Faxi - 01.10.1979, Qupperneq 13
3. Rafteikning sf. teiknaði raf-
lagnir.
4. Byggingameistar skólans eru
þessir: Skúli Magnússon er húsa-
smíðameistari, Finnbogi Rútur
Guðmundsson, héðan úr
Vogunum, er múrarameistari, en
Hafsteinn Einarsson i Njarðvík hef-
ur að mestu séð um múrverkið.
5. Rafvirkjameistari er Friðrik
Björnsson í Sandgerði.
6. Pípulagningameistari er Guð-
björn Asbjörnsson í Njarðvík.
7. Málarameistari er Olafur Már
Ólafsson í Keflavík.
8. lnnréttingar eru smíðaðar i
Trésmiðju Þorvaldar Ólafssonar í
Keflavík.
Framangreindir aðilar eiga allir
miklar þakkir skilið fyrir vel unnin
•störf. En vitanlega eru það ekki að-
eins meistarar, sem hér hafa unnið.
Fjöldi fólks hefur starfað við þessa
byggingu ýmist á vegum þessara
meistara eða óháð þeim. Þessu
ágæta fólki vil ég ekki síður þakka
fyrir ánægjulegt og gott samstarf.
Undanfarnar vikur hefégtekið eftir
því sérstaklega hversu mjög það
hefur lagt sig fram við að drífa
bygginguna áfram og jafnframt
vandað til þess, sem gert hefur
verið.
Skólinn mun í vetur starfa í 9
bekkjardeildum, þ.e. forskóladeild
og 8 fyrstu bekkjum grunnskóla.
Vitanlega ber okkur að stefna að
því sem fyrst að koma hér upp 9.
bekk til þess að gera börnum okkar
kleift að Ijúka grunnskólanámi sínu
hér heirna. Nemendafjöldi skólans
verður liklega um eitt hundrað í
vetur.
Skólinn verður opinn til sýningar
til klukkan 21 í kvöld. gestabók
mun liggja frammi i stofu 2 hér á
eftir og er fólk vinsamlega beðið um
að rita nöfn sín í hana.
Að lokum vil ég þakka öllum
þeim fjölmörgu, sem leynt eða ljóst
hafa lagt okkurliðviðaðgerabygg-
ingu Stóru-VogaskóIa að
raunveruleik. Sú er von mín og trú,
að hún eigi eftir að verða æsku þessa
byggðarlags og þá um leið byggðar-
laginu öllu til blessunar. ánægju og
heilla.
Kjartan Jóhannsson
ráðherra
Skólahúsið er um 620 m2 að flatar-
máli og er byggt með það fyrir
augum að við það verði síðar reist
önnur álma til vesturs. í húsinu eru
fimm kennslustofur, sú minnsta
rúmlega 40 m2 en sú stærsta um 70
m2. Er hún ætluð sem sérkennslu-
stofa fyrir efnafræði og náttúru-
fræði. Salur sá sem við erum í
verður notaður sem tvær kennslu-
stofur, þegar millihurðirnar eru
komnar. Hér inn af honum er bóka-
safn, sem er rúmlega 300 m2. Innst
við ganginn hér vinstra megin við
mig er skjalageymsla, þá kemur
skrifstofa skólatjóra, því næst fjöl-
ritunar- og vinnuherbergi kennara.
Kennarastofan er við hlið fjölrit-
unarherbergis.
I byggingunni eru auk þessa 3
snyrtiherbergi, ræstingarherbergi
og geymsla.
Húsið er ekki alveg samkvæmt
samþykktum endanlegum teikn-
ingum, þvi byggingarnefnd skól-
ans hefur fengið samþykktar ýmsar
breytingar á því til bráðabirgða.
Miða þær flestar af því að auka
kennslurými. Má t.d. í því sam-
bandi nefna, að minnsta kennslu-
stofan, sem er nr. 3, var ekki teikn-
uð sem kennslustofa, heldur áttu
þar að vera 3 aðskilin herbergi til
annarra nota. Einnig var sá hluti
salarins sem við nú erum í teiknaður
sem lessalur bókasafns. Þessar
breytingar taldi nefndin nauðsyn-
legar vegna þess að nemendafjöldi
skólans hefur stóraukist frá því
skólinn var teiknaður og horfur eru
á að sú þróun haldi áfram.
Eg vil sérstaklega þakka arki-
tektum þann skilning og velvilja
sem þeir hafa sýnt öllum óskum
okkar heimamanna um breytingar
og hve vel þeir hafa leyst hin ýmsu
mál er upp hafa komið. Samstarfs-
mönnum mínum í byggingarnefnd
þakka ég einnig.
Eftirtaldir aðilar hafa haft
umsjón með byggingarframkvæmd
þessari:
1. Arkitektastofan sf., með þá
Ornólf Hall og Ormar Þór í broddi
fylkingar, teiknaði og skipulagði
húsið.
2. Hönnun hf. hefur séð um alla
verkfræðilega þætti.
Helgi Jónasson
fræðslustjóri
Jón Bjarnason
kynnir
Margrét Jóhannsdóttir
form. kvenfélagsins
Ræða Magnúsar Ágústssonar:
Við eigum gott land
og stórhuga æsku -
Góðir gestir.
Ég býð ykkur velkomin til þessar-
ar vígsluhátíðar hér í dag. Mér er það
sönn ánægja að bjóða ykkur velkom-
in er við tökum í notkun nýtt skóla-
hús, Stóru-Vogaskóla. Þetta eru svo
sannarlega mikil timamót í sögu
þessa sveitarfélags. Barnaskóli hefur
starfað óslitið í rúm 100 ár hér ísveit
og alltaf verið í Brunnastaðahverf-
inu. Fyrsti barnaskóli, sem hér var
reistur árið 1872 var annar barna-
skóli, sem tók til starfa i landinu.
Fyrir forgöngu Stefáns Thoraren-
sen prests á Kálfatjörn og hjálp
margra annarra hér i sveit og aðstoð
úr sjóði Jóns rektors Þorkelssonar,
„Thorkelisjóðs", reistu þeir þá stórt
og veglegt hús og litu stórhuga til
framtíðarinnar, og í dag reisum við
einnig stórt og fullkomið hús og erum
bjartsýnir á framtíðina. Við eigum
gott land, stórhuga æsku sem horfir
til framtíðarinnar með björtum
augum.
Það er von mín og trú, að frá
þessari stofnun megi ætíð liggja
straumar menningar og mann-
dóms, gera æsku þessa byggðarlags
mögulegt að verða góðir þegnar
þessa lands, svo hér blómgist gott
og fagurt mannlíf.
Eg vil fyrir hönd hreppsnefndar
þakka öllum þeim, er hér hafa lagt
hönd að. Þeir eru orðnir margir, er
lagt hafa þessu máli lið á ýmsan
hátt. Arkitektum, alþingismönn-
um, menntamálaráði, bygginga-
meisturum, iðnaðarmönnum,
verkamönnum, svo og öllum
öðrum. Alls staðar höfum við mætt
góðum skilningi og fyrirgreiðslu.
Byggingarnefnd og skólanefnd
hafa starfað með mjög góðunt
árangri, með formann byggingar-
nefndar í fararbroddi, sem sýnt
hefir geysidugnað og beitt sér fyrir
framgangi þessa máls. Þá get ég
ekki látið hjá líða, að þakka sérstak-
Framhald á næstu síðu