jókst um 5-6% á sama tíma-
bili. Lenging þverbrautar, aukinn ör-
yggisútbúnaður og sókn yfirvalda til að
kynna og auglýsa hagkvæmni lendinga á
flugvellinum æt.ti að geta breytt þessari
þróun.
Eins og áður heíur komið fram, selur
íslenzkur markáður hf. eingöngu íslenzk-
ar afurðir og iðnaðarvöiur, og er sala
þessara vara umtalsverð í beildarútflutn-
ingi iðnaðarins, t.d. nam sala ullarafurða
hjá fyrirtækinu 11,1% af heildarútflutn-
ingi þeirrar vöru.
Söluvörum verzlunarinnar má skipta í
15 meginflokka, sem seldust á sl. ári:
Famaður úr ull millj. kr. 37.4
Værðarvoðir 3.0
Lopi 0.2
Fatnaður úr skinnum 7.3
Púðar, mottur, o.fl. úr skinnum 3.1
Smáhlutir úr leðri 0.9
Loðsútaðar gærur 5.6
Húðir og skinn 1.0
Fatnaður úr gerviefnum 1.8
Skartgripir 5.7
Keramik og postulín 5.6
Matvara 5.4
Póstkort og myndir 2.3
Bækur, blöð og tímarit 1.9
Ýmsar aðrar vörur 4.9
Samtals 86.7
Þrátt fyrir þá erfiðleika sem fyrirtæk-
ið hefur átt við að stríða vegna hins háa
transitfarþegaskatts, hefur verið unnið
nokkuð áð kynningu, markaðskönnun-
um og athugunum á sölumöguleikum ís-
lenzkrar iðnaðarframleiðslu erlendis.
Fyrirtækið réðst t.d. á sl. umri í samráði
við ýmis framleiðslufyriitæki, að gefa út
í annað sinn glæsilegan póstpöntunar-
verðlist.a. Listinn, sem er 48 litprentáðar
síður að stærð, var prentaður í 100.000
eintökum og hefur honum verið dreift
víða um heim, t.d. hafa pantanir og
fyrirspurnir borizt jafnvel frá Japan og
Ástralíu, en megin hluti pantana er frá
Bandaríkjunum.
Hinn sérstæði íslenzki varningur, sem
sýndur er og boðinn í list.anum, hefur
vakið nrikla athygli, og hafa umsagnir
birzt í fjölda erlendra blaða og tímarita.
Sérstök jólagjafaþjónusta var boðin í list-
anuin, og voru t.d. í nóvember og des-
ember sendir nær 1800 „jólapakkar“ frá
fyrirtækinu.
tslenzkur útflutningsiðnaður vænt.ir
mikils af starfsemi og möguleikum þeim,
sem fyrirtækið hefur skapað honum, og
hafa ýmsar upplýsingar fengnar úr fyrir-
tækinu, komið frainleiðendum að miklu
gagni í viðleitni þeirra til að skapa verð-
mætari og seljanlegri framleiðsluvörur.
Framkvæmdastjóri íslenzks markaðar
hf. er Jón Sigur'ðsson.
86 — F AX I