Faxi

Árgangur

Faxi - 01.10.1979, Síða 21

Faxi - 01.10.1979, Síða 21
Fæddur 12. mars 1904 Dáinn 8. sept. 1979 Þegar ég frétti lát þessa mæta manns, Gísla bónda á Hvalsnesi, og hvernig viðskilnað hans. við okkar heim bar að, komu mér í huga þessi orð biblíunnar: „Nú lætur þú Herra þjón þinn í friði fara.“ Já, hann Gísli fór sannarlega í friði Guðs úr þessari veröld okkar. Seinnipart nætur er hann vaknaði af svefni og fann að nú var ekki um að ræða lengri tilvist hér, kvaddi hann sína elskulegu eigin- konu, er hafði alla þeirra sam- verutíð verið hans frábæra stoð og styrkur, faðmaði hana að sér og þakkaði henni fyrir allt og allt um leið og hann sagði veikum rómi, að nú væri þetta sitt síðasta. ör- stuttri stund síðar hneig hann út af í faðmi konu sinnar. Gísli G. Guðmundsson var fæddur í Klapparkoti á Miðnesi 12. marz 1904, flutti 2 ára gamall með foreldrum sínum að Norður- koti þar skammt frá. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Gíslason, Eyjólfsson- ar, fæddur í Oddakoti í Landeyj- um 1868, og Gróa Bjarný Einars- dóttir, fædd að Hópi, Grindavík, 1873. Guðmundur Gíslason var seinni maður Gróu Bjarnýjar. Fyrri maður hennar var Gestur Sigurðsson, fæddur í Garðinum. Foreldrar hans voru Sigurður Þorsteinsson og Lísibet Jónsdótt- ir, er bjuggu þar á Miðhúsum, Gauksstöðum, og Brekkugerði. Þau Gróa Bjarný og Gestur eign- uðust tvö börn, Einar, ógiftur, býr í Norðurkoti, og Lísebet, ekkja Alberts Bjarnasonar, skipstjóra, býr í Keflavík. Hjónaband þeirra hjóna varði mjög skammt. Gestur Sigurðsson drukknaði þann 6. júní árið 1900 er hann var við hand- færaveiðar á seglskútunni Guð- rúnu frá Reykjavík. Foreldrar Gróu Bjarnýjar voru Einar Jónsson, sonur Jóns Haf- liðasonar, hreppstjóra á Hópi, Grindavík, og hans konu, Gróu Þórðardóttur. Þau voru bæði af grónum Suðurnesjaættum. Minning: Gísli Guðmundsson kirkjubóndi Hvalsnesi hreppsnefnd og skólanefnd um nokkurt skeið, og nú síðustu árin Fyrri kona Einars Jónssonar, rmjðir Gróu Bjarnýjar, var Sigríð- ur ísleifsdóttir, Guðmundssonar frá Götum í Mýrdal. Hún var systir Guðmundar ísleifssonar, kaupmanns á Háeyri, tengdasonar Þorleifs Kolbeinssonar ríka á Háeyri. Einar Jónsson og Sigríður bjuggu í Tjarnarkoti skammt frá Flankarstöðum á Miðnesi. Þau eignuðust auk Gróu 2 syni. Sigríð- ur dó þrítug að aldri árið 1882. Einar giftist nokkru síðar Margréti Hannesdóttur, ættaðri frá Presthúsum í Mýrdal. Þau bjuggu í Endagerði. Eignuðust þau 5 börn. Þrjú þeirra komust til fullorðinsára. Einar Jónsson, afi Gísla á Hvalsnesi, drukknaði af þilskipinu „Bluebell“ þann 26. sept. 1889, er það rak upp á austanverðan Gerð- hólmann í austanroki og brotnaði þar í spón. Þau Guðmundur og Gróa í Norðurkoti eignuðust 3 börn. Var Gísli þeirra elstur. Hin voru Sig- urður Ragnar, fæddur 1907, nú látinn. Eftirlifandi kona hans er Ingibjörg Ólafsdóttir, búsett í Keflavík. Margrét, fædd 1909, látin. Eftirlifandi maður hennar er Ólafur Gíslason. Þau bjuggu í