Faxi - 01.09.1993, Qupperneq 11
Unga kynslóðin vildi strax fara að prófa nýja salinn sem er eins og sjá má bjartur og
rúmgóður. Samkvæmt upplýsingum sveitarstjóra er nú þegar búið að ráðstafa flestum
tímum í húsinu. Ljósm. HH.
körfuboltaleik t.d. kæmust ekki færri en
þúsund manns í húsið. Búningsklefar eru
fyrir 180 manns. í kjallari er 368 fermetrar
að stærð og er fyrirhugað að nota það svæði
í framtíðinni m.a. fyrir líkamsrækt og
skylda starfsemi. Anddyri er mjög rúmgott
og virðist afgreiðsluaðstöðu haganlega fyrir
komið.
25 metra útisundlaug
Langþráður draumur margra Garðmanna
hefur nú ræst þegar loks hefur verið byggð
sundlaug á staðnum. Hún er staðsett við
vestuenda hússins og er raunverulega sá
áfangi sem lengst hefur verið í byggingu.
Laugin sjálf er 25 metrar á lengd og 8
metrar á breidd. Að auki eru þar tveir heitir
pottar sem eru í dag ómissandi við slíka
sundlaug. Einnig lítil rennibraut fyrir yngstu
gestina. Er ekki að efa, að á næstunni verði
laugin vinsæll viðkomustaður Garðbúa á
öllum aldri.
Byggingarkostnaður
Það er mikið þrekvirki fyrir lítið
sveitarfélag að byggja slíkt mannvirki sem
þetta. Alls hefur það kostað um 160
milljónir. Fyrri áfanga sem inniheldur
búningsklefana var lokið fyrir nokkrum
árum og var kostnaður við hann á
núgildandi verðlagi um 15 milljónir.
Framkvæmdir nú nema um 145 milljónum
og eru að mestu tjánnagnaðar með láni til
15 ára. Þegar til þess er litið, að gamla
íþróttahúsið var byggt fyrir fimmtíu árum.
þá eru fimmtán ár skammur tími til að
greiða niður svo mikla framkvæmd.
Umhverfið til fyrirmyndar
Það vekur óneitanlega athygli, að
jafnframt því sem smíði hússins er lokið, þá
hefur hreppurinn fullkomlega gegnið frá
næsta umhverfi hússins. Þar hafa verið
malbikuð bílastæði fyrir 56 bíla, lagðar
hellur á 500 fermetra og um 3CXK) fermetra
svæði hefur verið tyrft. Til þess ennfremur
að lífga upp á umhverfið, þá hefur fallegu
grjóti og möl verið komið smekklega fyrir
við húsið. Það er ekki hægt annað en að
bera virðingu fyrir slíkum myndarskap.
Faxi vill því taka undir orð oddvitans og
segja: Til hamingju Garðmenn.
Að lokum er gaman að geta þess, að til
heiðurs þessu framtaki Garðmanna færði
íþróttafélagið Valur í Reykjavík heimaleik
sinn í fyrstu deild karla í handbolta gegn
Aftureldingu í hið nýja íþróttahús.
Leikurinn var leikinn .mánudaginn 27.
október s.l. og lauk honum með sigri Vals.
HH
Hér standa þeir saman Hjalti Guðmundsson aðalverktaki hússins og Sigurður Jónsson
svcitarstjóri Gerðahrcpps og voru þeir báðir í sjöunda liimni með daginn. Nú var
hlutverki Hjalta og hans manna iokið og Sigurður og hans fólk gat nú tekið til við að
fcka húsið Garðmönnum til gagns og ánægju. Ljósm. HH.
~T:
Þú færð bílinn hjá okkur
Grófin 7 og 8
Sími 14690 og 14692
• . W: ^ • 'r-'-
Þú fœrð ríflegan
skattaafslátt og ríkulega
raunávöxtun á Sparileið 5
Sparileið 5 er tvímælalaust ein arðvænlegasta
sparileiðin á fjármagnsmarkaðinum
Leið að eigin húsnæði
Leið að eigin varasjóði
Leið til lækkunar á sköttum
Því ekki að líta við og fá nánari
upplýsingar
ISLANDSBANKI
FAXI139