Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1993, Síða 7

Faxi - 01.09.1993, Síða 7
Bókasafn Keflavíkur breytii um heimilisfang laugardaginn 8. október síðastliðinn. Undanfarna áratugi hefur það verið til húsa í íbúðarhúsi við Mánargötu 7, fyrst aðeins í hluta hússins en undir lokin hafði safnið lagt allt húsið undir sig. Með vaxándi starfi varð það húsnæði bæði óhentugt og of lítið til að sinna því starfi sem þar fór fram. Nýtt heinilisfang er Hafnargata 57 í því myndarlega Itúsi Keflavíkurverktaka sem hýsti fyrir Flug Hótel og útibú Landsbankans. Hilmar Jónsson sem lét af störfum sem bókasafnsvörður á síðasta ári hafði lengi barist l'yrir því ásamt mörgum öðrum þeim sem setið hafa í stjórn bókasafnsins, að húsnæðismálum safnsins yrði kotnið í viðunandi horf. Var það því langþráð augnablik þegar hið nýja húsnæði var tekið í notkun. Bókasafn Keflavíkur leigir húsnæðið af Keflavíkurverktökum sem Hluti gesta við opnunarhátíöina. Ljósm. HH. Forseti bæjarstjórnar. Drífa Sigfúsdóttir. Ilutti ávarp þar sem Inin m.a. ræddi um hið menningarlega gildi þess að eiga gott bókasafn. Lýsti hún síðan safnið opið og bauð gestum að skoða húsnæðið og aðstöðuna.Þegar menn höfðu skoðað húsnæðið en það er bæði rúmgott og bjart þar sem bókum og öðrum gögnum er komið fyrir á haganlegan hátt. þá tluttu þær Guðbjörg Ingimundardóttir, formaður stjórnar bókasafnsnefndar, og Hulda Þorkelsdóttir. safnvörður, ávörp þar sem þær röktu og lýstu flutningum og framtíðarmarkmiðum safnsins. Gat Hulda sérstaklega þáttar Hilmars Jónssonar fytrverandi bókavarðar, en hann hafði verið mikill áhugamaður um húsnæðismál safnsins. Einnig skýrði hún frá því, að Hilmar hefði verið svo rausnarlegur að gefa safninu málverk af sér sem hann hefði hlotið að gjöf á sextugsafmæli sínu. Málverkið er málað af Sigmari Vilhelmssyni kennara við Myllubakka- skóla. Það setli sérstakan blæ á þessa Hulda Þorkelsdóttir, bókasafnsvörður, tekur við blómum úr höndum Guðrúnar Olafsdóttur, varaformanni Verkalýðs- og Sjómannafélags Keflavíkur. A myndinni eru einnig þau Guðbjörg Ingimundardóttir, formaður bókasafnsnefndar og Helgi Sæmundsson. Ljósm. HH. skiluðu húsnæðinu fullfrágengnu. Bókasafnið hefur nú verið innréttað eftir þörfum og voru það eftirtaldir aðilar sem önnuðust það verk: Smiðir voru frá Tréval, þeir Arni Júlíusson og Gunnar Jónsson. lnnréttingar voru smíðaðar hjá Víkurás, afgreiðsluborð, stólar og skrifstofuhúsgögn komu l’rá Biistoð og húsgögn fyrir börn og ýmisleg afgreiðslugögn fengust hjá Þjónustumiðstöð bókasafna. Bókasafnið hefur verið dúklagt á mjög skemmtilegan hátt og var það Dúkarinn hf. sem annaðist það. Sérstakar tölvu- og raflagnir sáu Rafmiðstöðin og Geisli um. Er frágangur og útlit í bókasafninu með besta móti. Það voru fjölmargir gestir viðstaddir opnunar- athöfnina og það var Vilhjálmur Ketilsson skólastjóri sem stýrði athöfinni sem fór fram bæði í göngugötu hússins og í sjálfu safninu. Guðbjörg Ingimundardóttir flytur opnunarræðu. Ljósm. HH. opnunarathöfn, að þarna voru flutt tvö tónlistaratriði og einnig fór fram leiklestur. Fyrir athöfnina lék Lúðrasveit Tón- listarskólans og síðan lék hljómsveit sem skipuð var ýmsum kunnum hljómlistar- mönnum tvö verk undir stjórn Eiríks Arna Sigtryggssonar. Annað var verk eftir Guðmund Hermannsson "I tilefni dagsins", og liitt verkið var eftir stjórnandann og nefndist það "Hugleiðing við Ijóð Kristins Reyrs - Keflavík”. Með hljómsveitinni komu fram söngkonurnar Anna Guð- mundsdóttir og Hlíf Káradóttir og Jóhannes Kjartansson frá Leikfélagi Keflavíkur tlutti ljóð Kristins. Félagar úr Leiktelagi Keflavíkur lásu stutta kafla úr verkum Hilmars Jónssonar. Að lokum var öllum viðstöddum boðið að þiggja kaffiveitingar. FAXI 135

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.