Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1982, Side 20

Faxi - 01.01.1982, Side 20
Óskar Guðjónsson Sandgerði - Minning Fæddur 28. október 1920. Dáinn 22. desember 1981. Laugardaginn 2. janúar var til moldar borinn frá Hvalsneskirkju Oskar Guðjónsson, múrarameist- ari, 61 árs að aldri. Hann andaðist á heimili sínu aðfaranótt 22. des- ember. Enginn vissi til að hann hefði kennt sér meins og hann fékk því að kveðja þennan heim á þann hátt sem hann hafði óskað sér, það var að fá að sofna út af. Ég hitti hann nokkrum dögum áður, hressan og glaðan að vanda, því þannig var hann alltaf, glaður og jafnlyndur. Ég minnist hans hér með nokkrum orðum. Ég lærði hjá honum múraraiðn og var hans fyrsti nemandi. Það varð mér mik- ið lán, því hann var einstakur vinnufélagi og félagi í orðsins fyllstu merkingu. Lífsgleðin sem hann hafði að leiðarljósi, hvað sem á móti blés, varð mér einnig lærdómur. Leiðir okkar lágu sömuleiðis saman í félagsstörfum. Hann var einn af stofnendum Múrarafélags Suðurnesja og sat í stjórn þess í mörg ár, jafnframt er við stofnuð- um Múrarameistarafélag Suður- nesja var hann kjörinn í stjórn þess og sat þar til dauðadags. Einnig völdum við hann í stjórn Suðurnesjaverktaka til forystu fyrir okkar stétt. Hann var for- maður prófnefndar múrara í fjölda ára. Þessi upptalning Iýsir því hvað við bárum mikið traust til hans, því að öll störf hans ein- kenndust af velvilja fyrir því að gera sem réttast og best í einu og öllu og leysa hvern vanda með friðsemd. Hann starfaði einnig að félags- málum í sínu byggðarlagi, bæði sem formaður Sjálfstæðisfélags Miðneshrepps og í hreppsnefnd sat hann í mörg ár. Óskar fluttist 6 ára gamall frá Bakkafirði til Reykjavíkur og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, Guðjóni Sæmundssyni og Ingi- björgu Árnadóttur. Móðir hans og hálfsystir voru blindar. Þess vegna skildi hann svo vel þörfina að styrkja og efla starfsemi þeirra sem hafa starfsorku og innra ljós en verða að lifa í myrkrinu, og hann studdi dyggilega það starf sem unnið er fyrir þá blindu. Hann var líka trúaður maður. Það vissum við sem þekktum hann vel. Hann kynntist starfi hjá KFUM sem barn og unglingur og þaðan fékk hann einnig gott vegarnesi eins og úr foreldrahúsum. Hann giftist Lilju Jósefsdóttur frá Síreksstöðum í Vopnafirði. Þau byrjuðu þröngt að búa eins og flestir og innréttuðu bílskúr mjög smekklega en síðar byggði hann þeim mjög myndarlegt hús og áttu þau þar fallegt heimili. Þaú eign- uðust 2 dætur sem báðar eru upp- komnar og búnar að stofna sín heimili. Við félagarnir úr múrarastétt- inni þökkum fyrir óeigingjarnt starf og sendum samúðarkveðjur- til ekkju hans og fjölskyldu. Einnig sendum við hjónin inni- legar samúðarkveðjur til Lilju, dætra þeirra og annarra fjöl- skyldumeðlima. En fóstra mínum, eins og ég nefndi hann ævinlega, sendum við hinstu kveðju. Far þú í friði, friður guðs þig bless'- Óli Þór Hjaltason ELfN J. MAGNUSSEN Framh. af bls. 19 En aö eiga að lýsa öllu því starfsþreki og starfsgleði sem Ella bjó yfir er ekki á mínu færi, aðeins get ég sagt, að enga hef ég þekkt slíka. Það var oft með ólíkindum hverju hún gatafkast- að, og allt var það með gleði gert. í áratugi vorum við Ellasaman í saumaklúbb, við vorum sex í mörg ár, tvær eru nú horfnar úr hópnum og beggja mikið sakn- að. I saumaklúbbnum okkarvar oft glatt á hjalla og þar átti Ella stóran hlut. Oft fórum við í smá- ferðalög, í leikhús, í berjatúra eða bara eitthvað „austur fyrir fjall“. Og þegar Ella varð sextug fórum við fjórar úr klúbbnum til Kaupmannahafnar, haldið var upp á afmæli Ellu í Tívolí og mikið hlegið og skemmt sér. En hámark þeirra ferðalaga er við Ella fórum saman var er hún varð 75 ára og tengdafólkið hennar bauð henni til Færeyjatil að halda upp á afmælið, og eins marga kunningja og vildu koma mátti hún taka með sér. Við vorum 9 sem fórum með henni og Stíg, og dvöldum með henni í Færeyjum í 2 vikur. Það var mikið um dýrðir í Tjörnuvík á af- mælinu. 100 manna veisla og veitt af mikilli rausn. Við fórum með Ellu í ótal heimsóknir til tengdafólksins hennar og kynntumst af eigin raun því góða sambandi er þarna var á milli. Og þeirri gestrisni er við urðum þar aðnjótandi gleymum við áreiðanlega aldrei. Þegar samtíðarmenn hverfa héðan af heimi sem maður hefur umgengist meira eða minna í áratugi, er margs að minnast. Það er gott að minnast Ellu, minnast hennar eins og hún oftast var, kát og hress og önnum kafin í þeim störfum er hún vann að hverju sinni, en samt alltaf tilbúin að gera manni greiða ef með þurfti. Það var gaman að spjalla við hana og heyra hana segja frá spaugileg- um atvikum eins og henni var lagið. Ekki vorum við alltaf sam- mála um menn eða málefni, en einn af kostunum hennar Ellu var sá, að óhætt var að segja um- búöalaust það sem manni fannst um hlutina, hún gerði það sjálf og tók ekki illa upp þó aðrir gerðu eins. Og svo er bara að kveðja hana Ellu og þakka henni ótal skemmtilegar stundir frá okkar fyrstu kynnum. Óska henni árs og friðar og umfram allt, nóg að starfa, séu þau skilyrði fyrir hendi þar sem hún nú dvelur. Fóstursyni þeirra Ellu og Óla óska ég þess að hann megi upp- fyllasem flestar þærvonirer þau bundu við hann. Þá mun honum vel farnast. Grindavík, 19. jan. 1982. Fjóla Jóelsdóttir KEFLAVÍK ÚTSVÖR AÐSTÖÐU GJÖLD 1. gjalddagi fyrirframgreiðslu útasvara og aðstöðugjalda var 1. febrúar sl. Gerið skil á gjalddögum og forðist þannig dráttarvexti og önnur óþægindi. Dráttarvextir eru 4.5% á mánuði og falla á ógreidd gjöld 15. febrúar. Innheimta Keflavíkurbæjar Munið að panta fermingar- myndatökurnar tímanlega. LJÓSMYNDASTOFA SUÐURNESJA Hafnargötu 79 - Kefiavik - Simi 2930 FAXI - 20

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.