Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1982, Side 6

Faxi - 01.01.1982, Side 6
STARFSFÓLKIÐ í JÖKLI ÁRIÐ 1939 Fremst: Jórunn Ragnarsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Lára Júlíusdóttir, Þór- unn Jónsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Laufey Guðmundsdóttir, Ingibjörg Ey- vindsdóttir Bergmann. 2. röð: Júlíana Jónsdóttir, Magnea Magnúsdóttir, Kristín Jóhannsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Guðfinna.Einarsdóttir, Margrét forfadóttir, Valgerður Arnoddsdóttir, Rósa Þorsteinsdóttir. 3. röð: Páll Páls- son, Guðmundur Jónsson, Elías Þorsteinsson, Jón Magnússon, Bjarni Sveinsson, Þórður Pétursson, Ingibergur Jónsson, Þorleifur Bjarnason. 4. röð: Anna Bergmann, Sesselja Jónsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Stefania Bergmann, Guðlaug Gísladóttir, Viktoría Sigurjóns- dóttir, Guðrún Árnadóttir, Margrét Kristjánsdóttir. una. Því til staðfestingar má m.a. benda á það, að skömmu eftir stofnun Útvegsbændafélags Keflavíkur, nánar tiltekið 20. okt. 1936, var á félagsfundi sam- þykkt tillaga þess efnis, að fé- lagið byggði hraðfrystihús. Elías var þá einn af stjórnarmönnum félagsins og er sennilegt að hann hafi staðið framarlega í flokki þeirra sem vildu að áform tillögunnar yrði sem fyrst að veruleika. Alla vega varð hann einn af frumkvöðlum þess að koma hér hraðfrystiiðnaði á fót, þó öðruvísi væri að því staðið en tillagan gerði ráð fyrir. Síðar varð Elías einn af stofnendum Sölumiöstöðvar hraðfrystihús- anna og í forsvari þeirra sam- taka til æviloka. Fiskreitarhúsið hans Elíasar stóð á stórum fiskreitsuð-vestur af Vatnsnesbás og það varð sem sagt hlutskiþti þessa húss að hólfast niður i þrjá litla frysti- klefa og vinnslusal og vera þar með orðið hraðfrystihús. Eitt það fyrsta sinnar tegundar á landinu og þaö fyrsta hér á Suð- urnesjum. Þar með var hafinn hér rekstur þeirraratvinnugrein- ar, sem síðan hefur oröið ein mesta lyftistöng til framþróun- ar hér á Suðurnesjum, sem og annars staðar hérlendis. Von- andi á hraöfrystiiðnaðurinn eftir að dafna vel og lengi samhliða öðrum fiskvinnslugreinum eldri sem yngri. En vissulega dylst engum sem til þekkir, að hrað- frystiiönaðurinn hefur átt í vök að verjast að undanförnu og horfurnar í þessari höfuð fisk- vinnslugrein okkar eru ekki eins góðar og æskilegt væri. Uþp úr þeim litla vísi að frysti- húsi, sem hér um ræðir, þróaðist smám saman eitt af stærstu og afkastamestu hraðfrystihúsun- um í Keflavík um langt árabil, Hraðfrystihúsið Jökull, sem þeir stofnuðu og ráku lengst af meðan rekstur þess stóð, Elías Þorsteinsson, Þorgrímur St. Eyj- ólfsson og Þórður Pétursson. Allir störfuðu eigendurnir ötul- lega við rekstur frystihússins. Elías og Þorgrímursáu lengstaf um framkvæmdastjórnina og reikningshaldið, en báðir gegndu þeir samhliða þessu öðrum störfum. Þórður starfaði hins vegar óskiptur við frysti- húsið sem frystihússtjóri alian þann tíma sem sameignarfélag þeirra starfaði, en það hætti starfsemi sinni árið 1975. Nú er Þórður sá eini þeirra þremenninganna sem á lífi er, og hér á eftir fer frásögn hans af stofnun og upþbyggingu fyrir- tækisins. Þórði Péturssyni segist svo frá: „Aödragandi þess að ég gerð- ist einn af stofnendum Jökuls var á þessa leið: Eitt sinn er ég var á gangi á Hafnargötunni í ná- grenni við heimili Þorgríms St. Eyjólfssonar, æskufélaga míns, kallaði hann til mín af tröþþun- um og bað mig að koma inn til sín, því hann þyrfti að ræða við mig ákveðið mál. Nú, málið var það að þeir voru að vinna að því að stofna sameignarfélag til að koma á fót hraðfrystihúsi, hann og Elías, og þá vantaði þriðja manninn í félagið, mann sem lagt gæti fram þriðja hluta þess fjár sem til þyrfti, en það voru 10 þúsund krónur. ,,Og þú ert mað- urinn sem okkur hefur dottið í hug að gott mundi vera aö fá til liðs við okkur í félagsskaþinn," sagði Þorgrímur. Að sjálfsögðu gat ég ekki tekið ákvörðun um þetta mál þarna á stundinni. Sannast sagna kom erindi Þorgríms mér nokkuð á óvart, þó ég mætti að sjálfsögðu búast við frumlegum og gjörhugsuðum málum, sem væru að brjótast um í huga hans og hann hefði áhuga á að ræða við vini sína á förnum vegi. Nú það var langt frá að þess væri krafist að ég tæki ákvörðun um þetta mál þarna samstundis, enda um stórmál að ræða, því 10 þúsund krónur voru miklir pen- ingar á þessum tíma oq öðru nær en slík summa væri hrist fram úr erminni á krepputíma fjórða áratugarins. Mér leist strax vel á að gerast þátttakandi í félagsskapnum og þeirri vinnu, sem reksturinn mundi þurfa á að halda frá minni hendi. Þess vegna réðst ég í það af fullum krafti að verða mér úti um það fé, sem til þurfti. Og þar með var því komið í kring, að við félagarnir stofnuðum fyrirtækið með 30 þúsund kr. hlutafé. Reksturinn hófst 15. sept. 1937 Að mörgu var að hyggja við uppbyggingu rekstursins þó smár væri í sniðum í upphafi, enda fiskhúsið sem reksturinn hófst í, lágreist og óþénugt til að þjóna sínu nýja hlutverki. Fyrstu frystitækin voru smið- uð hjá Héðni. Voru það svonefnd þækiltæki og var not- aður klórkalsíum-þækill. Var hann geymdur í stóru keri og dælt í hringrás í gegnum frysti- tækin. Frystivélarnar voru frá Sabro í Danmörku, en umboðs- maður fyrir þær vélar var Björg- vin Frederiksen. Á vélarnar var notaður sjór til kælimyndunar. Sjónum var dælt upþ við klaþþ- irnar norðan við frystihúsið, en oft olli það vandræðum að þang og drasl vildi setjast í sigtið á enda sjóleiðslunnar, þegar hreyf ing varásjó við klappirnar, og þá stíflaðist allt. Haraldur Erlendsson hét fyrsti vélamaðurinn hjá okkur, en hann var aðeins stuttan tíma. Hann var frá Reykjavík. Sigurð- ur Sigurðsson tók við vélgæsl- unni af honum og var hann síðan vélamaður hjá okkur alla tíð upp frá því. Hann var um áttrætt þegar við hættum rekstrinum og er hann enn furðu hress þrátt fyrir háan aldur, og kann frá mörgu að segja. Pétur Þóröarson í fiskmóttökunnl Handflökun Snyrtlng, vlgtun og pökkun FAXI-6

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.