Faxi - 01.10.1979, Page 21
Fæddur 12. mars 1904
Dáinn 8. sept. 1979
Þegar ég frétti lát þessa mæta
manns, Gísla bónda á Hvalsnesi,
og hvernig viðskilnað hans. við
okkar heim bar að, komu mér í
huga þessi orð biblíunnar: „Nú
lætur þú Herra þjón þinn í friði
fara.“
Já, hann Gísli fór sannarlega í
friði Guðs úr þessari veröld okkar.
Seinnipart nætur er hann vaknaði
af svefni og fann að nú var ekki
um að ræða lengri tilvist hér,
kvaddi hann sína elskulegu eigin-
konu, er hafði alla þeirra sam-
verutíð verið hans frábæra stoð og
styrkur, faðmaði hana að sér og
þakkaði henni fyrir allt og allt um
leið og hann sagði veikum rómi, að
nú væri þetta sitt síðasta. ör-
stuttri stund síðar hneig hann út
af í faðmi konu sinnar.
Gísli G. Guðmundsson var
fæddur í Klapparkoti á Miðnesi
12. marz 1904, flutti 2 ára gamall
með foreldrum sínum að Norður-
koti þar skammt frá.
Foreldrar hans voru hjónin
Guðmundur Gíslason, Eyjólfsson-
ar, fæddur í Oddakoti í Landeyj-
um 1868, og Gróa Bjarný Einars-
dóttir, fædd að Hópi, Grindavík,
1873. Guðmundur Gíslason var
seinni maður Gróu Bjarnýjar.
Fyrri maður hennar var Gestur
Sigurðsson, fæddur í Garðinum.
Foreldrar hans voru Sigurður
Þorsteinsson og Lísibet Jónsdótt-
ir, er bjuggu þar á Miðhúsum,
Gauksstöðum, og Brekkugerði.
Þau Gróa Bjarný og Gestur eign-
uðust tvö börn, Einar, ógiftur, býr
í Norðurkoti, og Lísebet, ekkja
Alberts Bjarnasonar, skipstjóra,
býr í Keflavík. Hjónaband þeirra
hjóna varði mjög skammt. Gestur
Sigurðsson drukknaði þann 6. júní
árið 1900 er hann var við hand-
færaveiðar á seglskútunni Guð-
rúnu frá Reykjavík.
Foreldrar Gróu Bjarnýjar voru
Einar Jónsson, sonur Jóns Haf-
liðasonar, hreppstjóra á Hópi,
Grindavík, og hans konu, Gróu
Þórðardóttur. Þau voru bæði af
grónum Suðurnesjaættum.
Minning:
Gísli Guðmundsson
kirkjubóndi Hvalsnesi
hreppsnefnd og skólanefnd um
nokkurt skeið, og nú síðustu árin
Fyrri kona Einars Jónssonar,
rmjðir Gróu Bjarnýjar, var Sigríð-
ur ísleifsdóttir, Guðmundssonar
frá Götum í Mýrdal. Hún var
systir Guðmundar ísleifssonar,
kaupmanns á Háeyri, tengdasonar
Þorleifs Kolbeinssonar ríka á
Háeyri. Einar Jónsson og Sigríður
bjuggu í Tjarnarkoti skammt frá
Flankarstöðum á Miðnesi. Þau
eignuðust auk Gróu 2 syni. Sigríð-
ur dó þrítug að aldri árið 1882.
Einar giftist nokkru síðar
Margréti Hannesdóttur, ættaðri
frá Presthúsum í Mýrdal. Þau
bjuggu í Endagerði. Eignuðust
þau 5 börn. Þrjú þeirra komust til
fullorðinsára.
Einar Jónsson, afi Gísla á
Hvalsnesi, drukknaði af þilskipinu
„Bluebell“ þann 26. sept. 1889, er
það rak upp á austanverðan Gerð-
hólmann í austanroki og brotnaði
þar í spón.
Þau Guðmundur og Gróa í
Norðurkoti eignuðust 3 börn. Var
Gísli þeirra elstur. Hin voru Sig-
urður Ragnar, fæddur 1907, nú
látinn. Eftirlifandi kona hans er
Ingibjörg Ólafsdóttir, búsett í
Keflavík. Margrét, fædd 1909,
látin. Eftirlifandi maður hennar
er Ólafur Gíslason. Þau bjuggu í
Keflavík.
