Faxi - 01.10.1979, Blaðsíða 22
Grindvísku frúrnar stóðu sig vel
Hæfileikakeppni Dagblaðsins og Hljómsveitar Birgis Gunnlaugs-
sonar, sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði, lauk að Hótel Sögu
sunnudagskvöldið 23. sept. sl.
1 lokakeppninni tóku þátt þeir er unnið höfðu í ,,undanrásum“. 10
verðlaun voru veitt. Afhending verðlauna fór fram á staðnum að lok-
inni keppni. Það vakti athygli á Suðurnesjum, að i 2. sxti urðu tvær
Grindvískar frúr, þær Evelín Adólfsdóttir og Kolbrún Sveinbjörns-
dóttir, fyrir gamanvísnasöng. Væntanlega eiga Suðurnesjamenn eftir
að njóta hxfileika þeirra við skemmtanahald á komandi vetri og er það
ánægjulegt, því oft og í of miklum mæli höfum við orðið að sækja
skemmtikrafta til Reykjavíkur eða annað.
MÓTORHJÓLASLYS ERU MJÖG TÍÐ
á Suðurnesjum og hafa margir hlotið alvarleg meiðsl ( slíkum
árekstrum. Yfirleitt er um ungt fólk að ræða, sem ekki gætir sín
nægilega í umferöinni og tekur ekki tillit til aöstæðna. Myndin sýnir
eitt slíkt slys - stór vörubifreið lenti í árekstri við Ktiö vélhjól. Aö þessu
sinni slapp ökumaður vélhjólsins furðanlega Ktið slasaður, þótt svo
hann bæri ekki öryggishjálm. Þaö er aldrei nægilega brýnt fyrir öku-
mönnum að fara gætilega, sérstaklega þegar hausta tekur og
skyggni versnar.
Guðmundur Jónsson
Heimahmdi — Muming
Fæddur 16. mars 1902
Dáinn 9. október 1979
Stór orö fara illa ef minnst skal
þeirra sem alltaf voru hógværir.
Mörg orö fara heldur ekki vel í
minningargrein um vin sinn, sem
alltaf var hlédrægur og vildi láta
lítið á sér bera, en mannlegt er
það aö langa til þess að þakka
fyrir samfylgd og kynni að leiðar-
lokum.
í byrjun þessarar aldar klædd-
ist íslenski sjómaðurinn sjóklæð-
um úr skinni. Og svo nærri voru
atvinnuhættir bóndans og sjó-
mannsins steinöldinni, að verk-
færin voru gjarnan úr beini, svo
sem netanálin og seilanálin. í
skinnstakk bar sjómaðurinn afl-
ann frá sjó og gerði að aflanum
undir beru lofti, hvernig sem
veður var. Nokkrum áratugum
síðar stendur þessi sami sjómaður
við flökunarborðið í hraðfrysti-
húsinu undir rafljósum í hvítum
slopp og færibandið flytur fiskinn
að og frá.
Að baki þessarar atvinnubylt-
ingar Iiggur löng saga. Það er saga
sem aldrei verður sögð öll, hversu
löng sem hún yrði. En þetta er
jafnframt saga Guðnuindar heit-
ins Jónssonar og jafnaldra hans.
Það er saga Grindavíkur síöustu
áratugina.
En persónusaga Guðmundar
Jónssonar er ekki bara saga af
breyttum atvinnuháttum. Hún er
saga af manni sem átti lengi við
vanheilsu að stríða án þess að
kvarta. Hún er saga af manni sem,
með hlýju handtaki og hljóðlátri
hugulsemi, ávann sér virðingu og
vináttu samferðamanna sinna.
Sérstaklega vil ég þakka Guð-
mundi og Ingibjörgu systur minni
fyrir foreldra mína, en hjá þeim
áttu þau athvarf og skjól í ellinni.
Persónulega þakka ég þeim hjón-
um og drengjunum þeirra marga
indæla stund á heimili þeirra.
Blessuð sé minning Guðmundar
Jónssonar frá Heimalandi.
Valdimar Elíasson
RAUSNARLEGT ÁHEIT
Kona í Keflavík, sem ekki vill láta nafns síns getið, afhenti nýlega
eitt hundrað þúsund krónur, sem hún hvað vera áheit á Krabba-
meisnvörn Keflavíkur. Stjórn félagsins þakkar konunni þessa miklu
rausn og vonar aö Krabbameinsvörn Keflavíkur megi verða mörgum
áheitasælt.
FRÁ LANDSHÖFN KEFLAVÍK-NJARÐVlK
Á þessu ári voru veittar kr. 100 milljónir til framkvæmda við lands-
höfnina, auk þess hefur hafnarstjórn til umráða tekjur hafnarinnar
umfram daglegan rekstur.
Þær framkvæmdir sem nú eru í gangi eru þessar:
Bygging vöruhúss við Bryggjuveg og Vatnsnesveg í Keflavík.
Malbikun á hafnargörðunum í Njarðvík, og fyrirhuguð er lenging á
viðlegukanti á noröurgarði í Njarðvík. Ennfremur er í gangi model-
prufa á löndunar- og viðlegukanti við Saltsöluna og Fiskiðjuna, sem
kæmi sér vel fyrir þessi fyrirtæki, svo og meira viðlegupláss fyrir
höfnina.
Hér á eftir koma tvær upplýsingtöflur, en þær gilda frá 1. janúar
1979 til 30. september 1979:
Afll og landanlr:
Bátar: Þorskur o.fl. . 8.545,7 tonn 1.962 landanir
Loðna ...... 19.566,7 - 84 -
Humar ...... 52,2 - 112 -
Togarar: Þorskur o.fl. . 9.208,5 - 78 -
Skipakomur eru 175, en þau fluttu:
Út: 10.544 tonn af frystum fiski
4.485 mjöli
14.831 tonn af salti 3.481 saltfisk
318 sementi 552 saltsíld
62.639 olíu 2.051 lýsi
492 rúmm. af timbri 645 hrognum
1.092 tonn af ýmsum vörum 539 kjöti
455 smokkfisk 3.600 frystri loönu
FAXI - 22