Faxi - 01.01.1981, Blaðsíða 8
Vígsla lögreglustöðvarinnar
Bæjarfógetinn, Jón Ey-
steinsson, sagði ítarlega frá
nýju lögreglustöðinni í síð-
asta jólablaði Faxa, rakti að-
draganda og síðan bygging-
arsögu hússins.
Við vígslu stöðvarinnar,
sem fram fór 10. des. sl., voru
viðstaddir flestir þeir er að
framkvæmdinni stóðu, allt
Barnamyndasamkeppni
frá fyrstu til síðustu gerðar,
auk lögregluliðsins og for-
ystumanna sveitarfélaga í
lögsagnarumdæminu. Húsið
og búnaður þess allur var
sýndur gestunum, en það er í
alla staöi hið vistlegasta,
mjög vel búið tækjum og að-
búnaður svo góður sem völ
er á.
Bæjarfógeti lýsti húsinu og
þakkaði öllum er lagt höfðu
hönd að verki og óskaði lög-
regluliðinu til hamingju með
þá glæsilegu vinnuaðstöðu,
sem þeir hefðu fengið með
nýja húsinu og þakkaði þeim
biðlund og góða samvinnu
við þær lélegu aðstæður sem
þeir hefðu orðið að búa við
miklu lengur en vonir stóðu
til.
Að því búnu var boðið til
kaffidrykkju í Stapa. Þar voru
margar ræöur fluttar og
embættinu og starfsmönn-
um þess færðar bestu óskir
um farsæld í störfum.
J.T.
Jón Eysteinsson bæjarfógeti,
býöur gesti velkomna.
Frá vinstri: Sigtryggur Árnason yfirlögregluþjónn, Þorleifur Pálsson deildar-
stjóri í dómsmálaráöuneytinu, Jón Eysteinsson bæjarfógeti, Hjalti Zophani-
asson deildarstjóri f dómsmálaráöuneytinu, Siguröur Thoroddsen arkitekt
hússins, og Björn Sigurösson eftirlitsmaöur framkvæmdadeildar Innkaupa-
stofnunar rikisins. Ljósm. Heimir
Kaffistofan er rúmgóö og vistleg.
Ljósm. Heimir
Loftpressa
Tek að mér
múrbrot,
fleygun
og borun fyrir
sprengingar.
Geri föst
VerðtilbOð. SÍM1
Sigurjón Matthíasson
Brekkustíg 31 c - Y-Njarðvík
Myndatökur alla mánudaga
kl. 10-12 og 13-17.
Komið með börn á aldrinum
6 mánaða til 5 ára.
huÓSMYNDASTOFA
V SUÐURNESJA
Halnargötu 79 - Slmi 2930
FAXI - 8