Gísli G._ Guðmundsson ólst upp
hjá foreldrum sínum í Norðurkoti.
Vandist hann fljótt til verka á
landi og á sjó, fór ungur að sækja
sjóinn á mótorbátum frá Sand-
gerði. Hann var einn þeirra er
sótti fyrsta vélstjóranámskeiðið
er haldið var í Keflavík og var
hann svo um árabil mótoristi
(vélstjóri) á bátum frá Sandgerði.
Vann við ýmis störf í landi þegar
sjór var ekki stundaður. Þegar
Gísli var 27 ára gamall árið 1931,
veiktist hann af berklum. Varð þá
að fara á Vífilsstaðahælið og
dvaldi þar í tæp 2 ár. Fékk dágóða
heilsu, fór þá aftur að stunda
sjóinn og vinna á sumrin við
heyskap o.fl., en eftir rösklega eitt
ár varð hann að fara aftur á
Vífilsstaðahælið, kom þaðan al-
kominn 1937. Var Gísli aldrei
heilsusterkur eftir þau veikindi er
hann fékk.
Gísli G. Guðmundsson var ung-
ur maður þegar hann fór að taka
þátt í félags- og menningarmálum
Miðnesinga. Hann var einn af
stofnendum Ungmennafélags Mið-
nesinga og lék í mörgum leikritum
hjá því félagi. Hann var einn af
stofnendum Slysavarnadeildar-
innar Sigurvonar í Sandgerði og
lengi gjaldkeri hennar og síðar
gerður heiðursfélagi hennar.
Stofnfélagi Lionsklúbbs Sand-
gerðis. Einnig átti Gísii sæti í
frá 1970, eftir að Magnús Pálsson
mágur hans lést, var hann í stjórn
Sparisjóðs Keflavíkur.
40 ára gamall fór Gísli í raf-
virkjanám hjá Aðalsteini Gísla-
syni rafvirkjameistara í Sand-
gerði. Lærði hann það sem með
þurfti á einum vetri í Iðnskólan-
um og varð þriðji efstur, aldurs-
forseti nemendanna. Hafði hann
áður unnið nokkuð lengi hjá Aðal-
steini við það fag. Upp frá því
vann Gísli lengst af sem rafvirki
meðan heilsa leyfði og þegar
rafmagn var lagt í Hvalsnes-
kirkju, vann Gísli það verk, en
Aðalsteinn rafvirkjameistari gaf
efnið.
Hvalsnes er stórt nafn hér á
Suðurnesjum. Ber þaðan hæst yfir
land og lýð nafn séra Hallgríms
Péturssonar. Þar hafa margir
lærðir og leikir setið um aldaraðir.
Þegar ég var barn og unglingur,
bjuggu þar hjónin Páll Magnús-
son, bóndi og formaður, ættaður
undan Eyjafjöllum, og hans koná,
Guðlaug Eyjólfsdóttir, ættuð úr
Hvolshreppi. Gúðlaug var alsystir
Guðfinnu móður Finnboga föður
míns. Þau hjón eignuðust 3 börn,
tvo syni og eina dóttur. Elsta barn
þeirra var Magnús, hinn velþekkti,
fjölhæfi merkismaður, sem nú er
látinn fyrir tæpum áratug.
Salómon Eyjólfur, er drukknaði
ungur að árum í fiskiróðri á
Austfjörðum, og dóttirin Guðrún
Sigurrós, sem nú kveður sinn
ástvin og eiginmann.
Gísli og Guðrún gengu í hjóna-
band 3. ágúst 1935. Höfðu þau því
verið gift hjón í rösk 44 ár, þegar
leiðir skildu í bili. Þau eignuðust
tvær dætur. Heitir eldri dóttirin
Guðlaug. Hennar maður er Tómas
Grétar ólason, þau eiga 4 dætur
og búa á Borgarholtsbraut 73 í
Kópavogi, og Iðunn Gróa, maður
hennar er Hjálmtýr Guðmunds-
son, þau eiga 3 dætur og einn son
og búa í Hraunbæ 78 í Reykjavík.
