Faxi - 01.09.1993, Side 4
Fimmtugasta og fjórða staifsári Málfundafélagsins Faxa er lokið. Á starfsárinu
voru haldnir 12 fundir og flutt voru 10 framsöguerindi. Frummælendur og
framsöguerindi voru þessi:
Gunnar Sveinsson:
Kristján Jónsson:
Helgi Hólm:
Ingólfur Falsson:
H jálmar Stefánsson:
(.iiófuinur Sigurvinsson:
Birgir Guðnason:
Benedikt Sigurðsson:
Vilhjálmur Þórhallsson:
Karl Steinar Guðnason:
Spástefna Foxa.
Breyttri heimsmyndfylgja hreytt úrrœði.
Hvað þaifað gera til þess að Saðumes verði
allsherjarferðamannasvœði.
Hvert stefnir í atvinnumálum í Keflavík og
nágrenni.
Hafið.
Bygging safitaðarheimilis við Keflavíkurkirkju.
Hvað er til ráða gegn vaxandi atvinnuleysi.
Veðrið.
Enginn verður óbarinn hiskup.
Siðferði ístjónvmlum.
Aðrir fundir voru hefðbundinn afmælisfundur í upphafi starfsárs þann 10. október
og aðalfundur næsti fundur þar á eftir.
Fundarsókn var góð og var meðaltalsmæting 91%. Sex félagar mættu á alla
fundi. Fundir félagsins eru orðnir 740 frá upphafi.
Á starfsárinu mætti Margeir Jónsson, heiðursfélagi, á tvo fundi og Huxley
Olafsson, heiðursfélagi, á einn fund.
Þá fóru félagar ásamt mökum í Borgarleikhúsið þann 12. desember og sáu
leikritið „Hafið“ eftir Ólaf Hauk Símonarson. Fyrir leiksýninguna snæddi hópurinn
saman síðdegismáltíð á Flug-Hóteli.
Gunnar Sveinsson varð sjötugur þann 10. mars s.l. og hélt hann upp á afmæli sitt í
fjölmennu hófi á Flug-Hóteli. Félagar mættu vef til Gunnars og ávarpaði formaður
hann þar sérstaklega og flutti honum afmæliskveðjur og bókargjöf frá Faxafélögum.
Blaðið Faxi kom reglulega út á starfsárinu eins og árin 53 þar á undan.
í ársskýrsiu ritstjóra Faxa kom m.a. fram að samkomulag hefur verið gert við
Bókasafn KefJavíkur um að BK vinni efnisyfirlit úr blaðinu frá upphafi. Einnig kom
frant, að um sinn munu koma út 6 tbl. á ári í stað 7-8. Er þetta gert til að mæta
samdrætti í auglýsingatekjum
Magnús Haraldsson formaður:
Skýrsla
Faxa 1993
Prestar Keflavíkursafnaðar, prófastur og biskup ganga til hátíðarguðsþjónustu í
Keflavíkurkirkju.
Miðvikudaginn 29. september 1993 var biskupinn yfir íslandi, herra
Ólafur Skúlason, staddur í Keflavík í vísitasíuerindum. í fylgd með
biskupi var eiginkona hans frú Ebba Sigurðardóttir og prófastur séra Bragi
Friðriksson.
Er þau komu að safnaðarheimili
Keflavíkurkirkju, Kirkjulundi, fékk biskup
kærkomið tækifæri til að óska fararheilla
um 70 Keflavíkurbörnum, sem voru að
leggja upp í tveggja daga fermingar-
búðaferð í Vatnaskóg.
í Kirkjulundi tóku á móti biskupi og
fylgdarfólki prestar Keflavfkurprestakalls,
þeir sr. Ólafur Oddur Jónsson og sr. Sigfús
Baldvin Ingvason, Hrafnhildur Gunnars-
dóttir, sóknamefndarformaður, Ragnheiður
Skúladóttir, systir biskups og sóknar-
nefndarkona og Kristján A. Jónsson, safn-
aðarfulltrúi, sem ritar vísitasíugjörðina.
Fljótt leið þarna Ijúf morgunstund að
fyrsta dagskrárlið, kl. 8.30, við spjall yfir
molakaffi.
Heimsókn í
Myllubakkaskóla
I íþróttasal Myllubakkaskóla voru allir
árdegis nemendur skólans, um 380 talsins
samankomnir og fögnuðu með lófataki,
þegar biskup og fylgdarlið gekk í salinn
ásamt skólastjóranum, Vilhjálmi Ketilssyni
og 40 manna starfsliði hans.
Skólastjóri bauð biskupshjónin, prófast
og fylgdarmenn velkomna. Sungið var
versið Jesús er besti vinur barnanna og farið
með Itina drottinlegu bæn. Því næst talaði
biskup til barnanna. Vék hann m.a. tali sínu
að skólagöngu sinni og uppvexti í Keflavík.
Þeim blessunargjafa, sem hann naut í því að
eiga gott heimili og foreldra, sem ekki þótti
Biskup ávarpar nemendur Myllubakkaskóla.
132 FAXI