Keflavík. Gísli G._ Guðmundsson ólst upp hjá foreldrum sínum í Norðurkoti. Vandist hann fljótt til verka á landi og á sjó, fór ungur að sækja sjóinn á mótorbátum frá Sand- gerði. Hann var einn þeirra er sótti fyrsta vélstjóranámskeiðið er haldið var í Keflavík og var hann svo um árabil mótoristi (vélstjóri) á bátum frá Sandgerði. Vann við ýmis störf í landi þegar sjór var ekki stundaður. Þegar Gísli var 27 ára gamall árið 1931, veiktist hann af berklum. Varð þá að fara á Vífilsstaðahælið og dvaldi þar í tæp 2 ár. Fékk dágóða heilsu, fór þá aftur að stunda sjóinn og vinna á sumrin við heyskap o.fl., en eftir rösklega eitt ár varð hann að fara aftur á Vífilsstaðahælið, kom þaðan al- kominn 1937. Var Gísli aldrei heilsusterkur eftir þau veikindi er hann fékk. Gísli G. Guðmundsson var ung- ur maður þegar hann fór að taka þátt í félags- og menningarmálum Miðnesinga. Hann var einn af stofnendum Ungmennafélags Mið- nesinga og lék í mörgum leikritum hjá því félagi. Hann var einn af stofnendum Slysavarnadeildar- innar Sigurvonar í Sandgerði og lengi gjaldkeri hennar og síðar gerður heiðursfélagi hennar. Stofnfélagi Lionsklúbbs Sand- gerðis. Einnig átti Gísii sæti í frá 1970, eftir að Magnús Pálsson mágur hans lést, var hann í stjórn Sparisjóðs Keflavíkur. 40 ára gamall fór Gísli í raf- virkjanám hjá Aðalsteini Gísla- syni rafvirkjameistara í Sand- gerði. Lærði hann það sem með þurfti á einum vetri í Iðnskólan- um og varð þriðji efstur, aldurs- forseti nemendanna. Hafði hann áður unnið nokkuð lengi hjá Aðal- steini við það fag. Upp frá því vann Gísli lengst af sem rafvirki meðan heilsa leyfði og þegar rafmagn var lagt í Hvalsnes- kirkju, vann Gísli það verk, en Aðalsteinn rafvirkjameistari gaf efnið. Hvalsnes er stórt nafn hér á Suðurnesjum. Ber þaðan hæst yfir land og lýð nafn séra Hallgríms Péturssonar. Þar hafa margir lærðir og leikir setið um aldaraðir. Þegar ég var barn og unglingur, bjuggu þar hjónin Páll Magnús- son, bóndi og formaður, ættaður undan Eyjafjöllum, og hans koná, Guðlaug Eyjólfsdóttir, ættuð úr Hvolshreppi. Gúðlaug var alsystir Guðfinnu móður Finnboga föður míns. Þau hjón eignuðust 3 börn, tvo syni og eina dóttur. Elsta barn þeirra var Magnús, hinn velþekkti, fjölhæfi merkismaður, sem nú er látinn fyrir tæpum áratug. Salómon Eyjólfur, er drukknaði ungur að árum í fiskiróðri á Austfjörðum, og dóttirin Guðrún Sigurrós, sem nú kveður sinn ástvin og eiginmann. Gísli og Guðrún gengu í hjóna- band 3. ágúst 1935. Höfðu þau því verið gift hjón í rösk 44 ár, þegar leiðir skildu í bili. Þau eignuðust tvær dætur. Heitir eldri dóttirin Guðlaug. Hennar maður er Tómas Grétar ólason, þau eiga 4 dætur og búa á Borgarholtsbraut 73 í Kópavogi, og Iðunn Gróa, maður hennar er Hjálmtýr Guðmunds- son, þau eiga 3 dætur og einn son og búa í Hraunbæ 78 í Reykjavík. Auk þeirra systra ólst upp á Hvalsnesi Sveinn Sveinsson frá 2ja ára aldri, frændi Guðrúnar, og Halldóra Þórðardóttir er fæddist þar. Einn allra