Faxi - 01.09.1993, Side 6
þakkarorðum sínum m.a. að fyrstu kynnum
sínum af Ketlavík og bar að verðleikum
sérstakt lof á tengdaforeldra sína og tengda-
fólk.
Hér sést hluti vistfólks á Hlévangi hlýða á
ávarp biskups.
Jafnframt áréttaði hún fundarboð á
héraðsfund Kjalarnesprófastdæmis 1993,
sem haldinn verður í Útskálasókn n.k.
laugardag.
Þessu næst tók biskup til máls. Lagði
hann m.a. áherslu á að enginn söfnuður
væri einangraður heldur hluti af heild -
þjóðkirkju Islands „Prófastsdæmin eru að
verða virkari starfseiningar og þar fer
Kjalamesprófastdæmi í fararbroddi."
Biskup fagnaði því að séra Sigfús
Baldvin væri kominn til starfa við hlið séra
Olafs Odds. Sagðist hann vænta þess að
samvinna þeirra stuðli að því að
prestakallinu verði þjónað eins vel og
kostur væri á. Þá sagðist biskup vona að
það tækist með friði og ró að koma upp
fyrirhuguöu safnarheimili við kirkjuna.
Sævar Reynisson sagði nýjustu fréttir af
störfum byggingamefndar safnaðarheimilis.
Skýrði tafir við gerð sáluhliðs og
áhaldahúss í Hólmsbergskirkjugarði.
Einnig lagði hann fram tvo tillöguuppdrætti
af staðsetningu áhaldahússins.
Biskup spurði hvernig samskiptum
sóknarnefndar og sóknarprests og
aðstoðarprests væri háttað og hvernig
samstarfið gengi.
Aðilar voru á einu máli um að samstarfið
gengi nú vel. Mál vom rædd af hreinskilni
en án átaka. (Hér er sleppt ítarlegri
greinargerð varðandi viðhald, gjafir og
eignir Keflavíkursafnaðar frá því í
Hrafnhildur, sóknarnefndarformaður
bauð gesti velkomna og undir borðum
töluðu sr. Sigfús, biskup og organisti.
Biskup lauk vísitasíunni með
skoðunarferð í fylgd forsvarsmanna
safnaðarins í Keflavíkurkirkju, Kirkjulund
og kirkjugarðana við Aðalgötu og á
Hólmsbergi. Síðan skoðaði hann þær
prestsþjónustubækur sem ekki vannst tími
til á sóknarnefndarfundi á miðvikudag.
Biskup lýsti ánægju sinni með umhirðu
og aðbúnað allan í kirkju og
kirkjugörðunum báðum, sem og í
Kirkjulundi. Þar fagnaði hann sérstaklega
vel búinni nýrri og bættri skrifstofuaðstöðu.
Herra Ólafur Skúlason, biskup, flytur ávarp í messukaffi í Kirkjulundi. Við borðið sitja
Edda Björk Bogadóttir, prestsfrú, séra Bragi Friðriksson, prófastur, Katrín
Eyjólfsdóttir, prófastsfrú, Ebba Sigurðardóttir, biskubsfrú, Laufey Gísladóttir, prestsfrú
og séra Ólafur Oddur Jónsson.
heiðurs biskupshjónunum og þeim var
drukkin heillaskál.
Séra Sigfús Baldvin tók einnig til niáls.
Lýsli hann fögnuði sínum með hið nýja
hlutskipti þeirra hjónanna en hvarf síðan á
brott, því skyldustörf með fermingar-
börnum biðu hans í Vatnaskógi.
Biskup þakkaði innilegar móttökur, sem
hann hefði hvarvetna notið á yfirreið sinni.
Hann áréttaði að Keflavík væri góður
staður og sér undurkær og sló svo jafnframt
á létta strengi.
Að lokum færði sóknarnefndarformaður
biskupshjónunum nýútkomið I. bindi af
Sögu Keflavíkur og blómvönd, sem þau
þökkuðu af alhug. Biskupsfrúin vék í
Messukaffi í Kirkjulundi. Fremst sitja María Hermannsdóttir, Fjóla Benediktsdóttir,
Júlíana Jónsdóttir og Karvel Ögmundsson, sem daginn áður varð 90 ára.
september 1988 en þá vísiteraði séra Bragi
Friðriksson, prófastur síðast Keflavíkur-
kirkju).
Hátíðarguðþjónusta í
Keflavíkurkirkju
Sunnudaginn 3. október var biskupinn
yfir Islandi herra Ólafur Skúlason staddur í
Keflavík að halda áfram vísitasíu.
I fylgd með biskupi voru kona hans frú
Ebba Sigurðardóttir og prófastshjónin séra
Bragi Friðriksson og frú Katrín Eyjólfs-
dóttir.
Hátíðarguðsþjónusta hófst í Kefla-
víkurkirkju kl. 14. Biskup Islands, herra
Ólafur Skúlason, predikaði. Prestar sókn-
arinnar, séra Ólafur Oddur Jónsson og séra
Sigfús Baldvin Ingvason þjónuðu fyrir
altari. Prófastur, séra Bragi Friðriksson
ávarpaði söfnuðinn.
í guðþjónustunni var lagt út af textum
dagsins samkv. 2. textaröð, sunnudagsins
þess 17. eftir þrenningarhátíð. Einnig lagði
biskup á ógleymanlega hátt út af orðum
Páls postula; Skuldið ekki neinum neitt
nema það eitt að elska hvert annað.
Eftir guðþjónustuna var messukaffi í
Kirkjulundi í boði sóknarnefndar og umsjón
kvenna úr Systra- og bræðrafélagi
Ketlavíkurkirkju.
Kvöldverðarboð
sóknarnefndar
Um kvöldið sátu biskupshjónin
kvöldverðarfagnað í Flughóteli ásamt
prestum safnaðarins, sóknarnefnd, starf.s-
fóiki og öðru forystufólki í safnarstarfinu og
mökum.
Veislustjórn var á hendi formanns
sóknarnefndar. Einsöng og tvísöng sungu
kirkjukórsfélagarnir María Guðmunds-
dóttir. Sverrir Guðmundsson og Steinn
Erlingsson við undirleik Einars Arnar og
Einar Örn söng einnig en þá lék Ragnheiður
Skúladóttir undir. Einnig var aö sjálfsögðu
fjöldasöngur.
Séra Ólafur Oddur flutti hátíðarræðu til
Nýjum borgara fagnað á fæðingardeild sjúkrahússins. Við vögguna standa Sólveig
Þórðardóttir, séra Sigfús Baldvin Ingvason, Ragnheiður Skúladóttir, Hrafnkell
Óskarsson, yfirlæknir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Ebba Sigurðardóttir, biskupsfrú,
herra Ólafur Skúlason og séra Ólafur Oddur Jónsson.
134 FAXI