Faxi

Volume

Faxi - 01.10.1979, Page 6

Faxi - 01.10.1979, Page 6
Rætt við Hinrik í Merkinesi: Smíðar skipslíkön í ellinni ,,Barki að framan og fyrirrúm, andófsrúm, grjótrúm, eða bal- lestarrúm, afturrúm og austur- rúm. í grjótrúminu voru hafðir líðléttingar, frekar ábyrgðar- litlir. Hraustir menn voru venju- lega framámenn og voru á fyrstu þóftu. Andófsmenn sátu á annarri þóftu. í austurrúmið mátti ekki láta fisk, þá var ekki hægt að ausa skipið.“ Viðmælandi okkar bendir á eitt hólfið af öðru á áraskipslíkaninu sem stendur á borðstofuborðinu. .•.Þetta er annað skipslíkanið sem ég smíða um ævina, hitt voru stærri bátar. Eg gat ómögulega setið auð- um höndum," segir hann með glettni í svip, ,,og hef dundað við smíðina undanfarna mánuði. Hún hefur tekið um 170 stundir, Ætli ég fái ekki 100 þúsund krónur fyrir líkanið. Þeir i Þorlákshöfn hafa fal- ast eftir gripnum, enda er lögun bátsins einmitt kennd við þann stað.“ Hver er svo þessi hagleiksmaður, sem smiðar skipslíkön hér á Suður- nesjum, sem krefjast natni og nákvæmni? Hann hlýtur að vera með hagar hendur og þckkja vel til gömlu áraskipanna. Af hreinni tilviljun rákumst við Jón Tómas- sori, blaðstjórnarmaður Faxa, inn til Hinriks Ivarssonar i Merkinesi í Höfnum, i vor, og þá var hann að leggja seinustu hönd á slíkt likan. Einn s u n n u d a gs m o r gu n á öndverðu hausti lögðum við Guð- mundur Snorrason, Njarðvíkingur, leið okkar að Merkinesi til aðskoða þessa meistarasmíð Hinriks, sent fengist hefur við margvíslega hluti um ævina, í vcraldlegum og and- legum efnum, og víða hefur komið fram, en hitt vita færri, um líkan- sntíðina, nýjasta áhugamál áttræðs manns. Hinrik tók okkur Guðmundi vel, fannst reyndar ósköp lítið til smíð- innar koma, en var aftur á móti fús til að veita okkur allan þann fróð- leik sem hann bjó yfir um Þorláks- hafnarskipin og áraskip yfirleitt. „Þetta er klífir og þetta er fokka, stórsegl og aftursegl, - þegar sigld- ur var beitivindur, þá átti fokkan að kala fyrst, þegar rétt varhagaðsegl- um og afturseglið næst,“ segir Hin- rik og bendir okkur á hvert seglið af öðru á tignarlegu líkaninu, „svo kemur klífirinn, en seinast stór- seglið." „Þetta er teinæringur," svarar Hinrik þegar við spurðum nánar um gerð bátsins. „Tólfróinn tein- æringur var skip sem var tveimur til þremur fetum lengri cn venjulegur teinæringur. Rúmið var miðað við fet og hvert fet var um þrjú fet. Ef þau voru aðeins lengri var sett lausaþófta sem hægt var að taka þegar verið var að athafna sig við þorskanet og þess háttar. Lausa- þóftunni var svo skellt í þegar tekið var til við árara. Ekki er ég viss um hvað skipin voru löng og hvað þau gátu borið i skippundum, ég var soddan unglingur þá, en áttæring- arnir voru einu rúmi styttri en þeir sem við höfum talað um. Líkast til hafa þeir verið um 39 fet stafna á milli." „Þetta er Þorlákshaf'narskip, eins og ég gat um áðan. Það voru þrír menn sem smíðuðu skip þarna eystra um sama leyti, Hallgrímur á Kalastöðum á Stokkseyri og svo Stéttarbræður, Jóhannes og ég held Guðmundur Sigurjónssynir, - faðir þeirra var líka skipasmiður. Steinn var svo skipasntiður á Eyrarbakka og um hann var sagt að hann notaði aldrei tommustokk, aðeins stafinn sinn til að mæla með. Oll skip smiðaði hann undir berum himni. Ég man eftir honum sem smástrák- ur og sá báta í smíðum.“ Hinrik snýr sér aftur að líkaninu og þylur fyrir okkur ýmis heiti skipshlut- anna. „Það eru ótal nöfn á þessu öllu saman, þetta er hnifilkrappi, þetta kollarár, sem nú á dögum er kallaðir hnélistar, hástokkur , fóta- tré. Það er laust og hægt að taka það burt. Það var notað til að spyrna þvi of langt var á milli þófta, - og svona mætti lengi telja.“ „Gaman er að geta þess,“ sagði Hinrik, „hvernig orðin myndast í móðurmálinu. Að vísu er ég bara leikmaður í þeim efnum, - takið eftir, þessi járn hérna heita þrælk- ur,“ og bendir um leið á tvo járn- teina sem standa upp úr lunning- unni, „áður fyrr var þetta úr tré og hétu þá nefjur. Hið allra fyrsta kom aðeins einn tuttur upp dálítið breiður með haki, skásneyddur með gati í, en í gegnum það var þrætt band, sem nefnt var hömluband. Árinni var steypt inn í hömluband- ið, en þessi tittur hét há-tittur, en róðrarmaðurinn sem við han sat var kallaður háseti. Þannig kemur þetta fram í málinu." „Fyrirmyndin að Þorlákshafnar- skipunum er komin úr huga mér,“ svaraði Hinrik þegar við spyrjum hann um hvort ýmsum vandkvæð- unt sé ekki bundið að sntíða eftirlík- ingar af þessum horfnu skipum, „en svo hef ég smíðað fjölda báta, allt upp í 37 feta langa, en það var nú bara allt annað lag en nú á dög- um. Þetta þætti ómögulegt í dag,“ segir Hinrik og bendir á skutinn, - „hann kemur hérna inn og mikið krýndur. Með tilkomu vélanna breyttist þetta, þá var tekið úr þeim afturstefnið og sett annað öðruvísi. Misjafnlega tókst það. Menn voru að reyna að sjá það út, en slíkt þýðir ekki, báturinn verður þá að ganga saman annars staðar, þetta er eins og tunnugjörð, ef maður ýtir henni saman á einum stað gengur hún út á öðrum. Ef breyta varð skutnum varð að bryðja þá niður og sniíða nýtt.“ „Skipasmíðar hóf ég um 1930, smíðaði mér 34 feta bát, bara af því að ég og bróðir minn ákváðum að gera út hérna suður i Höfnum. Ég vann mikið við að gera við hús og báta og skipta um stafn. Smíðin tókst vel, hann var prýðilegur að framan, en sá galli var á honum, að af maður hálsaði kviku sem kallað er, þá var ekkert annað en að hnippa aðeins i stýrið og fá hann til að vikja upp að, svona til að slaka að aftan, þá skaut hann því af sér. Þetta fann ég strax út, hann var of víður við austurrúmið. Hvenær ég smiðaði skipið man ég nú ekki alveg." Og nú kallar hann til Hólmfríðar eiginkonu sinnar: I AXl - 6

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.