Faxi - 01.01.1982, Side 11
t
MINNING
Bjarni Albertsson
Fæddur 28. marz 1922
Dáinn 22. desember 1981
Rétt í þann mund sem loka-
hönd skyldi lögð á undirbúning
jólahátíðarinnar, þeirrar miklu
fagnaðarhátíðar kristinna
manna, þá færðist óvæntur
sorgarskuggi á himin okkar. Sú
fregn barst um bæinn að morgni
hins 22. des., að Bjarni Alberts-
son hefði orðið bráðkvaddur
snemma nætur. Okkur, vinum
hans, var að vísu kunnugt um að
Bjarni gekk ekki heill til skógar
næstliðna mánuði, og að sjúk-
leiki hans væri eins og falinn
eldur, en að leiðirmynduskiljast
með svo snöggum hætti sem
raun varð á, gat mann ekki rennt
grun í. Það var að minnsta kosti
ómögulegt að ímynda sér þessi
skyndilegu umskipti, þegar við
tveir fórum af síðasta Lionsfundi
og beint í íþróttahúsiðtil þessað
horfa þar á körfuboltakeppni, og
ég ók honum að lokum heim til
sín, glöðum og mjög ánægðum,
enda haföi heimaliðið unnið
góðan sigur, og auðvitað dró
það ekki úr gleði hans að sonur
hans átti þar stórgóðan hlut.
En síðasta vegferðin tekur
oft undra stuttan tíma, þó
öðrum reynist hún torsótt-
ari, og það er í raun viss
huggun, að vinir manns þurfi
ekki að heyja þrautastríð,
oft langt, við dauðann, sem
sigrar þó alltaf að lokum. Og
þótt fagnaðarhátíð jólanna
breytti verulega um svip í hugum
okkar, ættingja og vina Bjarna,
þá boðar þó einmitt fæðing
Krists hina miklu og huggunar-
ríku von upprisu og nýs og bjart-
ara lífs.
Bjarni Albertsson var fæddur
hinn 28. mars 1922. Hann var
sonur hjónanna Lísbetar Gests-
dóttur og Alberts Bjarnasonar,
sem hér bjuggu, en Albert var
kunnur sjósóknari og útgerðar-
maður, og setti hann verulega
svip sinn á útgerðarmál hér í bæ
á sinni tíð. Albert er nú látinn, en
Lísbet lifir son sinn.
Bjarni var borinn og barn-
fæddur Keflvíkingur. Hér ólst
hann upp og hér starfaði hann
öll sín ár að heita má, að undan-
skildum námsárum sínum í
Verslunarskóla (slands og
ársdvöl við nám í Bandaríkjun-
um, og nokkra mánuði að versl-
unarprófi loknu sem hann starf-
aði hjá Eimskipafélagi (slands.
Bjarni hafði þá í orðsins fyllstu
merkingu séð bæinn okkar vaxa
úr til þess að gera litlu sjávar-
plássi í myndarlegan kaupstað.
Bærinn var honum einstaklega
kær, og allir hinir margvíslegu
þætti bæjarlífsins sem til fram-
fara horfðu og bættu og fegruðu
mannlífið í bænum, voru honum
sérlega hugleiknir.
Trúr uppruna sínum helgaði
Bjarni fyrstu starfsár sín sjávar-
útvegi og fiskvinnslu, starfaði
við útgerð og frystihús föður
síns og var orðinn meðeigandi
hans að fyrirtækinu. Og enda
þótt hann sneri sér að öðrum
störfum síðar, þá áttu málefni
þessara undirstöðuatvinnuvega
þjóðfélagsins þó alla tíð mjög
sterkar rætur í huga hans.
En hann var þó enn mjög
ungur maður, er hann réðist til
starfa hjá Keflavíkurbæ, og um
árabil og allt til hinstu stundar
var hann aðalbókari bæjarins.
Þau vandasömu störf vann
Bjarni af hinni mestu samvisku-
semi, lipurð og vandvirkni.
Bjarni var mjög félagslyndur
maður og tók ávallt virkan þátt í
starfi þeirra félaga sem hann var
í. Auk margs annars nefni ég
hér aðeins, að hann var einn af
frumkvöðlum að stofnun Lions-
klúbbs hér í Keflavík fyrir 25
árum síðan, og aftur, en miklu
seinna, var hann einn af hvata-
mönnum þess að Oddfellow-
stúka var stofnuð hér í bænum.
Á þessum vettvangi þekkti ég
mæta vel til félagslegs áhuga
Bjarna, hversu annt honum var
um vöxt og viðgang beggja
þessara félaga, og hversu vel
hinar mannúðarlegu og menn-
ingarlegu hugsjónir þeirra féllu
að skapgerð hans. Hér var hann
þátttakandi, heill og óskipturog
ávallt reiðubúinn til allra þeirra
starfa, sem hann var kallaður til
á þeirra vegum.
Bjarni lét einnig þjóðmál veru-
lega til sín taka, og var ávallt
mikill og dyggur stuðningsmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, og á
yngri árum sínum mikilvirkur í
starfi á vegum flokksfélaga hér,
einkum í starfi við kosningar, en
þar naut hann sín einkar vel, eins
lipur og þægilegur og hann var í
viðmóti við alla. Hann var um
skeið í hreppsnefnd fyrir flokk
sinn, og var m.a. fulltrúi hans í
fyrstu bæjarstjórn, eftir að Kefla-
vík öðlaðist kaupstaðarréttindi.
Á síðari árum dró hann sig
heldur til baka á þessum
vettvangi, taldi það enda ekki
rétt að taka virkan þátt í pólitík,
eftir að hann gerðist aðalbókari
bæjarins.
Bjarni var maður fróðleiksfús
og hafði sérstaklega mikið dá-
læti á þjóðlegum fróðleik og ætt-
fræði, og varð því eins og slíkum
mönnum er tamt, mjög fróður
um menn og margvísleg málefni
og öll umræða á þessu sviði var
honum einkar hugleikin.
Bjarni var einstaklega hugljúf-
ur maður og háttvís, og án þess
að maður gerði sér nánar grein
fyrir þvi, leið manni alltaf einkar
notalega í návist hans. Það var
eins og honum sárliði illa, ef ill-
deilur voru uppi, og hann virtist
hliðra sér hjá að standa í útistöð-
um við menn. Hann vildi
einungis eiga gott við menn,
bæði í orði og verki.
Bjarni var kvæntur Ingibjörgu
Gísladóttur, hinni mestu ágætis
konu, og höfðu þau búið sér hið
glæsilegasta heimili hér í bæ.
Þau eiga einn kjörson uppkom-
inn, Þorstein, sem var og er enn
mikill íþróttagarpur, og dró það
vitaskuld ekki úr þeim mikla
áhuga sem Bjarni hafði á íþrótt-
um, enda sjálfur liðtækur vel á
slíkum vettvangi sem ungur
maður.
Ég og fjölskylda mín vottum
þeim Ingu og Þorsteini innileg-
ustu samúð okkar á stund sorg-
arinnar. Megi birtaogylurhækk-
andi sólar færa þeim blessun
með nýju ári, og huggun hinsal-
máttuga i harmi.
NÝKOMIÐ
Mótakrossviður
Vatnslímdur birkikrossviður
Hurðakrossviður
Vatnsþéttar spónaplötur
Masonitplötur
Fokkuborð
Vatnsrör, svört og galv.
Fittings
Koparrör
Koparfittings
Rennilokur
Vatnskranar
Ofnkranar
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
JÁRN & SKIP
FAXI-11