Faxi - 01.01.1982, Blaðsíða 22
Þarna var fyrsta verslun Nonna & Bubba
Þar aö auki voru það allt lánsvið-
skipti, sem oft reyndist seinlegt
að innheimta. Hér í Keflavík voru
bátaviðskiptin í lægra hlutfalli
og því ekki eins þungt í vöfum.
Lánsviöskipti komust upp í
80-90% í Sandgerði, en hér voru
þau komin niður í 20% af veltu.
Bestu viðskiptaárin voru milli
1960-1970. Þá virtist afkoma
manna vera jafn best og örugg-
ust og þess gætti auðvitað í öll-
um viðskiptum."
Þið hafið verið stórir vinnu-
veitendur þegar mest var
umleikls hjá ykkur?
,,Við vorum fyrst 4 og nú
síðast 10. En þegar við vorum
flest vorum við 16-18. Við
unnum mikið sjálfir og vorum
með aöstoðarfólk í lágmarki. Við
vorum mjög heppnir með sam-
starfsfólk - það var yfirleitt
ágætisfólk."
Hvað viljið þið segja um versl-
unarstörf og kaupmennsku?
„Verslun með matvöru er
takmarkalaus vinna, vinna,
vinna, - ekkert nemavinna, ef vel
á að takast þjónusta við við-
skiptavini, a.m.k. ef byrjað er
með tvær hendur tómar eins og
við gerðum. Oftast farið á fætur
kl. 5-6 á morgnana og ekki
komið heim að loknum vinnu-
degi fyrr en 8-9 á kvöldin og
stundum síöar, einkum á vertíð-
um. Sum árin var vinnudagurinn
að jafnaði um 18 vinnustundir."
Já, þið f enguð orð fy rir að vera
áhugasamir?
„Vissulega var það vinnugleð-
in, sem átti þátt í þessari miklu
vinnu, en svo var það líka hitt, að
verslunin gekk ekki með öðru
móti. Við stefndum að því að
eignast verslunarhús og sæmi-
legan lager. Við áttum ekkert
þegar við byrjuðum og tókum
sjálfir lítil laun ( byrjun. Síðar
gátum við eignast eigin íbúðar-
hús, en það er keppikefli flestra
og sem betur fer iekst það
flestum - oftast með því að
leggja hart að sér við vinnu."
Hefur samkeppnin verið
hörð?
„í Sandgerði var sáralítil sam-
keppni, en hér í Keflavík aftur
mikil. Við höfðum alla tíð lagt
kapp á að verða viö óskum viö-
skiptamanna okkar og hefur
okkur því haldist vel á góðum
viðskiptavinum. Eftir stríöið, á
Hérna var Verslun Nonna & Bubba siöast til húsa i Sandgeröi.
tímum skömmtunar og leyfis-
veitinga, var óskemmtilegt að
standa í verslunarrekstri. Þá var
ekki hægt að gera allt fyrir alla -
vantaði oft nauðsynjar. Þá varð
maður stundum að sjá á eftir
góðum kúnnum í aðrar
verslanir. Yfirvöldin höfðu það í
hendi sér hverjir höfðu vörur.
Annars teljum við að samstarf
milli verslana hér hafi verið
gott.“
Hverjar eru ástæður fyrir þvf
að þið seljið verslun ykkar eftlr
nær 40 ára farsælt starf?
„Ástæðurnar eru einkum
tvær. Við höfum ekki lengur
sama þrek og ánægju af að
standa í þessari hörkuvinnu, og
svo hitt, að okkur þótti skynsam-
legt að hætta á meðan við
værum báðir við sæmilega
heilsu. Við getum því gert sam-
starfsdæmið uppen þurfum ekki
að láta það í hendur eftirlifenda
þegar annar hvor eða báðir væru
fallnir frá. Við höfum dæmin fyrir
okkur um að það kann að gefast
illa.“
Viljið þið segja eitthvað að
lokum?
„Já, við viljum þakka sam-
starfsfólki og góðum og trygg-
um viðskiptavinum á Suðurnesj-
um fyrir góð samskipti við okkur
og verslun okkar á liðnum
árum.“
Þessir síungu menn, sem fyrir
löngu eru kunnir af frábærri lip-
urð og dugnaði á sínum versl-
unarsviðum, eru báðir bornir og
barnfæddir Suðurnesjamenn.
Jón Axelsson er fæddur í Sand-
gerði 14. júní 1922, sonur Axels
Jónssonar frá Laufási á Akra-
nesi, og Þorbjargar Einarsdótt-
ur frá Grund í Stafneshverfi.
Þorbjörn Sveinn Einarsson er
fæddur í Keflavík 24. júlí 1922,
sonur Einars Sveinssonar frá
Gjáhúsum í Grindavík og Jónínu
Helgu Þorbjörnsdóttur af Álfta-
nesi, en átti ættir að Húsafelli í
Borgarfirði. j.t.
ORÐSENDING
til launagreiðenda
er hafa í þjónustu sinni starfs-
menn búsetta í Keflavík, Njarð-
vík, Grindavík og
Gullbringusýslu
Samkvæmt heimild í 7. tölulið 103. gr. reglugerðar
nr. 245/1963, er þess hér með krafist af öllum þeim
er greiöa laun starfsmönnum búsettum í Keflavík,
Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu, að þeir
skili nú þegar skýrslu um nöfn starfsmanna sinna
hér í umdæminu, sem taka laun hjá þeim, nafn-
númer, heimilisfang og gjalddaga launa.
Jafnframt skal vakin athygli á skyldu kaupgreið-
enda til að tilkynna er launþegar hætta að taka
laun hjá kaupgreiðanda og þeirri ábyrgö er
kaupgreiðandi fellir á sig, ef hann vanrækir skyld-
ur sínar samkvæmt ofansögðu eða vanrækir að
halda eftir af launum upp í þinggjöld samkv. því
sem krafist er, en í þeim tilvikum er hægt aö inn-
heimta gjöldin hjá kaupgreiðanda, svo sem um
eigin skuld væri að ræða.
Bæjarfógetinn i Keflavík, Njaróvik
og Grindavík
Sýslumaðurinn f Gullbringusýslu,
Vatnsnesvegi 33, Keflavfk
FAXI - 22