Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1993, Blaðsíða 12

Faxi - 01.09.1993, Blaðsíða 12
Altæk gæðastjórnun hefur verið æ fyrirferðameiri í umræðunni undanfarið. Ymsir halda því fram að hér sé á ferðinni ein önnur loftbólan sem eigi eftir að springa með hvelli. Ástæða þykir því að skoða hvort þessi stjórnunaraðferð hafi skilað einhverjum árangri eða hvort þetta séu óþarfa upplýsingar á upplýsingaöld. Saga altækrar gæðastjómunar Gæðastjórnun á sér sögu sem rekja má aftur til fyrri hluta þessarar aldar. Bandaríkjamenn voru fyrstir til að taka upp tölfræðilega stjómun ferla. Á árunum milli fyrri og seinni heimsstyrjaldar vann maður að nafni Walter A. Shewhart við rannsóknir hjá Bell símafyrirtækinu í Bandaríkjunum, sem leiddu til tengingar tölfræði (Statistics) og stjórnunar. Niðurstaða þessara rannsókna var tölfræðileg stjórnun ferla sem altæk gæðastjórnun (AGS) spratt upp af. Á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld og á meðan á styrjöldinni stóð þurftu Bandaríkjamenn að auka stórlega framleiðslu sína samhliða því að halda gæðunum í hámarki. Þeim tókst að ná árangri með aðstoð tölfræðilegra aðferða. Á þessum árum voru bandarískar vörur eftirsóttar um allan heim vegna gæða og mikillar endingar. Hver man ekki eftir bandarískum bifreiðum frá þessum tíma, bifreiðum sem eru til enn í dag. Fljótlega eftir seinni heimsstyrjöldina hættu Bandaríkjamenn að nota tölfræðilegar aðferðir við stjórnun fyrirtækja sinna. Ástæðan var mikil eftirspurn eftir vörunt sem framleiddar voru í Bandaríkjunum og lítil samkeppni. Á markaði þar sem allt seldist sem framleitt var þótti stjómendum taka of langan tíma að tryggja gæði með tölfræðilegum aðferðum og því var fallið frá þessum hugmyndum. Enda hefur það sýnt sig að bandarískar vörur hafa farið halloka fyrir öðrum vörum í samkeppninni. Þó AGS sé upprunnin í Bandaríkjunum var hún tekin upp í Japan eftir seinni heimsstyrjöldina, þegar hafin var endurreisn japansks efnahagslífs. Japanir fengu til iiðs við sig tvo menn sem voru í fararbroddi í gæðastjórnun í Bandaríkjunum, þá dr. Joseph M. Juran og dr. W. Edwards Deming. Dr. Deming, tölfræðingur að mennt, kynnti AGS fyrir Japönum, stjórnendum japanskra fyrirtækja og verkfræðingum í japönsku efnahagslífí. Þegar þessir menn komu inn í japanskt efnahagslíf var japönsk vara þekkt fyrir háa bilanatíðni og „Made in Japan“ var merki um lélaga vöru. Nokkrum árum seinna þegar Japanir höfðu beitt AGS í ríkum mæli við stjórnun sinna fyrirtækja voru Japanir að hetja stórsókn sína á heimsmarkað t.d. með bifreiða- og rafmagnstæki. I dag vita allir hve stóran hluta markaðarins Japanir hafa yfirtekið með vörugæðum og hagkvæmni sem þeir náðu með altækri gæðastjómun. Eftir að Bandaríkjamenn hættu að nota tölfræðilegar aðferðir við stjórnun gæða áttaði dr. Deming sig á því að í Bandaríkjunum var það rangur hópur manna sem helgaði sig gæðastjórnun. Stjórnendur fyrirtækjanna höfðu ekki verið með í verkefninu. Áherslan hafði verið lögð á að kenna verkfræðingum og hönnuðum aðferðimar. Síðan þá hefur dr. Deming lagt megináherslu á leið- togahlutverk stjórnenda fyrirtækjanna í altækri gæðastjórnun. Þetta hafa stjórnendur japanskra fyrirtækja tileinkað sér með frábærum árangri. Er ástæðan menningin? Margir hafa haldið því fram að menning Japana sé ástæða velgengni þeirra. Það má vel vera en menning Japana árið 1951 hafi verið mjög svipuð og 1971 eða 1991. Mun- urinn á efnahagslegri velgengni þeirra er hins vegar mikill. Árið 1951 höfðu vörur framleiddar í Japan orð á sér fyrir að vera lélegar með eindæmum. I dag eru þetta hágæðavörur. Menningin hefur breyst lítið sem ekkert en japanskar vörur í dag eru viðurkenndar fyrir gæði og endingu. Árið 1951 hófu Japanir innleiðingu altækrar gæðastjórnunar sem veitti þeim alþjóðlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi vörugæði. Lokaorð Ef Japanir hafa getað náð yfirráðum á heimsmarkaði með aðstoð altækrar gæða stjórnunar er vert að gefa stjórnunarað- ferðinni gaum. Stjórnendur íslenskra fyrirtækja ættu að kynna sér þessar aðferðir út í hörgul áður en þeir afskrifa þær sem hverja aðra loftbólu sem niuni springa innan skamms. Altæk gæðastjórnun er lífsviðhorf jafnt sem stjórnunaraðferð. Ef menn tileinka sér þessar aðferðir, þetta lífsviðhorf, munu þeir ná árangri. Mikilvægt er að nýta sér það fordæmi sent Japanir hafa sett. Magnús B. Jóhanncsson Höfundur er rekstrar- og stjórnunarfræð- ingur og framkvæmdastjóri Islenskrar gæðastjórnunar sf. Hcimildir: Deming, W. Wdwards, Out of the Crisis (Cambridge: Massachusetts InstituteofTechnology, 1986) Walton, Mary, The Deming Management method (New York: Harper Collins Publishers Inc., 1991) 140 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.