Auk þeirra systra ólst upp á
Hvalsnesi Sveinn Sveinsson frá
2ja ára aldri, frændi Guðrúnar, og
Halldóra Þórðardóttir er fæddist
þar.
Einn allra merkasti þáttur í
lífsstarfi Gísla á Hvalsnesi var
starf hans og umhyggja við kirkj-
una sína þar á staðnum. Frá 1940
var hann meðhjálpari í kirkjunni,
safnaðarfulltrúi var hann á fjórða
tug ára. Mætti hann á öllum
héraðsfundum Kjalarnesprófasts-
dæmis að undanteknum einum, en
þá fékk hann ekki fundarboð fyrr
en eftir að fundurinn var afstað-
inn. Gjaldkeri kirkjugarðssjóðs
Hvalsneskirkju var hann um
langa tíð.
Þeir eru orðnir margir gestirnir
sem komið hafa í Hvalsneskirkju
á þeim nær 5 áratugum sem þau
Guðrún og Gísli hafa þar ráðið
húsum. Flestir hafa þeir farið
fróðari en þeir komu eftir að hinir
margfróðu gestgjafar þar, þeir
Magnús og Gísli, höfðu sagt þeim
ýmislegt um sögu staðarins, kirkj-
unnar og byggðalagsins. Fjölda
þessa fólks hefur verið boðið inn á
heimili þeirra hjóna Gísla og
Guðrúnar og þegið þar af rausn
þeirra og vinskap, bæði í orði og á
borði. Þá má ekki gleyma honum
Magnúsi, bróður Guðrúnar, er
byrjaði 14 ára gamall að syngja í
kirkjunni. Þegar Þorlákur Bene-
diktsson í Akurhúsum í Garði
hafði verið organisti þar í 2 ár,
sagði séra Friðrik Rafnar, prestur
á Útskálum, eitt sinn er hann
messaði á Hvalsnesi við þau syst-
kini, Guðrúnu og Magnús, að nú
yrðu þau að taka að sér organista-
starfið í kirkjunni. Þetta var
snemma árs 1918. Þá var Magnús
26 ára gamall, ólærður á slík
hljóðfæri. Hann tók ákvörðun og
fór að æfa sig með einhverri
tilsögn er hann fékk hjá öðrum og
lék hann á orgel kirkjunnar í
fyrsta sinn við jarðarför 3 kvenna
þar af Miðnesi er létust úr
„spönsku veikinni" haustið 1918,
en í janúar 1919 lék Magnús við
fyrstu messugjörð í kirkjunni
sinni og þaðan í frá í nærfellt 45
ár — við næstum allar athafnir.
Gísli var hinn síglaði og
skemmtilegi maður, einatt tilbú-
inn með grín og gamansemi á að
hitta. Við þau tækifæri var brosið
hans sérlega skemmtilegt og er
minnisstætt. Margar skemmtileg-
ar sögur og sagnir kunni hann
bæði í lausu og bundu máli.
Sjálfur bjó hann til vísur að mér
er sagt. Eru einhverjar þeirra til
eftir hann. Bókamaður var Gísli,
las sér til ánægju þjóðlegan fróð-
leik og skrifaði nokkuð af því tagi
er hann kunni í blöð og bækur
öðrurrw til ánægju aflestrar. Gísli
lærði lítilsháttar bókband, vann
dálítið við það af og til um margra
ára skeið. Fórst honum það vel úr
hendi sem allt annað er hans
vöndugheit fóru hug og höndum
um.
í nær tvo áratugi hafa leiðir
okkar Gísla legið saman á héraðs-
fundum Kjalarnesprófastsdæmis.
Þar var Gísli sífellt lífrænn þátt-
takandi. Hafði vakandi áhuga og
skilning á öllu sem málefni kirkj-
unnar varðaði. Kom hann þar oft
með snjallar, en nýstárlegar til-
lögur og flutti sitt mál mjög vel.
Er mikill sjónarsviptir af þeim
ágæta heiðursmanni úr okkar
hópi. Það voru traust frændsemis-
og vináttubönd milli heimilis for-
eldra minna og Hvalsnesfjölskyld-
unnar. Guðrún, blessuð frænka, er
nú orðin ein eftir af eldri stofnin-
Framhald á 19. síðu
FAXI - 21