Faxi - 01.05.1973, Qupperneq 5
Stœrri verzlun - aukið
vöruúrval í Skemmunni
— Verzlunarrýmið í Skemmunni, að
Hafnargötu 62, var orðið ónóg, svo við
tókum þann kostinn að byggja við húsið
100 ferm., á tveim hæðum. Um annað
var ekki að ræða til að geta sýnt við-
skiptavinum okkar góða og sjálfsagða
þjónustu, sagði Gunnar Sveinsson, kaup-
félagsst.jóri, í stuttu spjalli við Faxa. —
Við þessa stækkun eykst verzlunarrýmið
um 200 fermetra, en þessu til viðbótar
fengum við til um umráða 140 ferm. í
Samvinnubankabyggingunni.
— Við stækkunina gátum við aukið
vöruúrvalið, en við fluttum búsáhalda-
deildina frá Hafnargötu 30, úr kjallar-
anum, og leikföng, sem áður voru í
Vinnufatabúðinni á Hafnargötu 61, í
Skemmuna.
— Salan hefur aukizt til muna síðan
við gerðum þessar breytingar, og ég
vona að hún aukist enn rneir, þegar við
höfum gengið frá fyrirhuguðu bifreiða-
stæði, sem konra á þar sem Hafnargata
64 er, en þeirri lóð höfum við fest kaup
á. Með þessu móti höfum við komið und-
ir eitt þak flestum þeim vörum, sem
fólk þarf t.il híbýla sinna. Á efri hæðinni
eru hreinlætistæki, gólfdúkar, flísar og
teppi, svo eitthváð sé nefnt. Á neðri hæð-
inni eru leirvörur og ýmis búsáhöld, ís-
skápar og frystikistur. Einnig eru þar út-
varpsviðtæki (ferðatæki), það bið ég
fólk iað athuga, þótt ekki heyrist glymj-
andi tónlist úr útihátölurum hjá okk-
ur. . . .
Deildarstjóri Skemmunnar er Haf-
steinn Magnússon, en auk hans starfar
þrennt við afgreiðslu.
Séð inn á ejri hœð Skemmunnar
Ljósm. Heimir
Hafsteinn Magnússon, deildarstjóri, ásamt tveimur viðskiptavinum
Ljósm. Heimir
F A X I — 81