merkasti þáttur í lífsstarfi Gísla á Hvalsnesi var starf hans og umhyggja við kirkj- una sína þar á staðnum. Frá 1940 var hann meðhjálpari í kirkjunni, safnaðarfulltrúi var hann á fjórða tug ára. Mætti hann á öllum héraðsfundum Kjalarnesprófasts- dæmis að undanteknum einum, en þá fékk hann ekki fundarboð fyrr en eftir að fundurinn var afstað- inn. Gjaldkeri kirkjugarðssjóðs Hvalsneskirkju var hann um langa tíð. Þeir eru orðnir margir gestirnir sem komið hafa í Hvalsneskirkju á þeim nær 5 áratugum sem þau Guðrún og Gísli hafa þar ráðið húsum. Flestir hafa þeir farið fróðari en þeir komu eftir að hinir margfróðu gestgjafar þar, þeir Magnús og Gísli, höfðu sagt þeim ýmislegt um sögu staðarins, kirkj- unnar og byggðalagsins. Fjölda þessa fólks hefur verið boðið inn á heimili þeirra hjóna Gísla og Guðrúnar og þegið þar af rausn þeirra og vinskap, bæði í orði og á borði. Þá má ekki gleyma honum Magnúsi, bróður Guðrúnar, er byrjaði 14 ára gamall að syngja í kirkjunni. Þegar Þorlákur Bene- diktsson í Akurhúsum í Garði hafði verið organisti þar í 2 ár, sagði séra Friðrik Rafnar, prestur á Útskálum, eitt sinn er hann messaði á Hvalsnesi við þau syst- kini, Guðrúnu og Magnús, að nú yrðu þau að taka að sér organista- starfið í kirkjunni. Þetta var snemma árs 1918. Þá var Magnús 26 ára gamall, ólærður á slík hljóðfæri. Hann tók ákvörðun og fór að æfa sig með einhverri tilsögn er hann fékk hjá öðrum og lék hann á orgel kirkjunnar í fyrsta sinn við jarðarför 3 kvenna þar af Miðnesi er létust úr „spönsku veikinni" haustið 1918, en í janúar 1919 lék Magnús við fyrstu messugjörð í kirkjunni sinni og þaðan í frá í nærfellt 45 ár — við næstum allar athafnir. Gísli var hinn síglaði og skemmtilegi maður, einatt tilbú- inn með grín og gamansemi á að hitta. Við þau tækifæri var brosið hans sérlega skemmtilegt og er minnisstætt. Margar skemmtileg- ar sögur og sagnir kunni hann bæði í lausu og bundu máli. Sjálfur bjó hann til vísur að mér er sagt. Eru einhverjar þeirra til eftir hann. Bókamaður var Gísli, las sér til ánægju þjóðlegan fróð- leik og skrifaði nokkuð af því tagi er hann kunni í blöð og bækur öðrurrw til ánægju aflestrar. Gísli lærði lítilsháttar bókband, vann dálítið við það af og til um margra ára skeið. Fórst honum það vel úr hendi sem allt annað er hans vöndugheit fóru hug og höndum um. í nær tvo áratugi hafa leiðir okkar Gísla legið saman á héraðs- fundum Kjalarnesprófastsdæmis. Þar var Gísli sífellt lífrænn þátt- takandi. Hafði vakandi áhuga og skilning á öllu sem málefni kirkj- unnar varðaði. Kom hann þar oft með snjallar, en nýstárlegar til- lögur og flutti sitt mál mjög vel. Er mikill sjónarsviptir af þeim ágæta heiðursmanni úr okkar hópi. Það voru traust frændsemis- og vináttubönd milli heimilis for- eldra minna og Hvalsnesfjölskyld- unnar. Guðrún, blessuð frænka, er nú orðin ein eftir af eldri stofnin- Framhald á 19. síðu FAXI - 21

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.