Faxi

Volume

Faxi - 01.09.1993, Page 2

Faxi - 01.09.1993, Page 2
[<V\AJ 5 TÖLUBLAÐ - 53. ÁRGANGUR Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Afgreiðsla: Hafnargötu 3 i, sími 92-11114. Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri. Magnús Haraldsson, Hjálmar Stefánsson og Karl St. Guðnason. Litgreining: Litróf hf. Hönnun, setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Stapaprent hf. > Meðal efnis: Biskupsvísitasía í Keflavík Erindi um Hilmar Jónsson bókavörð Sjúkrahúsinu færðar veglegar gjafir Brot úr sögu sólar Magnús Haraldsson: Satneining - eina rökrétta framhaldið. 16. aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum er nýlokið. SSS var stofnað árið 1978 og er því 15 ára um þessar mundir, Sveitatfélögin á Suðumesjum stofnuðu með sér þetta samband um þau verkefni sem þau töldu hag sínum best borgið með að vinna í samstarfi. Þegar litið eryfir farinn veg, sést að þessi verkefhi hafa verið mörg og ótrúlega miklu hefur verið komið í verk á þessum stutta tíma. Grindavík, bær í framför S ameiningarmál Stekkj arkotssögur Smábátahöfnin í Grófinni. Þótt nú sé vetur konungur genginn í garö, þá þurfa eigendur þessara báta ekki lengur að hafa áhyggjur. Verið er að Ijúka við nyrðri hafnatgarðinn og er því Iwfnin orðin mjöggóð. Ljósm. HH. I upphafi samstarfsins var aðeins eitt sameiginlegt verkefni í gangi, en það var um Sjúkrahúsið. Nú er víðtœkt samstarf í fjöhnörgum öðrum málum sem sveitatfélögin hafa stofnað rekstur um og nægir að nefna Hitaveitu, Rafi’eitu, Gjaldheimtu, Brunavarnir, Elliheimili, Sorphirðu, Heilbrigðiseftirlit, Fjölbrautasóla, Vatnsveitu, auk fjölmargra annarra verkefna sem sveitarfélögin starfa öll að saman eða hluti þeirra. Þessi mikli árangur af samstatfi sveitaifélaganna á Suðumesjum hefur orðið vegna þess, að traust > hefur ríkt á tnilli forystumanna þeirra, og jteir hafa komist að /teirri einföldu staðreynd að hagkvœmast og best er að vinna verkin saméiginlega. Keflavík er langstærsta sveitatfélagið á svæðinu og leggur það til nærri helming þess fjármagns sem til sam- staifsins hefiur farið frá sveitaifélögunum, en hejur þrátt fyrir það aðeins eitt atkvœði á móti hverju hinna í öllu samstaifmu, og hefur reyndar ekki þótt það neitt tiltökumál. Þetta fyrirkomulag er grundvöllurinn að þessu góða samstaifi og mikla árangri þess. Eðlilegt framhald afþessari hröðu þróun í samstaifi sveitarfélaganna á svæðinu hafa hugsandi menn álitið að úr yrði eitt sveitaifélag. Atak ríkisvaldsins til að sameina sveitaifélögin í landinu kemur því á mjög heppilegum tíma fyrir íbúd Suðurnesja, sem nákvœmlega núna, ættu að vera tilbúnir að taka svo veigamikla ákvörðun. Við Suðurnesjamenn erum reyndar miklu betur í stakk búnir til þess en íbúar flestra annarra sveitarfélaga á landinu eftirgóða reynslu afvíðtæku samstarfi okkar í SSS. Umdœmanefnd er að Ijúka kynningarfundum, sem hún hefur haldið í öllum sveitarfélögunum, um kosti og galla sameiningar sveitaifélaganna sjö í eitt. A þessum fundum hefur það helst verið mælt gegn sameiningu að Keflavík væri svo iniklu stærra sveitatfélag en hin, að það myndi gleypa þau og hrifsa allt vald til sín. Þetta er ónjakleg tortryggni í garð Keflvíkinga og ástæðulaus. Framganga þeirra innan SSS hefur áldrei gefið tilefiii til slíks heldur þvert á móti. Það er óþarfi að ala á tortryggni milli sveitar- félagánna íþessu stóra og viðamikla rnáli, sem sameiningarmálin eru. Stjórnvöld í landinu eru ákveðin í því að færa miklufleiri verkefni til sveitatfélaganna. Við Suðurnesjamenn erum miklu betur í stakk búnir til að taka við þeim verkefnum sameinaðir í einu sveitaifélagi. Rökfyrir slíktt Itafa verulega komiðfram í itmræðunni á kynningatfundunum. Það er von mín að íbúar Suðumesja segi já við sameiningu þann 20. nóvember n.k. Hag okkar yrði svo miklu beturfyrirkomið á þann veg og er í raun eina rökrétta framhaldið í samstarfi sveitaifélaganna á Suðumesjum. 130 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.